Morgunblaðið - 06.05.2020, Page 22

Morgunblaðið - 06.05.2020, Page 22
Ljósmynd/Barcelona Meistarar Aron Pálmarsson og Victor Tomás á góðri stundu. Keppnistímabilinu í spænska hand- knattleiknum hefur verið aflýst og Barcelona er spænskur meistari enda var liðið langefst í deildinni þeg- ar keppni var slegið á frest fyrr í vet- ur vegna kórónuveirunnar. Aron Pálmarsson leikur með liðinu, sem er meistari tíunda árið í röð, en meist- aratitillinn er sá þriðji í röðinni hjá Aroni hjá Barcelona. Þá hefur liðið einnig orðið bikarmeistari öll þrjú ár- in síðan Aron hóf að leika með liðinu. Barcelona hafði mikla yfirburði í deildinni í vetur eins og síðustu ár og vann alla nítján leiki sína. Keppnis- tímabilinu er því lokið hjá Barcelona að því undanskildu að úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu fer að óbreyttu fram í Köln í desember. Ferli fyrirliðans, Victors Tomás, er þá lokið en hann tilkynnti fyrr í vet- ur að hann myndi hætta í sumar vegna hjartagalla. Tomás nýtur mik- illa vinsælda hjá félaginu og hefur leikið allan sinn feril með liðinu en hann er 35 ára. Lék hann einnig með Guðjóni Val Sigurðssyni hjá Barce- lona á sínum tíma. Ferill Arons í atvinnumennsk- unni er magnaður. Hann varð nú landsmeistari í tíunda sinn á ferl- inum, en hann varð þýskur meistari fimm sinnum með Kiel og ung- verskur meistari tvisvar með Veszprém. „Við vildum ljúka deildininni og láta úrslitin ráða þar sem við spil- uðum vel á leiktíðinni. Sumt er hins vegar mikilvægara en íþróttir og við verðum að sýna því skilning,“ er haft eftir Xavi Pascual, þjálfara Barce- lona, á heimasíðu félagsins. Landsmeistaratitlar Arons fylla tuginn 22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2020 FÓTBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Tæplega fjögurra mánaða Ítalíudvöl Berglindar Bjargar Þorvaldsdóttur, landsliðskonu í knattspyrnu og leik- manns Breiðabliks í efstu deild, hef- ur einkennst af fótbolta, útgöngu- banni og hálfgerðu stofufangelsi. Framherjinn, sem er 28 ára göm- ul, er nú á heimleið frá Ítalíu, en hún gekk til liðs við stórlið AC Milan á láni frá Breiðabliki um miðjan janúar á þessu ári. Berglind spilaði frábærlega með AC Milan í upphafi árs en í febrúar var öllum leikjum í ítölsku A- deildinni frestað um óákveðinn tíma vegna kórónuveirufaraldursins. „Ég á von á því að snúa aftur til Ís- lands í kringum 10. maí,“ sagði Berg- lind Björg í samtali við Morgun- blaðið. „Í dag (gær) var aðeins slakað á útgöngubanninu sem hefur ríkt hérna undanfarnar vikur. Fólk má núna fara út í göngutúra og í almenn- ingsgarða sem dæmi. Það eru ein- hverjar nokkrar búðir opnar líka en ekki mikið meira en það. Ég er búin að vera í hálfgerðu stofufangelsi inni hjá mér í sirka níu vikur en ótrúlegt en satt þá hefur tíminn verið lúmskt fljótur að líða. Ég trúi því varla sjálf að ég sé búin að gera lítið annað en að hanga inni hjá mér í níu vikur, sem er hálf galið, en ég hef reynt að gera mitt besta til þess að halda mér við. Meðal annars með því að hlaupa í bílakjallaranum í íbúðarhúsinu mínu og með því að lyfta vatnsflöskum og öðru en ég skal alveg viðurkenna það að það er orðið ansi þreytt að þurfa að æfa svona.