Vísbending


Vísbending - 13.11.2020, Blaðsíða 2

Vísbending - 13.11.2020, Blaðsíða 2
2 V Í S B E N D I N G • 4 2 . T B L . 2 0 2 0 Eiginfjárkröfur og breytingar á þeim vegna COVID-19-farsóttarinnar1 Hvað er fjármálastöðugleiki og af hverju skiptir hann máli? 1 Í þessari grein er stuðst við skýrslu Alþjóðargjaldeyrissjóðsins Main operational aspects for macroprudential policy relaxation og grein Alþjóðlega greiðslubankans Basel Committee coordinates policy and supervisory response to Covid-19. 2 Sjá frekar um fjármálasveifluna í riti Seðlabanka Íslands Fjármálastöðugleiki 2020/2. Fjármálaáfallið 2008 undirstrikaði mikilvægi þess að seðlabankar horfi til fjármálastöðugleika sem sjálfstæðs markmiðs til að stuðla að efnahagslegum stöðugleika. Fyrir þann tíma höfðu margir seðlabankar eitt markmið, að stuðla að stöð- ugu verðlagi, og eitt stýritæki, vexti. Fjár- málaáfallið varpaði ljósi á að stöðugt verðlag eitt og sér tryggði ekki fjármálastöðugleika. Í fjármálastöðugleika felst að fjármálakerfi getið staðist áföll í efnahagslífinu og á fjár- málamörkuðum en heilbrigt fjármálakerfi er nauðsynleg forsenda hagvaxtar og virkrar stefnu í peningamálum. Þjóðhagsvarúð snýr að því að varðveita stöðugleika fjármálakerfis- ins í heild með því að takmarka kerfisáhættu, styrkja viðnámsþrótt fjármálastofnana og lágmarka hættu á fjármálaáföllum. Til að ná markmiðum þjóðhagsvarúðar geta seðla- bankar beitt þjóðhagsvarúðartækjum sem eru afar fjölbreytt. Dæmi um slík tæki eru eigin- fjáraukar á fjármálafyrirtæki, aðrar aðgerðir sem takmarka áhættutöku fjármálafyrirtækja, hámark á áhættutöku einstakra lánþega og takmarkanir á frjálsu fjármagnsflæði. Á undanförnum árum hafa seðlabankar innleitt margskonar þjóðhagsvarúðar- og eindarvar- úðarreglur í gegnum Basel-regluverkið en munur er á milli landa varðandi innleiðingu þeirra. COVID-19-farsóttin hefur haft áhrif á ýmsa þætti sem snúa að fjármálastöðugleika. Efnahagshorfur í heiminum versnuðu til muna í kjölfar útbreiðslu veirunnar í byrjun árs og dróst efnahagsstarfsemi saman. Tekjur margra fyrirtækja drógust saman vegna ferða- takmarkana, samkomubanns og afleiddra áhrifa og atvinnuleysi jókst hratt á skömmum tíma. Útlit er fyrir að baráttan við farsóttina verði langdregnari en áður var gert ráð fyrir, með neikvæðum áhrifum á stöðu heimila og fyrirtækja og þar af leiðandi á útlánagæði í fjármálakerfinu. Tekjufall meðal einstak- linga og fyrirtækja dregur úr getu þeirra til að greiða skuldir og eykur þannig útlánaá- hættu fjármálafyrirtækja. Vandi fyrirtækja er ekki aðeins bundinn við tekjusamdrátt heldur munu mörg fyrirtæki koma mjög skuldsett úr núverandi efnahagssamdrætti. Aukin útlánaáhætta banka getur dregið úr vilja þeirra til lánveitinga en nú þurfa mörg fyrirtæki aukna fjármögnun til að yfirstíga tímabundið tekjufall. Efnahagslægðin gæti orðið dýpri ef fjármálafyrirtæki draga veru- lega úr nýjum útlánum. Viðbrögð stjórnvalda vegna áhrifa veirunnar hafa verið umtals- verð þar sem þau hafa reynt að viðhalda atvinnustigi og kaupmætti og seðlabankar hafa aukið svigrúm fjármálafyrirtækja til nýrra lánveitinga og endurskipulagningar á áður veittum útlánum. Slökun á aðhaldi fjármálastöðugleika- og peningastefnu getur hreyft við eigna- mörkuðum tímabundið og blásið lífi í fjármálasveifluna á sama tíma og aðhald fjármálastöðugleikastefnunnar er minna en áður og þannig ógnað fjármálastöðugleika til lengri tíma. Slíkar tilslakanir auka aðgengi