Morgunblaðið - 06.05.2020, Side 24

Morgunblaðið - 06.05.2020, Side 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2020 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er spennandi áskorun að fá að leika þetta hlutverk og í raun algjör forréttindi því þetta er hlutverk sem margar leikkonur dreymir um að fá að takast á við,“ segir Ebba Katrín Finnsdóttir sem ráðin hefur verið til að leika hlutverk Júlíu í uppfærslu Þjóðleikhússins á Rómeó og Júlíu eft- ir William Shakespeare í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar sem frumsýnd verður í mars 2021. Eins og fram kemur í frétt á baksíðunni í dag leitar Þjóðleikhúsið að þeim eina rétta í hlutverk Rómeós og er skrán- ingarfrestur á vef leikhússins til mið- nættis 7. maí. Rómeó og Júlía er fyrsta sýningin sem Þorleifur leikstýrir í Þjóðleik- húsinu eftir að hann gekk til liðs við leikhúsið með samningi þess efnis að hann leikstýri þar einni sýningu árlega næstu árin. Listrænir stjórn- endur sýningarinnar auk Þorleifs eru Ilmur Stefánsdóttir sem hannar leik- mynd, Björn Bergsteinn Guðmunds- son lýsingu og Kristján Ingimarsson sem sér um kóreógrafíuna. Líkamlega krefjandi Aðspurð segist Ebba Katrín hafa unnið með texta Shakespeare í leik- listarnámi sínu. „Á öðru ári tókst ég á við lafði Makbeð og fann þá hversu líkamlega krefjandi það er að fara með texta Shakespeare. Maður stekkur ekki fyrirvaralaust á þennan texta, heldur þarf góðan undirbúning bæði líkamlega og andlega,“ segir Ebba Katrín sem bíður spennt eftir að fá textann í hendurnar. „En teymi ungra efnilegra ljóðaslammara eru að vinna nýja þýðingu á verkinu.“ Ebba Katrín útskrifaðist af leik- arabraut Listaháskóla Íslands fyrir tveimur árum og vakti um svipað leyti athygli fyrir hlutverk sitt í sjón- varpsþáttaröðinni Mannasiðum á RÚV. Fyrsta árið eftir útskrift lék hún m.a. í Dúkkuheimili, 2. hluta, Núna 2019 og Matthildi í Borgarleik- húsinu. Á yfirstandandi leikári hefur hún í Þjóðleikhúsinu leikið í Meist- aranum og Margarítu, Þínu eigin leikriti II – Tímaferðalagi og Atóm- stöðinni – endurliti. Ebba Katrín hef- ur enn ekki unnið með Þorleifi sem leikstjóra, en þekkir vel til hans þar sem hún tók þátt í Njálu 2015 og Álfa- höllinni 2017. „Ég var dresser í báð- um sýningum auk þess sem við sviðs- fólkið vorum fengin til að klæða okkur í búninga og taka þátt í völdum atriðum á sviðinu,“ segir Ebba Katrín og útskýrir að „dresser“ hafi umsjón með búningum á sýningum. Djarfar ákvarðanir „Ég er sannfærð um að það verði bæði krefjandi og þroskandi að vinna með Þorleifi. Ég er ótrúlega spennt að vinna með honum. Mér hefur alltaf fundist svo gaman að horfa á sýn- ingar hans því þær eru svo mikið fyr- ir augað. Sýningar hans koma manni líka alltaf á óvart því hann er ófyrir- sjáanlegur. Hann þorir að taka djarf- ar ákvarðanir, sem gefur manni sem leikara hugmynd um að maður geti komið með djörf tilboð á móti og svo treystir maður því að hann velji og skapi einhverja snilld,“ segir Ebba Katrín. Aðspurð segir hún spennandi að skoða hvort hægt sé að taka Júlíu í nýjar áttir í túlkun. „Mér finnst áhugavert hvernig við viðhöldum hugmyndum, staðalímyndum og ákveðinni birtingarmynd með því að segja eldri sögur aftur og aftur. Sam- félagið er komið á nýjan stað og því vakna eðlilega nýjar spurningar. Það er mér til dæmis algjörlega framandi hugmynd að selja einhvern í hjóna- band gegn sínum vilja og ég skil ekki hvernig það á að líðast í nútímanum.