Morgunblaðið - 21.05.2020, Side 22

Morgunblaðið - 21.05.2020, Side 22
Hluti af húsinu var innréttaður fyrir Golf- klúbb Reykjarvíkur árið 1995 og hefur klúbbhúsið verið í stöðugum endurbótum alla tíð síðan. Í dag er í aðstöðunni að finna skrifstofu klúbbsins og æfingaaðstöðu ásamt tveimur veitingasölum. Golfskálinn í Grafarholti var upphaflega byggður árið 1963 en endurinnréttaður ár- ið 2001. Veitingasalurinn er glæsilegur og er þar frábært útsýni yfir Grafarholtsvöll og höfuðborgina. Golfskálarnir á Korpu og í Grafarholti gegna mikilvægu hlutverki í starfi Golf- klúbbs Reykjavíkur sem félagsheimili fyrir meðlimi ásamt því að taka á móti og þjón- usta gesti og gangandi sem vilja kynna sér starfsemi GR. Veitingasala er rekin yfir golftímabilið og eru golfskálarnir þá opnir frá morgni til kvölds. Eru allir velkomnir, hvort sem það eru kylfingar eða aðrir gestir. Breytilegur matseðill er frá degi til dags og er stað- urinn með vínveitingaleyfi. Hægt er að panta borð fyrir stærri hópa og er gott að gera það með fyrirvara. TrackMan í Básum Æfingasvæði Bása í Grafarholti býður upp á fjölbreytta möguleika til golfæfinga. Á síðasta ári var tekin í notkun ný bylting- arkennd tækni til þess að greina högg frá kylfingum úr öllum básum á fyrstu og ann- arri hæð æfingasvæðisins. Um er að ræða svokallað TrackMan Range, en það er rad- arbúnaður sem getur lesið boltaflug úr 50 básum samtímis. Með því að hlaða niður smáforriti í síma geta kylfingar lesið úr forritinu hvað boltinn fer langt, en einnig hve hratt og hátt hann flýgur. Á svæðinu eru nokkur skotmörk sem hægt er að slá á og fá endurgjöf um hversu nálægt skotmarkinu boltinn lendir. Í boði eru nokkrir leikir þar sem kylfingar geta keppt í að hitta sem næst skotmörkum eða keppt um hver slær lengst. Fyrir utan höggæfingasvæðið Bása eru bæði pútt- flatir, vippflatir og 6 holu æfingavöllur sem hentar vel fyrir stutta spilið. Svæðið býður upp á fjölbreyttar æfingar og leiki jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna. H já GR er eitt besta aðgengi að golfiðkun á höfuðborgarsvæðinu. GR býður upp á tvo glæsilega golfvelli, á Korpúlfsstöðum og í Grafarholti. Á Korpúlfsstöðum er 27 holu völlur og er alltaf hægt að bóka sig á annaðhvort 9 eða 18 holu hring. Í Grafarholti er einn elsti golfvöllur lands- ins, sem er bæði skemmtilegur og krefj- andi, og er boðið upp á að spila þar 18 hol- ur. Félagsstarf klúbbsins er öflugt allt árið um kring og ættu allir aldurshópar að finna eitthvað við sitt hæfi. Í klúbbhúsum okkar er boðið upp á fyrsta flokks þjónustu fyrir félagsmenn sem og aðra gesti og er að- staðan til fyrirmyndar. Tilvalinn staður til að kynnast nýju fólki og stunda hreyfingu og útivist á sama tíma. Á okkar snærum er að finna menntaða PGA-golfkennara sem sjá meðal annars um golfkennslu fyrir fé- lagsmenn ásamt því að stýra gríðarlega metnaðarfullu barna- og unglingastarfi fé- lagsins. Félagsstarf GR Hjá Golfklúbbi Reykjavíkur er öflugt fé- lagsstarf rekið allt árið um kring sem nær hámarki yfir sumartímann þegar vellir fé- lagsins blómstra. Kylfingar á öllum aldri geta fundið eitthvað við sitt hæfi yfir vetr- artímann til að viðhalda golfáhuganum, hvort sem um er að ræða æfingar barna og unglinga, púttmótaraðir karla og kvenna, öldungastarf, mótahald eða golfnámskeið. Kvennastarf Kvennanefnd Golfklúbbs Reykjavíkur er ávallt með eitthvað á prjónunum, en þær sjá til þess að kvenkyns kylfingar klúbbs- ins hafi eitthvað fyrir stafni allt árið um kring. Starfið hefst á ári hverju með pútt- mótaröð kvenna sem leikin er frá janúar og fram í mars og lýkur með skemmtikvöldi þar sem Púttmeistari GR kvenna er krýnd- ur. Þegar golftímabilið hefst er svo leikin sumarmótaröð GR kvenna sem lýkur í ágúst. Skipulagðar