Bæjarins besta

Tölublað

Bæjarins besta - 06.01.1987, Blaðsíða 4

Bæjarins besta - 06.01.1987, Blaðsíða 4
4 BÆJARINS BESTA Aramót Um áramót rifja menn gjarnan upp atburði liðins árs og rýna í framtíðina. Sjómennska — Fisk- vinnsla — Fórnir Árið 1986 var Vestfirðingum að mörgu leyti gott. Afli var góður og útflutningur gámafisks og sigl- ingar skipa utan með afla færðu sjómönnum góðar tekjur. Skömmu fyrir jól tók Ægir fórnir sínar úr hópi vestfirskra sjó- manna. Slíkir atburðir snerta alla mjög djúpt. Öllum aðstand- endum þeirra sem saknað er af Tjaldi eru færðar dýpstu samúðarkveðjur. Þetta válega slys ásamt því að Suðurland fórst tæplega 300 mílur austnorð- austur af Langanesi og strandi breska skipsins Synetu hljóta að vekja okkur öll til umhugsunar um öryggismál sjómanna. Án sjósóknar fær þjóð okkar ekki þrifist á íslandi. Engum blöðum er um það að fletta að sjósókn og fiskveiðar eru undirstaða byggð- ar á Vestfjörðum. Þrátt fyrir velsæld sjómanna verður ekki sagt að fiskverkunar- fólk í landi hafi notið góðs af í sama mæli. Byggð á Vestfjörðum á í vök að verjast. Þar kemur margt til. Einkum hafa Suðureyri og Flateyri átt við fólksfækkun að etja. Tölur um íbúafjölda lands- manna liggja enn ekki fyrir. Hitt kann að vera, að lakari launakjör í fiskvinnslu og ótryggari atvinna eigi hér einhvern þátt að. Verkfall sjómanna. Á sama tíma og kjör sjómanna virðast góð boða þeir nú til verk- falls. Því miður virðast hvorki sjó- menn né útgerðarmenn ætla að gefa nokkuð eftir. Eitt virðast þó báðir aðilar sammála um, að reyna að halda skipum á sjó þegar verkfall gengur í garð. Sjálfsagt er afstaða manna eitt- hvað mismunandi. En óvenju mörgum skipum er ætlað að landa erlendis á næstu dögum og vikum. Það skyldi þó aldrei vera að áhugi sjómanna á verk- falli sé minni í raun heldur en ætla mætti við fyrstu sýn. Enda er það tæpast í anda sjósóknar að fara í verkfall. Ágreiningur virðist vera all- mikill í hópi útgerðarmanna vegna verkfallsboðunar. Töluvert hlýtur að þurfa til að formaður félags þeirra sjái sig knúinn til að segja af sér leiðtogahlutverkinu. Það er Ijóst að dragist verkfall sjómanna á langinn hefur það mikil áhrif á þjóðlífið og þau áhrif verða ekki síst merkjanleg á Vestfjörðum. Kosningar að baki — kosningar framundan Nýliðið ár var kosningaár. Sveitarstjórnarkosningar fóru fram síðasta dag maímánaðar. Um úrslit þeirra eru sjálfsagt skiptar skoðanir. En það er makalaust hvernig flokksbrodd- arnir geta lesið allt gott út úr niðurstöðunni, hvort sem flokkar þeirra eru í vörn eða sókn. Sennilega er það markverðast að í heildina tekið töpuðu ríkis- stjórnarflokkarnir fylgi og Alþýðu- flokkur sótti á. Hins vegar varð veldi Sjálf- stæðisflokks ekki hnikað í Reykjavík og þeim nágranna- bæjum þar sem tök hans hafa verið sterkust. Niðurstöður sveitarstjórnar- kosninganna hafa margir viljað túlka sem stórsókn Jóns Baldvins Hannibalssonar. Þó verður ekki séð að stefnu hans hafi orðið sérstaklega vart þar sem fylgismenn hans hafa komist til valda. Vandamál sveitarfélaganna hafa ekki orðið auðleysanlegri að loknum kosn- Tilboð óskast Tilboð óskast í DAIHATSU CHARADE í því ástandi sem hann er í eftir tjón. Upplýsingar gefur Jón Halldórsson. PÓLUNN HF. mú SÍMI 3092 ingum. Nú styttist óðum í alþingis- kosningar. Menn telja sig hafa séð „skriftina á veggnum". Þar standi væntanlega sú stefnu- breyting, sem sést hafi 1. júní síðastliðinn er talið var upp úr kjörkössum. Auðvitað er alltaf vandi að spá um óorðna hluti. Kosningareglum hefur verið breytt, þingmönnum hefur verið fjölgað, mest á Reykjanesi og í Reykjavík, en ekki í fámennari kjördæmum ef frá er talið tvennt. Fjölgun verður í Norðurlandi eystra um einn og svo er ,,hlaup- arinn“ eftir. Hann er talinn munu lenda hjá ,,smáflokki“. Væntan- lega verður einum flokki færra í framboði, a.m.k. á Alþingi. Bandalag jafnaðarmanna kom ,,heim“ með eftirminnilegum hætti á árinu. Þeir sem eftir sitja munu tæpast hafa bolmagn til framboðs, a.m.k. má telja víst að þeir nái ekki þingmönnum kjörnum. Kvennalistinn virðist ekki á förum. Nýir þingmenn Vestfirðinga Líklegt má telja að annar hvor þeirra Péturs Bjarnasonar eða Kristins H. Gunnarssonar sitji sem nýr fulltrúi Vestfirðinga að loknum kosningum á Alþingi. Pétur náði góðum árangri í skoðanakönnun Framsóknar- flokks og Kristinn hjá Alþýðu- bandalagi. Sá síðarnefndi heldur þar áfram á braut sem virðist hafa verið mörkuð í sveitar- stjórnarkosningum. Fremur ólík- legt virðist að aðrir komi til greina sem nýir þingmenn ef tekið er mið af framsókn krata í fyrra. Þjóðarhagur 1S87 Allar ytri aðstæður gefa til kynna bættan efnahag á árinu. En ýmislegt getur breytt þróuninni. Ef verkfall sjómanna verður lang- vinnt kann það að hafa áhrif til hins verra. Svo verður þó von- andi ekki. Bág staða dollara kann að gera okkur einhvern óleik. En það sem á veltur kann að vera niðurstaða alþingiskosninga, ríkisstjórnarmyndun í framhaldi af því og sú stjórnarstefna sem verður mótuð og fylgt. Vestfirðingar eiga mikið undir því að ríkisstjórn og Alþingi veiti okkur rýmra frelsi í sjósókn þannig að þau gæði sem við höfum aðgang að komi fjórð- ungnum að fullum notum. Jafn- framt er Ijóst að taka þarf tillit til sérstöðu okkar frekar en gert hefur verið. Verði það er ekki annað að sjá að hagur Vestfirðinga verði góður á byrjuðu ári. Gleðilegt nýtt ár og megi árið verða öllum farsælt. Kaupfélag ísfirðinga Matvöruverslanir Við eigum ávallt til allar almennar matvörur Gerið verðsamanburð Það er ykkar hagur Verið velkomin Gleðilegt ár! Matvöruverslanir Kaupfélags Isafjarðar

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.