Morgunblaðið - 06.05.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 06.05.2020, Síða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2020 SAMNINGAR VIÐ ÖLL TRYGGINGAFÉLÖG • Fagleg þjónusta • Vönduð vinnubrögð • Frítt tjónamat Hvaleyrabraut 2, 220 Hafnarfirði | Sími: 547 0330 | hsretting@hsretting.is | hsretting.is HSRETTING.IS 547 0330 LÁTTU OKKUR UM MÁLIÐ • BÍLARÉTTINGAR • PLASTVIÐGERÐIR • SPRAUTUN Hægt er að bóka tjónaskoðun hjá okkur á netinu 50 ára Theodór er Reykvíkingur, ólst upp á Kleppsvegi og í Breið- holti en býr í Smá- íbúðahverfinu. Hann er rafvirki og tölvu- og kerfisfræðingur að mennt en er deild- arstjóri í stafrænni þróun hjá Securitas. Maki: Guðbjörg Kristjánsdóttir, f. 1973, tómstunda- og félagsmálafræðingur. Sonur: Steinþór Carl, f. 2015. Foreldrar: Guðrún Halldórsdóttir, f. 1928, húsmóðir í Reykjavík, og Steinþór Carl Ólafsson, f. 1923, d. 1985, símstöðv- arstjóri. Theodór Carl Steinþórsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þegar kemur að aga ertu ósigr- andi. Nú er rétti tíminn til þess að beita einhvern þrýstingi ef þess þarf. 20. apríl - 20. maí  Naut Eldri og reyndari vinur gefur þér góð ráð í dag og þér er hollast að leggja eyrun við. Gefðu þér allan þann tíma sem þú þarft til að grandskoða málin. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er margt utan okkar seil- ingar og nauðsynlegt að hver maður þekki sín takmörk. Dragðu andann djúpt, og veldu orð þín vel og vandlega. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Fljótfærni er viðsjárverð, sér- staklega þegar svara á viðkvæmum spurn- ingum. Reyndu að halda ró þinni og brosa. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Góðu breytingarnar sem þú hefur verið að reyna að ná í gegn seinustu ár verða loks að veruleika. Leggðu áherslu á jákvæð samskipti við fólk. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Sinntu þínu starfi af kostgæfni og þegar starfsdeginum er lokið máttu láta hugann reika. Um þessar mundir er létt að missa stjórn á sér út af smávægilegum hlutum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það eru mörg handtökin sem þarf til þess að koma heilu verki í höfn. Þú ert í stöðu til þess að geta aukið umsvif þín. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er óvenju ikil orka í þér og töluvert ójafnvægi sem þú ert ekki ánægður með. Töluð orð verða ekki tekin aftur svo vandaðu framkomu þína. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þótt þú eigir bágt með að skilja hugmyndir vinar þíns er engin ástæða til þess að leggja vináttuna á ís. Notaðu þinn meðfædda sjarma. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér hefur vegnað vel í starfi og finnst tími til kominn að fá einhverja umb- un fyrir. Taktu þér tíma til að sinna heilsu- rækt og íhugun. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það væri ekki vitlaust að blanda geði við nýtt fólk og víkka sjón- deildarhringinn. Taktu því við stjórn- artaumunum er færi gefst. 19. feb. - 20. mars Fiskar Flanaðu ekki að neinu, heldur tékk- aðu af alla hluti og hafðu þitt á hreinu þeg- ar þú grípur til aðgerða. Hafðu hægt um þig. gegnum framleiðsluna hef ég kynnst fjölmörgum, bæði hérlendis og erlendis, einkum saltfiskkaup- endum í Portúgal og sæbjúgna- kaupendum í Kína.