“ Sterkar taugar til leikhússins Sem fyrr segir hefur Ebba Katrín ekki þurft að kvarta undan verkefna- skorti frá útskrift. „Ég hef verið ótrú- lega heppin og fengið að takast á við ólík hlutverk. Það besta sem hent getur ungan leikara er að fá að vera sem mest á sviði því þannig öðlast maður reynslu og aukið öryggi. Það er því frábært að fá að vera í stöðugri þjálfun og mæta nýjum mótleikurum á sviði,“ segir Ebba Katrín og tekur fram að það hafi líka verið afar gef- andi að fá tækifæri til að vinna með ólíkum leikstjórum. Ebba Katrín hefur notið þess að starfa í stóru atvinnuleikhúsunum í borginni og hrósar báðum húsum. „Mér finnst magnaðir hlutir vera að gerast í báðum húsum. Ég ber óneit- anlega sterkar taugar til Þjóðleik- hússins því hér kynntust amma mín og afi auk þess sem langafi minn vann í hljómsveitargryfjunni,“ segir Ebba Katrín, en langafi hennar var tónlist- armaðurinn og hljómsveitarstjórinn Viktor J. Urbancic. Sonur hans, Pét- ur Marteinn Páll Urbancic, spilaði í hljómsveitargryfjunni og kynntist þá Ebbu Ingibjörgu Egilsdóttur sem vann sem sætavísa í leikhúsinu. Morgunblaðið/Eggert Tilhlökkun Ebba Katrín Finnsdóttir hlakkar til að vinna með Þorleifi Erni. „Algjör forréttindi“  Ebba Katrín Finnsdóttir mun leika Júlíu í Þjóðleikhúsinu „Víkingur Ólafsson er hin nýja ofurstjarna klassíska píanósins.“ Þannig hefst lofsamleg umfjöllun rýnis breska dagblaðsins The Tele- graph um nýja plötu píanóleik- arans, Debussy Rameau, sem Deutsche Grammophon gefur út. Platan hefur fengið afar góða dóma víðar og situr efst eða ofarlega á vinsældalistum klassískrar tónlist- ar beggja vegna Atlantshafs. Rýnir The Telegraph segir ljós- myndina á plötuumslaginu gefa vissar vísbendingar um innihaldið; Víkingur Heiðar sjáist þar smyrja litum á gler og þannig sé leikur hans, „undursamlega hárfínn og lit- ríkur“. Og það greini Viking frá öðrum ungum píanóleikara sem búi líka yfir nánast dulrænum hæfi- leikum, Igor Levit; sá takist nánast alltaf á við þung- ar byrðar myrkra meist- araverka, en túlkun Víkings sé öll létt og fant- asísk. Val verkanna og stefnumót tónskálda tveggja tíma er lofað. Helst er fundið að því að ákafi Víkings við að skapa draumaheima úr verkum Rameaus ræni þau hrynrænni orku en þannig sé það hjá alvöru frum- legum listamönnum; það verði að taka „það hrjúfa með hinu mjúka“ og á plötunni sé fjölmargt sem heilli rýninn, sem gefur henni fjór- ar stjörnur. Ný „ofurstjarna klassíska píanósins“ Víkingur Heiðar Ólafsson Um helgina var opnuð á vef Gall- erís Foldar við Rauðarárstíg sam- sýningin „Út úr kófinu“. Verkin verður einnig hægt að skoða í söl- um Foldar, nú þegar slakað hefur verið á samkomubanninu. Í tilkynn- ingu segir: „Það ástand sem nú rík- ir í samfélaginu snertir alla og kemur hart niður á listafólki sem hefur ekki fastar tekjur. Því höfum við efnt til samsýningar listamanna Gallerís Foldar og verða öll verkin til sölu á vefuppboði þar sem endanlegt verð ræðst ekki fyrr en í lok uppboðsins. Í því felast tækifæri til að styrkja myndlistarfólkið í störfum sínum, gera kjarakaup og eignast eigu- leg verk.