að ódýru fjármagni og geta hvatt til óhóflegs skuldavaxtar. Hérlendis má sjá þessara áhrifa gæta á fasteignamarkaðnum sem hefur haldist kröftugur á tímum efnahagssamdráttar og mikillar óvissu. Hagstæðari kjör húsnæðis- lána ásamt stöðugum kaupmætti hafa aukið eftirspurn heimila eftir óverðtryggðum húsnæðislánum með breytilegum vöxtum. Í slíkum aðstæðum eru heimilin sérstak- lega berskjölduð fyrir vaxtahækkunum þar sem lítil vaxtahækkun getur verulega aukið greiðslubyrði lána. Viðbrögð Seðlabanka Íslands á sviði fjármálastöðugleika við COVID-19 Seðlabanki Íslands hefur brugðist við efna- hagslegum afleiðingum farsóttarinnar með tilslökun á þjóðhagsvarúðarstefnu sinni. Seðlabankinn lækkaði meðaltalsbindiskyldu innlánsstofnana úr 1% niður í 0% til að rýmka lausafjárstöðu fjármálafyrirtækja og auka svigrúm þeirra til að bregðast við breyttum aðstæðum í þjóðarbúskapnum. Lausafjárhlutföll kerfislega mikilvægra banka hækkuðu því á vormánuðum ársins. Sveiflujöfnunarauki var afnuminn í mars er hann var færður úr 2% niður í 0%. Sam- hliða lækkuninni gaf bankinn til kynna að eiginfjáraukinn yrði óbreyttur að minnsta kosti í ár. Eiginfjáraukar Eiginfjáraukar teljast til þjóðhagsvarúðartækja og eru þeir viðbótareiginfjárkrafa umfram lág- markskröfu sem eftirlitsaðilar setja á fjármála- fyrirtæki. Á grundvelli Basel-regluverksins eru eiginfjáraukarnir fjórir; verndunarauki, sveiflujöfnunarauki, eiginfjárauki vegna kerfislægs mikilvægis og eiginfjárauki vegna kerfisáhættu. Nokkur munur er á milli landa varðandi það hvaða eiginfjáraukar hafa verið innleiddir og hve langt hefur verið gengið hvað töluleg viðmið varðar. Slökun á eigin- fjárkröfum eykur svigrúm fjármálafyrirtækja til að takast á við vænt útlánatöp ásamt því að veita svigrúm til nýrra lánveitinga til heimila og fyrirtækja. Sveiflujöfnunarauki er breytilegur eig- infjárauki sem ætlað er að mæta langtíma sveiflutengdri kerfisáhættu. Eiginfjárauk- ann á að byggja upp samhliða upptakti fjármálasveiflunnar og búa þannig til svig- rúm til lækkunar þegar sveiflan snýst. Fjár- málasveiflan er samsettur mælikvarði sem lýsir þróun ýmissa undirliða líkt og skulda- sveiflu, húsnæðissveiflu og fjármögnunar- sveiflu.2 Þegar sveiflutengd kerfisáhætta raungerist er það hlutverk eftirlitsaðila að aflétta kröfunni í heild eða að hluta til að greiða fyrir lánsframboði og milda þannig áhrif fjármálasveiflna á hagkerfi. Sveiflu- jöfnunaraukinn getur numið 0 til 2,5% af áhættugrunni en heimilt er að gefa auk- anum gildi hærra en 2,5% gefi áhættuþættir sem liggja til grundvallar því mati tilefni til. Áhættugrunnur er reiknaður með því að vega eignir banka með áhættuvogum í samræmi við Basel-staðalinn. Eiginfjárauki vegna kerfisáhættu, kerfis- áhættuauki, á að draga úr áhrifum af ósvei- flutengdri, langtíma kerfisáhættu sem getur haft neikvæðar og alvarlegar afleiðingar fyrir fjármálakerfið og hagkerfið. Gildi kerfisáhættuaukans getur numið 0 til 3% af áhættugrunni. Á Íslandi hefur aukanum verið beitt til að vega á móti kerfisáhættu sem er tilkomin vegna sérkenna íslenska hag- kerfisins, sem er lítið, útflutningsdrifið og opið hagkerfi, með fáar útflutningsgreinar og sjálfstæðan gjaldmiðil. Kerfisáhættuaukinn er í dag 3% á Íslandi. Verndunarauki er eiginfjárauki sem Seðlabankinn getur ekki slakað á vegna Kristín Arna Björgvinsdóttir hagfræðingur hjá fjármála- stöðug leika sviði Seðlabankans

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.