Vesturbæjarblaðið - Jan 2020, Page 6
6 Vesturbæjarblaðið JANÚAR 2020
Gert er ráð fyrir að opna nýtt Centerhótel við
Selja veg í Vest ur bæ Reykja vík ur í maí á næsta
vori. Hótelið er að hluta í gamla Héðinshúsinu
sem verið er að endurgera auk nýbyggingar.
Þetta er í nálægð frá fyr ir huguðu íbúðahverfi
við Vest ur bugt og við Slipp inn. Enn liggur ekki
fyrir hversu mörg herbergi verða tekin í notkun
í upphafi. Þau verða alla vega 147 en gætu
orðið 195.
Gert er ráð fyrir veit ingastað, bar og kaffi hús í
hinu nýja hóteli auk annarrar þjónusta. Einnig eru
áform um að bjóða upp á spa og tengda þjónustu
en það verður ekki alveg í byrjun. Upphaflega var
áformað að taka fyrsta áfanga hótelsins í notkun
fyrr en uppbygging þess hefur engu að síður gengið
eftir áætlun. Mikil vinna hefur verið við endurgerð
hússins. Meðal annars var skipt um alla glugga og
það klætt að utan.
Tölvumynd að fyrirhuguðum byggingum á Héðinsreit.
Nýtt hótel opnar
við Seljaveg í maí
Sautján hæða hótel
rís í miðbænum
Hótelkeðjan Radisson Hotel Group er að hefja byggingu
hótels undir merkjum Radisson RED á horni Skúlagötu og
Vitastígs í Reykjavík. Áætlað er að Radisson RED-hótelið opni
í miðbænum árið 2021. Gert er ráð fyrir 203 herbergjum á
sautján hæðum, með göngustíg í gegnum hótelið, veitingastað á
jarðhæð með torgi og útsýnisverönd á þaki.
Skoski arkitektinn Tony Kettle hefur teiknað húsið sem
fullbyggt mun kallast á við Hallgrímskirkju en rauðir og svartir
litir sem eru í hönnunni eiga að vísa til eldvirkni og hraunrennslis.
Sautján hæða hótelturninn verður ein svipmesta bygging
miðborgar Reykjavíkur. Fyrst var greint var frá því á árinu 2018
að til stæði að opna Radisson RED-hótel á Íslandi en hér eru fyrir
fjögur Radissonhótel, þrjú í Reykjavík og eitt í Reykjanesbæ.
Radisson Hotel Group er ein stærsta hótelkeðja heims. Yfir 1400
hótel eru rekin og í burðarliðnum undir merkjum keðjunnar.
Þannig mun hótelturninn líta úr er hann verður fullbyggður.