Morgunblaðið - 21.05.2020, Qupperneq 12
S
norri Páll Ólafsson, yfirþjálfari hjá
Golfklúbbi Reykjavíkur, segir skipu-
legar æfingar hafa hafist að nýju hinn
4. maí eftir það hlé sem gert var vegna
kórónuveirunnar.
„Skipulagt íþróttastarf lá eins og margir vita í
dvala samkvæmt tilmælum heilbrigðisráðuneyt-
isins og ÍSÍ frá því í byrjun mars þar til ástandið
í samfélaginu batnaði og æfingar hófust aftur 4.
maí. Á þessu tímabili brugðum við á það ráð að
stofna heimaæfingasíðu með það að markmiði að
stytta iðkendum okkar stundir með einföldum og
skemmtilegum viðhaldsæfingum og leikjum sem
auðvelt er að gera heima fyrir án þess að um-
turna heimilinu. Iðkendur og foreldrar nýttu
þessa leið vel og voru dugleg að birta myndir eða
myndbönd af sér við æfingar á síðunni við alls
konar æfingar heima eða út í náttúrunni sem
skapaði góða stemningu miðað við aðstæður.
Eftir að skipulagðar æfingar hófust á ný hefur
aðsóknin verið mjög góð og hefur iðkendum
fjölgað á ný. Ástæðan fyrir fjölguninni liggur að
okkar mati í því að golfíþróttin hefur ákveðna
sérstöðu sem einstaklingsíþrótt án snertingar
þar sem hver og einn ber ábyrgð á sjálfum sér,
notar eigin búnað, kylfur, bolta, hanska og
fleira.“
Allir hlýða Víði
Hvernig gengur að hemja yngstu iðkendur í
takti við tilmæli yfirvalda og sóttvarnalæknis?
„Æfingar hjá börnum á grunn- og leikskóla-
aldri hafa miðast við 50 manna fjöldatakmörkun
og hafa yngstu kylfingarnir staðið sig frábær-
lega við að fylgja öllum fyrirmælum og eru þau
afar þakklát fyrir að fá að stunda æfingar og
hitta vini sína og vinkonur á nýjan leik á golfvell-
inum.
Á æfingatíma gilda skýrar reglur og förum við
eftir tilmælum yfirvalda í einu og öllu ásamt því
að sérstakar reglur hafa verið gefnar út fyrir æf-
ingasvæði og hefðbundinn leik á golfvöllum til að
útiloka sem flesta snertifleti og lágmarka smit-
hættu.
Eins og áður sagði er golfið leikur án snert-
ingar og hefur því fátt breyst í uppsetningu æf-
inga hjá okkur þjálfurunum fyrir utan það að við
höldum notkun æfingatækja í lágmarki. Auðvelt
er að halda fjarlægðarviðmiðum og hver og einn
getur fengið sitt verkefni á æfingunni. Maður
finnur því til með iðkendum og þjálfurum úr öðr-
um íþróttagreinum sem krefjast mikillar nándar
og snertingar og erfitt getur verið að búa til
keppnislíkar æfingar.
Íslendingar horfa hýru auga til golfíþrótt-
arinnar um þessar mundir og hafa æfingasvæði
og golfvellir verið fullir af reyndum kylfingum í
bland við nýliða þar sem fleiri og fleiri horfa á
golfið sem spennandi kost fyrir komandi sumar.“
Fyrstu skrefin geta verið ódýr
Snorri segir misskilnings gæta varðandi kostnað
fyrir byrjendur í yngri aldurshópum.
„Það er mikill misskilningur að nýliðar þurfi
að kosta miklu til með því að eiga fullt golfsett,
golfpoka, golfkerru o.fl til þess að geta stigið
fyrstu skrefin í íþróttinni. Í flestum tilvikum er
hægt að fá kylfur lánaðar eða leigðar á æf-
ingasvæðum og til þess að geta lært grunnatriði
leiksins þarf viðkomandi einungis eina járnkylfu
og pútter til þess að geta leikið og æft golf af
krafti og bætt svo hægt og rólega í vopnabúrið
eftir því sem áhugi og geta eykst. Starfsfólk golf-
verslana er fagfólk á sínu sviði og gefur kylf-
ingum á öllum aldri og getustigum góð ráð við
kaup á kylfum og búnaði.
Gott er að leita ráða hjá PGA-menntuðum
golfkennara áður en farið er í golfverslunina þar
sem golfkennarinn hefur góða yfirsýn og þekk-
ingu á því yfir hvaða búnaður hentar hverjum og
einum best. Samvinna kylfingsins, kennarans og
golfverslunarinnar tryggir að kylfingurinn hefur
forsendur til að gera góð kaup og fyrir vikið
verður ánægjan af leiknum meiri.“
Uppbyggileg gildi í golfinu
Ýmislegt í golfíþróttinni er hollt að tileinka sér,
jafnt fyrir unga sem aldna. Þar er lagt upp með
að sýna keppinautum tillitssemi og virðingu.
