Bæjarins besta

Tölublað

Bæjarins besta - 06.01.1987, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 06.01.1987, Blaðsíða 1
6. JANÚAR 1987 4. ÁRGANGUR H-PRENT SF. BLAÐAÚTGÁFA, ÖLLALMENN PRENTÞJÓNUSTA. - .-.u íþróttamaður ísafjarðar 1986 Helga Sigurðardóttir íþróttamaður ísafjarðar 1986 var kosin sundkonan Helga Sigurðar- dóttir. Helga hefur æft sund um sex ára skeið. Nú er hún önnur besta sprettsundkona landsins. Hún hefur öðlast fastan sess í landsliði íslands i sundi. Á síðastliðnu ári keppti hún tvisvar með landsliðinu. Annars vegar í Kalottkeppninni sem nú fór fram í Finnlandi og (sland vann í fyrsta sinn,_ og hins vegar í lands- keppni (ísland-írland-Luxemburg) sem fram fór í Ulster á Norður-írlandi í júní. Með sundsveit stúlkna í Vestra hefur Helga Sigurðardóttir sett fjölmörg islandsmet í boðsundum. Að sjálfsögðu var hún í sigurliði Vestra sem varð efst í 1. deild SSÍ í vetur. Helga hefur flest stig einstaklinga á Vestfjörðum samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu um árangur í sundi. Hún á öll Vestfjarðamet í skriðsundi oq fiór- sundi. Helga Sigurðardóttir er fjölhæf sundkona, stundar æfingar mjög vel og er einbeitt og ákveðin. Forseti bæjarstjórnar ísafjarðar afhenti Helgu farandbikar íþrótta- manns ísafjarðar í hófi er bæjarstjórn hélt í Félagsheimilinu í Hnífsdal daginn fyrir gamlársdag. Einnig fylgir sæmd þessari viðurkenningarskjal og nokkur peningaupphæð. H-Lúx gæðaframköllun Ef þú vilt filmunni þinni það besta velurðu H-Lúx framköllun POLLINN HF ■ Verslun sími 3792 — Raf þjónusta sími 30921 0

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.