Vísbending


Vísbending - 13.11.2020, Qupperneq 4

Vísbending - 13.11.2020, Qupperneq 4
Ritstjóri: Jónas Atli Gunnarsson Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir Útgefandi: Kjarninn miðlar ehf., Fiskislóð 31 B, 101 Reykjavík Sími: 551 0708 Net fang: visbending@kjarninn.is Prentun: Kjarninn Öll réttindi áskil in. © Ritið má ekki afrita án leyfis út gef anda. Aðrir sálmar 4 V Í S B E N D I N G • 4 2 . T B L . 2 0 2 0 Fyrirsjáanleg kyrrstaða Donald Trump fráfarandi Bandaríkja-forseti hefur oft vísað til góðs gengis hlutabréfamarkaðarins vestanhafs sem sönnun þess að efnahagsstefna hans hafi skilað árangri. Það er því nokkuð kaldhæðn- islegt að flestar bandarískar hlutabréfavísi- tölur hækkuðu eftir að ljóst varð að Joe Biden hafði sigrað í nýafstöðnum forseta- kosningum þar í landi um síðustu helgi. En hvernig ætti að túlka þessa nýlegu hækkun? Þýðir hún að meiri vonir séu bundnar við hagkerfið undir stjórn Biden heldur en Trump? Líklega ekki. Gengi hlutabréfa er nefnilega slæmur mælikvarði á efnahagslífið, þar sem það er drifið áfram af væntingum fjárfesta á gengi fyrirtækja en ekki efnahagsstærðum líkt og verðbólgu, atvinnuleysi og ójöfnuði. Þetta hefur sést vel á undanförnum mánuðum þegar sögulega djúp kreppa hefur skollið á í flestum ríkjum heimsins á meðan tiltölulega lygnt hefur verið á hlutabréfamörkuðum. Á hinn bóginn gæti hlutabréfahækk- unin þýtt að fjárfestar hafi meiri trú á vexti fyrirtækja í stjórnartíð Biden. Það lítur ekki vel út fyrir Trump, sem hefur reitt sig á stuðning frá tekjuháum Bandaríkja- mönnum með skattalækkunum, auk þess sem hann hefur varað við efnahagskreppu ef Biden yrði kosinn forseti. Tvær ástæður gætu legið að baki bjart- sýni atvinnulífsins fyrir komandi kjör- tímabili vestanhafs. Annars vegar yrði forsetatíð Biden fyrir- sjáan legri en fjögur ár í viðbót með Trump. Fjárfestum er að jafnaði illa við óvissu og því er mögulegt að þeir vilji hefðbundnari stjórnmálamann til þess að koma í veg fyrir hana, þrátt fyrir að hinn bjóði skattalækkanir. Einnig virðist nú sem Repúblikanaflokk- urinn gæti haldið meirihluta í öldunga- deildinni, sem þýðir að fá lagafrumvörp úr fulltrúadeildinni, þar sem demókratar hafa meirihluta, myndu komast í gegn. Þar af leiðandi væri ólíklegt að miklar skattahækk- anir á fjármagnseigendur séu í vændum. Með fyrirsjáanleika og kyrrstöðu geta bandarískir fjárfestar því andað léttar, sennilegt er að hagsmunum þeirra verði gætt með Biden sem Bandaríkjaforseta og repúblikana í öldungadeildinni. Hvort það sé óskastaða bandarísku þjóðarinnar er svo önnur spurning. framh. af bls. 1 er að það sinni því hlutverki að koma í veg fyrir að þeir framleiðsluþættir sem nú liggja í dvala verði of veikburða til að taka þátt í viðspyrnunni. Annars verður búið að hleypa of miklum peningum inn í kerfið til skamms og langs tíma, því framleiðslu- og þjónustugetan í hagkerfinu vex ekki nógu hratt til að bakka upp aukakrónurnar. Ef peningarnir eru illa nýttir þarf að taka þá aftur úr umferð og það tiltölulega hratt. Eru viðbótar húsnæðisskuldir upp á rúmlega 100 ma. kr. góð nýting á pen- ingum? Ein miðlunarleið peningastefnu eru auðsáhrif af völdum hækkandi eignaverðs. Fólk upplifir sig ríkara og eyðir þá meiri peningum. Auðsáhrif eru í eðli sínu veikari en áhrif af því að koma fjármagni beint til fólks. Auk þess liggur það fyrir að jafnvel þó auðsáhrifin væru mjög sterk í dag þá dreifast þau ekki um kerfið sem skyldi. Við lifum í tvískiptum heimi í dag; heimi snertinga og snertilausra aðstæðna. Þeir sem reka starfsemi sem felur í sér snertingu fá ekki viðskipti. Þar er tekjufallið. Því er hætta á að auðsáhrifin, ef þau verða ein- hver, skili sér ekki yfir til þeirra sem þurfa á fjármagni að halda. Á tímum þar sem neyðin er mikil og tíminn lítill er óskynsamlegt að treysta á langsótta miðlun í gegnum eignamarkaði. Stærsti hluti þessa fjármagns