“ Þakklát fyrir tækifærið Berglind fór á kostum í fyrstu leikjum sínum með AC Milan, þar sem hún skoraði fimm mörk í fimm leikjum, en síðast var leikið í ítölsku A-deildinni 23. febrúar. Framherjinn segir að það komi vel til greina að leika aftur með AC Milan síðar á ferlinum. „Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá hefur þessi tími verið algjörlega frábær. Ég er búin að njóta mín í botn í Mílanó og mér líður mjög vel hérna. Það er spilaður skemmtilegur fótbolti hérna og deildin er mjög sterk. Það er frábært að fá tækifæri til þess að spila fyrir jafn stórt lið og AC Milan og ég er fyrst og fremst stolt og þakklát fyrir tíma minn hjá félaginu. Við höfum aðeins rætt framhaldið og þeir hafa aðeins verið að kanna stöðuna á mér og hvar hugur minn liggur. Það er erfitt að ákveða fram- tíðina í ástandinu sem ríkir á Ítalíu þessa dagana og markmiðið hjá mér núna er að koma heim og gera vel fyrir Breiðablik. Ég mun svo bara skoða mín mál betur að tímabili loknu.“ Engar áhyggjur Framherjinn öflugi er vænt- anlegur til landsins á næstu dögum, en stefnt er að því að hefja keppni í úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max- deildinni, 16. júní. Berglind þarf að fara í tveggja vikna sóttkví við kom- una til landsins en segir það lítið vandamál. „Tvær vikur í sóttkví eru ekki neitt og ég hef lent í því verra. Ég hef verið í góðu sambandi við Þorstein Halldórsson, þjálfara Breiðabliks, og styrktarþjálfarann líka og ég er með plan sem ég mun fylgja. Ég má fara út að hlaupa, sem er jákvætt, og ég hef litlar áhyggjur af því að þurfa að æfa í sóttkví. Annars leggst tímabilið með Breiðabliki ótrúlega vel í mig. Allir leikmenn liðsins hafa verið mjög duglegir að æfa undanfarnar vikur og vonandi náum við að æfa í tvær til þrjár vikur, allar saman, rétt fyrir mót.“ Berglind var lykilmaður í liði Breiðabliks sem vann tvöfalt sum- arið 2018 og varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Liðið hafnaði hins vegar í öðru sæti deildarinnar á síð- ustu leiktíð á eftir Val, og Berglind ítrekar að markmiðið í ár sé að gera betur. Stefna alltaf hátt „Kjarninn í liðinu er svo gott sem sá sami og undanfarin ár. Það er gott að vera ekki að róta mikið í honum og það mun bara hjálpa okkur þegar á hólminn er komið. Það var mjög gott að fá Rakel Hönnudóttur aftur heim og eins að fá Sveindísi Jane til félags- ins. Við höfum ekki sett okkur nein markmið sem lið en ég hef fulla trú á því að við verðum sterkari núna en síðasta sumar. Stefna okkar hefur alltaf verið að vinna bikara og það breytist ekki fyrir komandi keppn- istímabil,“ bætti Berglind Björg við í samtali við Morgunblaðið. Naut sín í botn í Mílanó  Berglind Björg á heimleið frá Ítalíu  Hálfgert stofufangelsi síðustu níu vikurnar  Gekk hins vegar vel á vellinum á meðan hægt var að spila Ljósmynd/@acmilan Heimkoma Berglind Björg Þorvaldsdóttir snýr aftur til Íslands á næstu dögum eftir lánsdvöl hjá AC Milan. 6. maí 1958 Morgunblaðið spáir því að nýtt blómaskeið sé að hefjast hjá knattspyrnuliði KR eftir 8:0 sigur á Víkingi á Reykja- víkurmótinu. „Ungir leik- menn leika af tækni, hraða og oft skemmtilegu hugmynda- flugi. Af ungu mönnunum ber þar hæzt Þórólf Beck.