Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Bíldshöfði 9, 110 Reykjavík | verslun@orninngolf.is | Sími 577 2525
ÖLL BESTU MERKIN
Í GOLFINU...
S
tarfs míns vegna sem sjónvarpsmaður þarf ég hafa fatn-
aðinn í þokkalegu lagi, en þessa daga sem ég stýrði
Reykjavík Junior Open í Grafarholtinu á síðasta ári topp-
aði ég sjálfan mig í klæðaburði og fór eiginlega gott betur
en alla leið,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson sem sló í
gegn sem vallarræsir á mótinu fyrir íslensk ungmenni á síðasta ári.
Þar tóku 130 ungmenni af öllu landinu þátt í tveggja daga móti
undir heiðum himni og er óhætt að segja að framkvæmd þess hafi
tekist eins og best verður á kosið.
Uppáklæddur eins og lávarður
Sigmundur Ernir stóð báða dagana við háborð sitt á fyrsta teig í
holtinu, uppáklæddur eins og enskur lávarður af óræðri öld, frá
toppi til táar og var eftir því tekið hvað hann hvatti þátttakendurna
af mikilli alúð, innsæi og augljósum áhuga. „Ég var í hlutverki
gestgjafans og tók hlutverk mitt alvarlega. Það er nefnilega ekki
nóg að taka vel á móti fólki, maður verður líka að gefa allt það af
sér sem maður á af hlýju og umhyggju. Og krakkarnir tóku þessu
vel, allir sem einn og gott ef ég sá þá ekki svífa yfir teignum eftir
að ég var búinn að fara með hvatningarræðu mína fyrir hvern rás-
hópinn af öðrum,“ segir Sigmundur Ernir.
Augnablik sem gleymist ekki
Sigmundur segir mikinn metnað hafa blundað á meðal skipuleggj-
enda mótsins og hann hafi gripið þann anda á lofti: „Krakkarnir
okkar eiga bara það besta skilið. Þetta eru snillingar sem leggja
gífurlega mikið á sig við æfingar allan ársins hring, í hvaða veðrum
sem er, oft við aðstæður sem eru á mörkum þess mögulega. Þess
vegna var svo ánægjulegt að sjá hvað þeim fannst mótið vera mikil
uppskeruhátíð. Þau voru stjörnurnar og áhorfendur, jafnt for-
eldrar, ættingjar, vinir og aðrir, fundu vel fyrir því hversu vel
krakkarnir nutu sín úti á vellinum. Vegna þess að þetta var alvöru
og án alls afsláttar,“ segir Sigmundur Ernir sem ítrekar hvað
mótshaldarar hafi lagt sig fram við að gera umrætt mót að mik-
ilvægu augnabliki sem aldrei muni gleymast í lífi þessara 130 ung-
menna sem örkuðu um Grafarholtið um mánaðamótin ágúst/
september á síðasta ári.
Mun endurtaka leikinn
Og aðspurður hvort hann sé til í þetta aftur stendur ekki á svari
hjá Sigmundi: „Jú, hvernig spyrðu? Þetta geri ég aftur, svo fremi
ég verði náttúrlega beðinn um það. Golfhreyfingin á Íslandi á að
gera meira af þessu; lyfta krökkunum á þann stall sem þau eiga
skilið. Það gerir íþróttinni líka svo gott, út á við og inn á við. Og
ætli það sé nokkuð mikilvægara í lífinu en að koma vel fram við
börn.“
Ljósmynd/GR
Frá vinstri Katrín Sól Davíðsdóttir, Bjarney Harðardóttir, Sigmundur Ernir
Rúnarsson og Auður Sigmundsdóttir á Reykjavík Junior Open 2019.
„Krakkarnir
svifu yfir
teignum“
Sigmundur Ernir sinnti hlutverki sínu
á Reykjavík Junior Open af alúð
Ómar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs
Reykjavíkur, hefur í mörg horn að líta á þessum árstíma.
Til að mynda er klúbburinn nýlega búinn að opna vellina.
Spurður um áhrif kórónuveirunnar á golfið segir Ómar
ekki vera um miklar breytingar að ræða úti á golfvelli.
„Komandi sumar lítur afar vel út enda höfum við orðið
vör við aukinn áhuga fólks á golfíþróttinni. Golfið er al-
menningsíþrótt þar sem kynslóðir koma saman. Að sjálf-
sögðu höfum við þurft að laga okkur að breyttum að-
stæðum líkt og aðrir vegna aðstæðna en faraldurinn
kemur í raun lítið niður á iðkun golfíþróttarinnar þar
sem hún er stunduð utanhúss, á stóru svæði, þar sem
gott bil getur verið á milli fólks. Þetta hefur m.a. leitt til
þess að gríðarleg eftirspurn er eftir rástímum á völl-
unum, bæði hér á landi og í nágrannalöndunum, en far-
aldurinn setur litlar sem engar hömlur á þá sem iðka
íþróttina.
