Bæjarins besta

Útgáva

Bæjarins besta - 06.01.1987, Síða 5

Bæjarins besta - 06.01.1987, Síða 5
5 BÆJARINS BESTA Lífið er vídeó og spilað hratt! Síðbúnar myndir úr Vídeohöllinni Elstu menn muna eftir kross- gátukvikindi sem birtist hér í blaðinu í lok septembermánaðar anno Domini MCMLXXXVI (á því herrans ári 1986). Fljótlega var dregið um verðlaun, sem voru myndbönd að láni hjá Vídeo- höllinni við Norðurveg (í Hæsta- kaupstað). Örn Sveinbjarnarson fékk þrjátíu spólur, en Linda Steingrímsdóttir tuttugu. Nú á bak jólum varð loksins af því að við tækjum myndir af hinum lukkulegu, ásamt Stein- þóri Kristjánssyni (Dúa) eiganda Vídeohallarinnar. Óhætt er að segja að hratt flýr stund! Linda Steingrímsdóttir með tuttugu spóiur, og Dúi horfir á með vel- þóknun. Örn Sveinbjarnarson fer iétt með þrjátíu spólur. SKRIFSTOFUSTARF Óskum eftir að ráða starfsfólk til skrifstofu- starfa sem allra fyrst. Um er að ræða fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja reynslu af tölvuvinnu. Allar nánari upplýsingar veittar á staðnum. Vélsmiðjan Þór h.f. Sími 3711 Stakkanes. Húsin verða tilbúin undir tréverk og frá- gengin að utan í október 1987. Húsin eru 174,5 ferm. brúttó. Á neðri hæð er anddyri, þvottahús, forstofa, 3 svefn- herbergi, bað og gestasnyrting. Á efri hæð er eldhús, borðstofa og stofa. í bíla- geymslu sem er 29,6 ferm er geymsla. Auk þess er garðstofa sem er 13 ferm. Búið er að steypa sökkla og plötur. Verð húsanna er kr. 3.850.000 (verðtryggt). Út- borgun kr. 500.000. Hámarkslán Húsnæðisstofnunar er nú 2.362.000. Við kaup í annað sinn kr 1630000 G. Þórðarson Sunnuholti 1 Sími 3888

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.