„Golfið kennir okkur gildi og siði sem við tök-
um með okkur út í lífið. Golfið er einstaklingsí-
þrótt þar sem hver og einn ber fulla ábyrgð á
sjálfum sér í leik og keppni. Við leggjum mikið
upp úr því að iðkendur læri golfreglurnar og siði
frá byrjun og hafi sterkar fyrirmyndir fyrir
framan sig í okkar bestu kylfingum.
Golfið er oft kallað heiðursmannaíþrótt vegna
þeirra siða sem tíðkast innan vallar meðan á leik
stendur. Í keppni segja meðspilarar til nafns,
takast í hendur og óska hvor öðrum góðs gengis
áður en leikur hefst. Ef bolti er sleginn utan
brautar hjálpast kylfingar að við að leita að bolt-
anum óháð því að þeir séu að keppa sín á milli
um að leika á sem fæstum höggum. Ef kylfingi
tekst vel til og á gott högg fær hann hrós frá
meðspilurum sínum og skapast þannig virðing
milli kylfinganna þótt mikil barátta og spenna
geti verið í keppninni.
Kylfingur nýtur trausts meðspilara sinna við
að gefa upp rétt skor og fara eftir reglum leiks-
ins í einu og öllu. Það er mjög einfalt að hafa
rangt við í golfi með því að hagræða skori eða t.d.
laga legu boltans þegar enginn sér til, slík hegð-
un er ekki liðin og heyrir til undantekninga að
slík dæmi komi upp. Að hringnum loknum takast
kylfingar í hendur og þakka fyrir leikinn óháð
því hvernig keppnin eða leikurinn fór.
Það krefst aga að fara eftir leikreglum og sið-
um golfíþróttarinnar en það eru aftur á móti
þessar reglur og siðir sem gæða íþróttina þeim
sjarma sem hún býr yfir. Öll getum við dregið
lærdóm af þeim siðum og gildum sem golfið
kennir okkur og nýtt okkur hvort sem það er í
daglegu lífi, skóla, vinnu eða almennum sam-
skiptum.“
Ýmislegt innifalið í gjaldinu
Æfingar á sumrin fara að mestu fram í Graf-
arholtinu.
„Hjá GR eru skipulagðar æfingar með PGA-
menntuðum þjálfurum í boði allt árið og þar sem
börnin geta sótt 3 til 4 æfingar í viku auk ýmissa
viðburða og fræðslu. Æfingar fara að mestu
fram í Grafarholti á sumrin, bæði í Básum og á
æfingasvæði í kringum Bása.
Við bjóðum einnig upp á innanfélagsmótaröð
fyrir börn og unglinga í samstarfi við Icelandair
Cargo sem hefur slegið í gegn undanfarin ár með
góðri þátttöku. Leikin eru 10 mót yfir sumarið
þar sem skipt er í flokka eftir aldri og getu og fá
börn og unglingar eldskírn sína í keppnisgolfi á
heimavelli sínum í ráshópum með æfinga-
félögum sínum. Aðstaðan í Grafarholti er á
heimsmælikvarða og er vel nýtt af yngri kylfing-
unum á æfingatíma og utan æfingatíma.
Innifalið í æfingagjöldum barna og unglinga
18 ára og yngri er meðal annars fullur aðgangur
að golfvöllum GR í Grafarholti og á Korpu. Að-
gangur að allri æfingaðstöðu GR utan skipu-
lagðra æfinga auk skemmtilegra viðburða,
fræðslu og að sjálfsögðu þjálfunar í höndum
PGA-menntaðra golfkennara árið um kring.“
Annað heimili yfir sumartímann
Dagurinn á golfvellinum er rétt að byrja hjá
krökkunum þegar skipulagðri æfingu er lokið
fyrri partinn.
„Með miklu aðgengi að aðstöðunni og golfvöll-
unum hefur orðið til þannig menning að venju-
legur sumardagur hjá barni eða unglingi í GR
byrjar á skipulagðri æfingu fyrri part dags með
þjálfurum. Að henni lokinni er börnunum frjálst
að gera það sem þau kjósa og verja mörg þeirra
heilu og hálfu dögunum á golfvellinum og æf-
ingasvæðunum. Foreldrarnir vita af börnunum í
traustu umhverfi yfir daginn við ástundun á upp-
byggilegri iðju í góðum félagsskap.