“ Hannes sat í hreppsnefnd Ölfus- keypti Hannes Hafnarnes hf. og sameinaði fiskiðjunni VER og úr varð Hafnarnes VER hf. sem hann á og rekur í dag með fjölskyldu sinni. „Útgerðin og fiskvinnslan hafa verið mínar ær og kýr. Í H annes Sigurðsson fæddist laugar- daginn 6. maí 1950 í Stóru-Sandvík í Sandvíkurhreppi, hinum forna, nú Árborg. Hann ólst upp í Stóru-Sandvík ásamt systk- inum sínum og fjölmörgum frænd- systkinum, en þar var á þessum árum fjórbýlt. Þar bjuggu þrír bræður Sigurðar ásamt fjöl- skyldum sínum. „Þar var því margt um manninn á þessum árum og við bættist talsvert af sumarkrökkum úr þéttbýlinu, því það þurfti marg- ar hendur í heyskap á þessum tíma, rétt áður en vélar yfirtóku nánast alla vinnu við heyskapinn.“ Hannes gekk í barna- og gagn- fræðaskóla á Selfossi og þá lá leið- in í Verslunarskóla Íslands. „En sjómennskan heillaði og ég fór fyrst í siglingar, fékk pláss á Lag- arfossi og fyrsta landið sem komið var til var Rússland og borgin var Múrmansk. Þar kom ungum Ís- lendingi margt nýstárlegt fyrir sjónir.“ Hannes var eitt ár í sigl- ingum en eftir þann kafla réði hann sig á fiskibáta. Byrjaði á bát frá Þorlákshöfn en var einnig á bátum frá Eyrarbakka og Stokks- eyri. Hann fór síðan í Stýrimanna- skólann í Reykjavík haustið 1971 og lauk fiskimannaprófi vorið 1973. Hannes var stýrimaður og skip- stjóri á nokkrum bátum í Þorláks- höfn. Hann hóf eigin útgerð haust- ið 1976 með kaupum á 50 tonna bát frá Hellissandi sem hann var skip- stjóri á. Samhliða útgerðinni byggðu hann og Þórhildur kona hans verslunarhús í Þorlákshöfn, þar sem þau ráku matvöruverslun í sjö ár, en síðan var húsið og rekst- urinn seldur öðrum. Fiskiðjan Ver var sett á laggirnar 1983 og byggt hús að Unubakka 48 í Þorlákshöfn, var þar unninn saltfiskur. „Sú starfsemi vatt upp á sig og var flutt í stærra húsnæði í Þorláks- höfn að Óseyrarbraut 20 þar sem saltfiskframleiðslan er enn í dag.“ Þau hjónin byggðu svo veitinga- staðinn Hafið bláa árið 2003 og ráku staðinn til 2009, en hann hef- ur verið í útleigu síðan. Árið 2006 hrepps 1992-1998 og er formaður veiðifélagsins Varmár í Ölfusi. „Ég hef mikinn áhuga á laxveiði, bæði í net og á stöng. Ég veiði fyrst og fremst í Sogi og Ölfusi en svo hef ég líka gaman af því að veiða í Laxá í Kjós.“ Fjölskylda Eiginkona Hannesar er Þórhild- ur Ólafsdóttir, f. 11.4. 1953, bú- fræðingur og skógræktarbóndi. Þau eru búsett á Hrauni í Ölfusi. Foreldrar hennar voru hjónin Ólaf- ur Þorláksson, f. 18.2. 1913, d. 23.11. 2006, bóndi á Hrauni, og Helga Sigríður Eysteinsdóttir f. 2.7. 1916, d. 9.9. 2009, húsfreyja á Hrauni. Börn Hannesar og Þórhildar eru 1) Hildur, f. 17.9. 1978, d. 18.12. 1978; 2) Katrín Ósk, f. 11.7. 1980, fjármálastjóri. Maki: Smári Birnir Smárason, f. 7.3. 1981, fram- kvæmdastjóri. Dætur þeirra eru Hildur Ósk, f. 4.12. 2007; Hanna Hannes Sigurðsson, útvegsbóndi og fiskverkandi – 70 ára Fjölskyldan Hannes og Þórhildur ásamt börnum sínum, tengdasyni og barnabörnum á heimili þeirra á Hrauni. Fiskverkandinn í Ölfusinu Hjónin Hannes og Þórhildur á ferðalagi í Kína. 40 ára Jón Þór er Selfyssingur og er bif- reiðasmiður að mennt frá Borgarholtsskóla. Hann er slökkviliðs- maður hjá Bruna- vörnum Árnessýslu. Maki: Svandís Bára Pálsdóttir, f. 1979, þjónustustjóri. Börn: Brynja Líf, f. 2004, og Axel Úlfar, f. 2010. Foreldrar: Ingunn Sigurjónsdóttir, f. 1957, fyrrverandi læknaritari, og Jóhann Hannes Jónsson, f. 1956, húsvörður í Sunnulækjarskóla. Þau eru búsett á Sel- fossi. Jón Þór Jóhannsson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.