eru vor- og haustferðir og fræðslukvöld auk þess sem haldin eru golfmót sem ætluð eru konum. Eldri kylfingar Eldri kylfingar klúbbsins eru iðnir við að halda golfiðkun sinni gangandi, sama hvað árstíðunum líður. Á undanförnum árum hefur öldunganefnd haldið mótaraðir yfir sumartímann sem ætlaðar eru kylfingum 50 ára og eldri. Vetrarstarf er einnig öflugt hjá eldri kylfingum klúbbsins, margir mæta alla daga og pútta og er meðal ann- ars haldið bingó einu sinni í mánuði. Golfskálar Korpúlfsstaðir eru sögulegt hús sem var upphaflega byggt árið 1930 af Thor Jensen. Hvað er í boði fyrir meðlimi? Fyrsta flokks aðstaða í klúbb- húsunum Ljósmynd/GR Frá Grafarholtsvelli. 22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020 G olfklúbbur Reykjavíkur er fjöl- mennasti golfklúbbur landsins. Fé- lagsstarfið er með fjölbreyttum hætti. Hvað keppni varðar innan klúbbsins má nefna að árlega er haldin holukeppni fyrir kylfinga þar sem há- marksfjöldi keppenda er 128 manns. Í þessari keppni er keppt með forgjöf og er mótið bæði fyrir karla og konur. Ný umferð byrjar á tveggja vikna fresti og stendur keppnin því yfir allt sumarið. Önnur keppni sem stendur allt sumarið er liðakeppni GR. Þar er um að ræða eins konar sveitakeppni innan klúbbsins. Á síðasta ári voru 20 lið sem léku í fjórum riðlum þar sem öll liðin mættust innbyrðis og tvö liðanna komust áfram í 8 liða úrslit. Síðan er leikið með útsláttarfyrirkomulagi þar til keppni lýk- ur með úrslitaleik. Eitt sem er einkennandi í GR eru hinir fjöl- mörgu hópar sem leika saman í hverri viku. Þetta eru gjarnan 8-20 manna hópar sem eiga sína föstu golfdaga og keppa sín á milli í holu- keppni, höggleik, punktakeppni eða hverju sem fólki dettur í hug. Margir þessara hópa fara saman í golfferðir erlendis. Þá eru marg- ir þessara hópa sem setja upp eins konar Ry- der-keppni sín á milli. Elítan Einn þessara hópa kallar sig Elítuna og blaðið tók Brynjar Jóhannesson stuttlega tali en hann mun vera í forsvari fyrir hópinn. Hve lengi hefur hópurinn verið starfandi? „Elítan er stofnuð 2011 með það að mark- miði að hittast vikulega og bæta sig í golfi. Við erum tuttugu félagar í Elítunni og er það virkilega samheldinn hópur sem spilar alloft fyrir utan venjulega leikdaga. Við leggjum mikið upp úr því að vera vel til fara og kaupir Elítan fatnað frá Footjoy á hverju ári sem er ávallt merktur Elítunni.“ Brynjar segir þá félaga keppa átján sinnum yfir sumarið og geta menn notað þau ellefu skipti þar sem þeim tókst best upp. „Vikulega keppum við í punktakeppni en þess utan er keppt í holukeppni en sú keppni verður að fara fram utan venjulegra leikdaga. Mótin eru átján talsins yfir sumarið og ellefu bestu gilda. Við erum líka með keppni án forgjafar til að verðlauna snjallasta kylfinginn. Einnig er keppni um hver fær flesta fugla á mótaröð- inni en í fyrra vannst sú keppni með 47 fugl- um.“ Félagarnir hafa ýmislegt fleira fyrir stafni og fara til að mynda saman til útlanda til að sinna áhugamálinu. „Elítan hefur keppt við keppnishóp sem kallar sig FH. Síðan höfum við verið með í hópakeppni GR síðustu ár. Við förum til út- landa á tveggja ára fresti og síðast var farið til Bretlands. Þetta hafa verið cirka fimm daga ferðir og mikið golf og mikil gleði í þess- um ferðum. Fámennastir í ferð höfum við ver- ið sextán en við höfum náð því að ferðast allir tuttugu saman erlendis sem er alveg frá- bært,“ segir Brynjar. Ljósmynd/GR Tuttugu manna hópur sem spilar vikulega Félagsstarfið hjá GR tekur á sig margvíslegar myndir  Bílastæði Æfingaaðstaða Búningsklefar Sturtur Frítt Wi-fi Skápageymsla Golfverslun Veitingasala Golfbílageymsla. Aðstaða sem boðið er upp á í og við klúbbhús

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.