Vísbending - 11.12.2020, Blaðsíða 2
2 V Í S B E N D I N G • 4 6 . T B L . 2 0 2 0
að leitni fjárfesta sé í þessa átt og skekki
mögulega það sem væri eðlileg eftirspurn?
Jú mögulega, ég er þó á þeirri skoðun að að
ef bylgja verður norm að þá til lengri tíma
skipti það ekki öllu máli. Verkefnið er að
ná þeim útgefendum í vegferðina sem eru
seinni til, svo þeir njóti góðs af því að vera
í framtíðarflæðinu.
Aukið framboð
og breytt viðhorf
Á síðastliðnum tveimur árum hefur mikið
stökk átt sér stað í innflæði í sjálfbæra sjóði
í Bandaríkjunum sem voru ögn seinni á
vagninn en Evrópa, en innflæði og framboð
1 https://www.morningstar.com/content/dam/marketing/emea/shared/guides/European-Sustainable-Fund-Flows-Q2-2020.pdf
nýrra sjóða þar er að aukast mjög samkvæmt
tölum frá Morningstar1. Hvort er þetta vegna
viðhorfsbreytinga breiðs hóps, bæði fjárfesta,
fyrirtækja, almennings og annarra haghafa
eða vegna aukins framboðs af ábyrgum fjár-
festingakostum eins og sjóðum? Ætli örugga
svarið sé ekki að þetta sé blanda af báðu. Ég
vil samt trúa því að þetta sé ekki tískubylgja,
þetta sé okkar leið til að breyta heiminum
til hins betra og beita jákvæðum þrýstingi á
þá aðila sem taka ákvarðanir sem hafa áhrif
á okkur öll.
Á Íslandi sjáum við aukningu í framboði
á sjálfbærum fjárfestingakostum, sérstak-
lega á skuldabréfamarkaði. Í hlutabréfum
er það okkar hluthafanna að kalla eftir
upplýsingum sem nýtast við okkar mat á
því hvort fjárfestingin sé í samræmi við þá
aðferðarfræði ábyrgra fjárfestinga sem við
kjósum að fylgja. Við hjá Stefni innleiddum
stefnu fyrir tveimur árum um ábyrgar fjár-
festingar og hefur hún verið verið leiðarvísir
í vinnu okkar í þessum málum. Stefnan
tiltekur sérstaklega að við viljum fylgja eftir
breytingum í jákvæða átt, hlutdeildarskír-
teinishöfum sjóða okkar til góðs. Við höfum
yfir lengra tímabil tileinkað okkur virkt
eignarhald sem hefur reynst okkur vel við
val á fjárfestingarkostum. Félög á markaði
eru orðin allvön því að eigendur fjármagns
vilji eiga samtal í aðdraganda hluthafafunda
og bjóða jafnvel upp á slík samtöl að fyrra
bragði.
Stefnir vinnur að stofnun nokkurra sjóða
sem geta einfaldað fjárfestum lífið þegar
kemur að fjárfestingu samkvæmt aðferðafræði
ábyrgra fjárfestinga. Þetta eru nýir sjóðir sem
eru með fjárfestingarstefnur sem munu sér-
staklega ýta undir og styðja við sjálfbærar fjár-
festingar, innlendar sem erlendar. Sjóðstjórar
í hlutabréfateymi Stefnis vinna nú að því að
breyta fjárfestingarmarkmiði erlends sjóðs í
okkar rekstri. Þeir munu innleiða aðferðafræði
sjálfbærra þemafjárfestinga við ákvarðanatöku
út frá ákveðnum heimsmarkmiðum sem sjóð-
stjórarnir telja vel til þess fallin. Allt eru þetta
skref sem við hjá Stefni erum að taka til að
styðja við markað sem er á mjög jákvæðri veg-
ferð. Ég finn fyrir ákveðnum skriðþunga þar
sem fjármagni er veitt í farveg til sjálfbærrar
þróunar öllum til góðs sem vilja búa hér til
gott samfélag.Samanburður vísitalna
*Árleg ávöxtun í USD
YTD 3 ár* 5 ár* 10 ár*
MSCI Europe ESG Leaders 5,1% 5,3% 6,8% 7,4%
MSCI Europe 1,2% 3,1% 5,9% 6,3%
*Árleg ávöxtun
YTD 3 ár* 5 ár* 10 ár*
MSCI World ESG Leaders 11,5% 10,5% 11,5% 10,7%
MSCI World 11,7% 10,1% 11,5% 10,8%
*Árleg ávöxtun í USD
YTD 3 ár 5 ár 10 ár
MSCI ACWI Sustainable Impact 36,4% 17,1% 16,1% -
MSCI ACWI Index 11,1% 9,0% 10,8% -
Ávöxtun miðast við 8.12.2020. Heimild: Bloomberg og Stefnir hf.