ratar ekki út í raunhagkerfið heldur veltist um á hús- næðismarkaði manna á milli án úttektar. Af þeim 110 ma. kr. sem hafa bæst við hús- næðisskuldir má ætla að í mesta lagi 15% hafi runnið til nýbygginga m.v. sögulegar tölur. Þá mætti gera ráð fyrir að um 10% af því sem eftir standi fari í framkvæmdir á keyptu húsnæði. Eftir sitja þá um 85 ma. kr. sem rata aðeins í hækkandi eignaverð. Þetta hefur ekkert með nauðsynlegan stuðning að gera á núverandi krísutímum. Þetta er helber örvun. Eðlilegt er að vilji sé fyrir því að koma í veg fyrir frjálst fall á eignamörkuðum og líklega situr síðasta krísa eftir í sumum, sér í lagi hvað varðar lækkanir á húsnæðisverði. En þetta er ekki 2008. Hér var ekki alltof mikil húsnæðisskuldsetning, hér hefur almennur kaupmáttur ekki hrunið, eða almennt eignaverð. Fólk er atvinnulaust og nokkrar atvinnugreinar tekjulausar. Eðli- legra væri að styðja við eignamarkaði með því að hlúa að grunnstoðunum; tekjuvexti hagkerfisins, mannauði, framleiðslugetu og atvinnustigi fremur en að örva hagkerfið óbeint með skuldsetningu í einkageiranum. Það er eitt að lækka vexti sem dregur úr greiðslubyrði allra, líka þeirra sem ekki voru í vanda vegna tekjumissis. Það er annað að draga úr svigrúmi til aðgerða með því að bæta við fyrri skuldastabba og ýta undir aukna skuldsetningu á greiðslumats- forsendum sem taka mögulega ekki mið af undirliggjandi áhættu: hækkandi vöxtum, auknu atvinnuleysi ef illa gengur og smitá- hrifum af veikri stöðu stórra atvinnugreina. Viðbótarskuldsetning einka- geirans og ríkissjóðs svipuð Til viðbótar við skuldsetningu heimilanna hafa fyrirtækjaskuldir vaxið í heild um 44 ma. kr. á tímabilinu, þar af um 30 ma. kr. í bankalánum. Þessi tala segir þó ekki alla söguna. Önnur eins upphæð liggur á þeim, mestmegnis fyrirtækjum í tekjustoppi, sem hafa fengið frestanir á opinberum gjöldum og afborgunum lána. Nettó mætti því segja að atvinnufyrirtæki hafi bætt við sig hátt í 90 ma. kr. skuldum á tímabilinu og rík- issjóður um 220 ma. kr. þar sem hluti af skuldsetningu ríkissjóðs er tímabundinn vegna frestanna á gjöldum. Þá lána bank- arnir mörgum fyrirtækjum fyrir afborg- unum þessa dagana. Raunsærri mynd af stöðunni er því þessi: Einkageirinn hefur bætt við sig 200 ma. kr. í skuldum frá upphafi COVID-far- aldursins (110 heimilin, 90 fyrirtækin) og ríkissjóður 220 ma. kr. Við fórum inn í núverandi ástand með einkageira sem var jafnskuldsettur og í flestum þróuðum löndum, á meðan ríkissjóður Íslands var með eina lægstu skuldastöðuna á heims- vísu. Við lendum í náttúruhamförum sem leggjast á lítinn hluta kerfisins og þarfnast mjög markvissra og miðstýrðra viðbragða. Samt hafa aðgerðirnar fram að þessu leitt af sér jafn mikla aukningu í skuldum ríkissjóðs og einkageirans. Það mætti orða það sem svo að ríkis- sjóður hefði getað beitt sér af tvöföldum krafti, m.v. núverandi aðgerðir, við að stýra fjármagni inn í það gat sem myndast hefur á efnahagsreikningi þjóðarinnar vegna áhrifa COVID. Án þess að skapa meiri þenslu en núverandi aðgerðir. Peningunum hefði verið langtum betur varið með þeim hætti. Fólk og fyrirtæki kæmu ekki skuldsettari út úr þessu ástandi, margföldunaráhrif nýs fjármagns í umferð væru meiri og kerfið hefði meira svigrúm til að vinna á skuldastabbanum sem myndast síðar meir. Líftími ríkissjóðs er óendanlegur, ólíkt líftíma heimila og fyr- irtækja, sem þýðir að ríkið hefur svigrúm til að dreifa áfalli af þessu tagi yfir áratugi. Sumir vilja meina að við getum ekki hagað okkur eins og stór lönd og prentað peninga að vild því við erum með okkar litlu krónu. Fjármagnið leki bara úr landi í gegnum innflutning og almennt útflæði sem leiði til gengisfalls og verðbólgu fljótt. Þessar áhyggjur ættu að vera sama fólki hugleiknar þegar í ljós kemur að verið er að sóa dýrmætu svigrúmi peningaprentunar.

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.