“ 6. maí 1980 Óskar Jakobsson nær lág- marki í kúluvarpi fyrir Ól- ympíuleikana í Moskvu og stór- bætir árangur sinn á móti í Houston í Bandaríkjunum þegar hann kastar 19,57 metra. Hann hafði áður keppt á leikunum í Montreal 1976. 6. maí 1987 Ragnheiður Ólafsdóttir setur Íslandsmet í 3.000 metra hlaupi kvenna á háskólamóti í Baton Rouge í Bandaríkj- unum, tólf dög- um eftir að hafa slegið metið í 1.500 metra hlaupi, en bæði metin standa enn. Ragnheiður hleypur 3.000 metrana á 8:58,00 mín. 6. maí 1990 Fjórir Íslendingar ná á verð- launapall í samanlögðu þegar Evrópumeistaramótið í kraft- lyftingum er haldið í Reykja- vík og eru keppendur frá sex- tán þjóðum. Jón Gunnarsson fær silfurverðlaun í -90 kg flokki, Guðni Sigurjónsson brons í 110 kg flokki, Magnús Ver Magnússon brons í 125 kg flokki og Hjalti Árnason brons í +125 kg flokki. 6. maí 1993 Geir Sveinsson og Júlíus Jón- asson eru komnir í úrslit í EHF-keppninni í handknatt- leik. Lið þeirra Alzíra frá Valencia á Spáni slær annað spænskt lið, Bidasoa, út í und- anúrslitum. Alzíra vinnur seinni leikinn 26:22 en þeim fyrri lauk 18:18. Alzíra mætir annaðhvort Linz eða Dinamo Búkarest í úrslitum. 6. maí 2001 Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik sigrar Lúx- emborg, 81:72, á alþjóðlegu móti í Lúx- emborg og hafnar þar með í 3. sæti. Hildur Sigurðardóttir skorar 18 stig fyrir íslenska liðið og Kristín Blöndal 16. 6. maí 2009 Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona, tekur þátt í að slá sína gömlu félaga í Chelsea út í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu með 1:1 jafntefli í London eftir markalaust jafntefli í fyrri leik liðanna. 6. maí 2012 HK verður Íslandsmeistari karla í handknattleik í fyrsta skipti í sögu félagsins eftir sigur gegn FH, 28:26, í Kapla- krika fyrir framan tæplega 2.700 áhorfendur. HK vann úrslitarimmuna 3:0 og vann Hauka einnig 3:0 á leið sinni í úrslitin. Á ÞESSUM DEGI Keppni í danska handboltanum var hætt í apríl og efstu lið deildanna krýndir meistarar og neðstu liðin féllu. Nú hefur sú ákvörðun verið dregin til baka, þar sem liðin sem féllu áfrýjuðu henni til danska handknattleikssambandsins. Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon voru í liði Álaborgar sem var krýnt meistari í karla- flokki og Arnór Atlason aðstoð- arþjálfari. Þá var Rut Jónsdóttir í liði Esbjerg sem var krýnt meistari í kvennaflokki. Óvissa hjá Ís- lendingunum Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson Danmörk Janus Daði Smárason var í lykilhlutverki hjá Álaborg. FH og Þróttur Reykjavík fengu í gær styrk frá UEFA vegna verk- efna sem tengjast flóttafólki og hælisleitendum. Í desember á síð- asta ári auglýsti KSÍ eftir umsókn- um um styrki vegna verkefnisins og barst tæplega tugur umsókna. Bæði verkefnin ganga út á að bjóða hælisleitendum og flóttafólki á knattspyrnuæfingar í hverri viku undir leiðsögn menntaðs þjálfara og á aðra viðburði á vegum félag- anna. Verkefnin munu hefjast í sumar. FH og Þróttur fengu styrki Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Styrkur FH og Þróttur Reykjavík fengu styrki frá UEFA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.