Er þetta stór liður í þeim góða árangri sem
náðst hefur undanfarin ár og þeim góða anda
sem býr í barna- og unglingastarfinu þar sem
krakkarnir mynda vinatengsl og draga hvert
annað áfram við æfingar og spil utan skipulagðra
æfinga með þjálfurum. Flestir krakkar taka með
sér gott nesti fyrir daginn á golfvellinum en veit-
ingamenn í golfskálum á Korpu og í Grafarholti
hafa auk þess verið okkur vinveittir með því
bjóða upp á afsláttarkort fyrir börn og unglinga,
18 ára og yngri, sem veitir aðgengi að hollum og
góðum mat á frábærum kjörum. Nauðsynlegt er
að nærast til þess að halda dampi við æfingar og
spil.“
Einnig æft á veturna
Snorri segir fólk oft vera undrandi á því hversu
mikið er æft á veturna í ljósi staðsetningar Ís-
lands á hnettinum.
„Það vekur kannski undrun þeirra sem stunda
ekki golf að við sláum ekki slöku við yfir veturinn
og sækir fjöldi barna æfingar innanhúss á Korp-
úlfsstöðum og í Básum. Foreldrafélag GR heldur
svo úti púttmótaröð fyrir börn og foreldra alla
sunnudaga frá áramótum og fram að vori þar
sem góð stemning myndast. Setjast börn og for-
eldrar niður í mótslok og fá sér hressingu saman.
Æfingasvæðið í Básum tók nýlega í gagnið
radarmælingabúnað sem heitir Trackman
Range og geta kylfingar fengið mikilvægar upp-
lýsingar um öll slegin högg í gegnum síma eða
spjaldtölvu ásamt því að fara í skemmtilega leiki
og keppnir. Fljótlega verður hægt að spila sýnd-
argolf í gegnum búnaðinn þar sem í boði verður
að leika marga af bestu völlum heims ásamt
Korpúlfstaðavelli og Grafarholtsvelli í gegnum
snjalltæki í Básum. Þessi tækni hefur vakið
mikla lukku hjá yngri kylfingum okkar og hefur
þetta nýst okkur þjálfurunum vel við að gera æf-
ingarnar yfir vetrartímabilið markvissari og um-
fram allt skemmtilegri fyrir iðkendur okkar.
GR hefur einnig skipulagt og sótt æfingaferðir
erlendis að vori til undanfarin 10 til 12 ár. Þar
sameinast iðkendur og foreldrar við að fínslípa
golfleikinn á grænu grasi við bestu aðstæður áð-
ur en golfvellirnir eru opnaðir og sumartímabilið
hefst formlega heima á Íslandi. Börnin eru í
skipulögðum æfngum og spili með þjálfurum sín-
um frá morgni til kvölds og foreldrar leika golf
eða njóta sólarinnar samhliða,“ segir Snorri Páll.
Morgunblaðið/Hari
Snorri Páll Ólafsson í sínu náttúrulega umhverfi í Grafarholti þar sem lífið snýst um golf.
Uppbyggileg iðja í traustu umhverfi
Öll getum við dregið lærdóm
af þeim siðum og gildum sem
golfið kennir okkur, að sögn
yfirþjálfarans
Snorri Páll Ólafsson
» Yfirþjálfari barna-, unglinga- og af-reksstarfs GR.
»Menntaður PGA-kennari og hefurkomið að þjálfun og öðrum störfum
innan GR undanfarin 15 ár.
»Meðlimur í GR síðan 1995 og fórsjálfur í gegnum barna unglinga- og
afreksstarf GR sem ungur kylfingur.
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Af hverju fóruð þið að æfa golf?
Eiríka: Af því að Gabríella systir mín var að æfa.
Gabríella: Pabbi var oft í golfi og ég prófaði að fara
stundum með honum og fannst skemmtilegt.
Hvað hafið þið æft lengi?
Eiríka: Rúmt ár.
Gabríella: Rétt rúm 2 ár.
Hvaða högg finnst ykkur skemmtilegast að
æfa?
Eiríka: Högg með driver.
Gabríella: Púttin og högg með driver.
Hvar þurfið þið helst að bæta ykkur í golfinu?
Eiríka: Í púttunum,vippunum og að bæta sveifluna.
Gabríella: Í flestu en aðallega að bæta sveifluna.
Uppáhaldskylfan í pokanum?
Eiríka: 9-járnið.
Gabríella: Hybrid-kylfan.
Hvenær náðuð þið fyrst að fara undir 100 högga
hring?
Eiríka: Ekki enn náð því.
Gabríella: Snemma í fyrrasumar.
Besta skorið á 18 holu hring?
Eiríka: Ekki enn spilað 18 holu hring.
Gabríella: 89 högg í Grafarholtinu.
Hver er fyrirmyndin í golfinu?
Eiríka: Rory McIlroy.
Gabríella: Ólafía Þórunn.
Hvað ráðleggið þið krökkum sem langar að æfa
golf?
Eiríka: Ég myndi segja þeim að það er geggjað
gaman.
Gabríella: Að vera þolinmóð og hafa gaman.
Iðkendur í barna- og unglingastarfi GR
Systurnar Eiríka Malaika Stefánsdóttir 7 ára
og Gabríella Neema Stefánsdóttir 12 ára
Ljósmynd/GR Ljósmynd/GR