Nú þegar á fyrstu dögum opnunar golfvalla klúbbsins
hefur verið mikið líf í báðum klúbbhúsum okkar, þ.e. við
Korpúlfsstaði og í Grafarholti. Í vor var golfskálinn í
Grafarholti mikið endurnýjaður og hafa þá bæði klúbb-
húsin verið endurnýjuð að hluta. Á báðum stöðum er að
finna afar mikið úrval girnilegra veitinga og er öllum vel-
komið að heimsækja okkur þangað hvenær sem er.
Enginn verður svikinn af því.“ Segir Ómar vellina sjald-
an hafa verið jafn góða á þessum árstíma. Áhyggjur sem
á hann leituðu í vetur hafi reynst óþarfar.
„Veturinn var harður og óttuðumst við á tímabili að
vellirnir kæmu illa undan vetrinum. Það er jafnan
stærsta áhyggjuefni okkar. Það var því einstaklega
ánægjulegt að sjá að vellir félagsins hafa sjaldan verið
jafn góðir á þessum árstíma og nú. Það eina sem okkur
vantar er að hitastigið hækki um nokkrar gráður en
samkvæmt jákvæðum veðurspám er það í kortunum og
þá mun grasið taka vel við sér.“
Ungu fólki fjölgar í GR
GR-ingar hafa tekið eftir fjölgun meðlima á þrítugsaldri
á þessu ári.
„Golfklúbbur Reykjavíkur er stærsti golfklúbbur
landsins, en félagar eru nærri 3.000. Félagsmenn eru á
aldursbilinu 6-100 ára. Því er óhætt að segja að klúbb-
urinn hafi innan vébanda sinna afar stóran, fjölbreyttan
og skemmtilegan hóp. Í ár hefur til að mynda verið áber-
andi mikil fjölgun félagsmanna í aldurshópnum 19-26
ára, auk þess hefur fjölgað mikið í hópi kvenna und-
anfarin ár,“ segir Ómar, en fyrir þá sem ekki þekkja til
er það ekki hrist fram úr erminni að halda tveimur golf-
völlum við svo vel sé.
„Starfsemi félagsins er mjög umfangsmikil. Á skrif-
stofunni starfa fjórir starfsmenn allt árið um kring, auk
7 vallarstarfsmanna. Vélafloti félagsins er afar stór og
verðmætur, enda þarf mikið til að halda völlum félagsins
góðum með 60 golfbrautum auk æfingasvæða. Þjálfarar í
barna- og unglingastarfinu eru þrír vel menntaðir PGA-
golfkennarar og vinna þeir við þjálfun félagsmanna allt
árið. Heildarfjöldi starfsmanna er því fjórtán sem vinna
allt árið um kring. Á hinn bóginn fjölgar starfsmönnum
klúbbsins mikið yfir sumartímann og fer heildarfjöldinn
þá upp í sjötíu þegar mest lætur. Þar vega störf á völl-
unum langsamlega þyngst.“
Spennandi tímar fram undan
Ómar horfir bjartsýnn til framtíðar, en á döfinni er upp-
bygging æfingaaðstöðu innandyra.
„Stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur vinnur þessa dagana
ásamt starfsfólki hörðum höndum að uppbyggingu nýrr-
ar inniæfingaaðstöðu fyrir golfara. Hugmyndavinna
vegna þessa verkefnis er í fullum gangi, sem felst ekki
hvað síst í því að greina þarfir allra aldurshópa sem
stunda golfíþróttina og reyna að koma til móts við þær.
Á næstu mánuðum mun stjórn félagsins boða til fé-
lagsfundar þar sem tillögur þar að lútandi verða kynntar
félagsmönnum og ákvarðanir vonandi teknar í framhald-
inu. Þessi aðstaða mun breyta golfiðkun íslenskra kylf-
inga til muna allt árið um kring.
Þá eru ávallt mörg verkefni í gangi við að fegra og
bæta vellina okkar og liggur áhersla okkar í Grafar-
holtinu um þessar mundir. Það er því bjart fram undan
hjá GR,“ segir Ómar Örn Friðriksson.
Gríðarleg eftirspurn
hérlendis sem erlendis
Áhugi Íslendinga á golfíþróttinni
heldur enn áfram að aukast
Ljósmynd/GR
Ómar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri GR.