“ Um 30 listamenn taka þátt í verkefninu og alls verða sýnd og boðin upp um 60 ný verk. Bæði sýn- ingin og upp- boðið standa til 13. maí næstkom- andi. Sýnd í Gallerí Fold og boðin upp Hluti verks eftir Hrafnhildi Ingu Sigurðardóttur. MOKKAKÖNNUR SMÁRALIND – KRINGLAN DÚKA.IS Frí heimsending á duka.is Sendum um allt land Eyja Margrét Brynjarsdóttir, pró- fessor í heimspeki og hagnýtri sið- fræði við Háskóla Íslands, mælir með listaverkum sem hægt er að njóta innan veggja heimilisins með- an kófið vegna kórónuveirunnar stendur yfir. „Ég er svolítið svekkt yfir að hafa ekki náð að lesa eins mikið og ég hafði hugs- að mér, mest af því sem ég les er vinnutengt. En ég mæli með A Paradise Built in Hell: The Extra- ordinary Communities that Arise in Disaster eftir Rebeccu Solnit. Hún fer yfir ýmsar hamfarir sem hafa átt sér stað í sögunni og fjallar um þá samstöðu og stuðning sem fólk sýnir við slíkar aðstæður. Þetta gef- ur gott mótvægi við þá útbreiddu hugmynd að allir séu á móti öllum og hver hugsi bara um sjálfan sig þegar hamfarir eiga sér stað. Hvað sjónvarpsefni varðar hefur Unorthodox-serían staðið upp úr af nýju efni, um sjálfstæðisbaráttu ungrar konu úr samfélagi strang- trúaðra gyðinga í New York. Sænsku þættirnir Kalifat eru líka mjög vel gerðir en meira niður- drepandi. Svo mæli ég alltaf með Orphan Black-þáttunum fyrir þau sem ekki hafa séð þá, femínískur vísindaskáldskapur þar sem kan- adíska leikkonan Tatiana Maslany á stórleik sem fleiri persónur en ég hef tölu á. Og svo eru áströlsku spæjaraþættirnir Miss Fisher’s Murder Mysteries mjög skemmti- legir. Þetta efni er allt á Netflix en næst á dagskrá hjá mér er að horfa á Undirrót haturs á RÚV-vefnum og að sjá Benedict Cumberbatch og Jonny Lee Miller í uppsetningu á Frankenstein sem hægt verður að sjá frítt til 7. maí gegnum National Theatre at Home. Ég er mikill hlaðvarpshlustandi og er eiginlega alltaf með hlaðvarp í eyrunum meðan ég stend í eldhús- inu. Sem fyrrverandi íbúi Banda- ríkjanna hef ég haldið tengslum við það land með því að hlusta mikið á bandarískt efni. This American Life og Radiolab standa alltaf fyrir sínu, svo má nefna Invisibilia, Hid- den Brain, Planet Money og This Is Uncomfortable. This Podcast Will Kill You og This Week in Virology hafa komið sterk inn upp á síðkast- ið með umfjöllun um kórónuveir- una en svo má fara á allt aðrar slóð- ir og hlusta á spennandi fantasíur eins og Limetown eða Tanis.“ Mælt með í kófinu Sjálfstæðisbarátta Þáttaröðin Unorthodox á Netflix fjallar um sjálfstæðis- baráttu ungrar konu úr samfélagi strangtrúaðra gyðinga í New York. „Eiginlega alltaf með hlaðvarp í eyrunum“ Eyja Margrét Brynjarsdóttir Spæja Tatiana Maslany í þáttunum Miss Fisher’s Murder Mysteries.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.