Vesturbæjarblaðið - jan. 2020, Blaðsíða 15
15VesturbæjarblaðiðJANÚAR 2020
Ingibjörg Valgeirsdóttir og Beitir Ólafsson
hlutu markamannabikara KR 2019. Hin árlega
afhending markmannabikara KR fór fram
14. desember. Markmannafélag KR sá um
afhendinguna en gefandi bikarsins Heimir
Guðjónsson fyrrum markmaður KR og landsliðsins
búsettur á Spáni. Heimir var markmaður
meistaraflokks KR á árunum 1955 til 1965 og
var lykilmaður í sigursælu liði KR á þessum tíma
og vann alla titla sem í boði voru og lék að auki
með landsliðinu.
Markamannsþjálfarar félagsins þeir Valþór
Halldórsson sem sér um yngri flokkana og Kristján
Finnbogason sem sér um meistaraflokkana báru
hita og þunga af valinu þetta árið. Við valið var
einkum horft til frammistöðu á vellinum, ástundun
við æfingar og framkomu innan sem utan vallar.
Markmenn KR 2019 eru:
Í kvennaflokki markmaður meistaraflokks
Ingibjörg Valgeirsdóttir, en hún var einn besti
maður liðsins síðastliðið sumar og átti stóran þátt
í því að það náði sínum besta árangri í efstu deild í
mörg ár og komst í bikarúrslit þar sem þær töpuðu
eftir framlengingu í hörkuleik og þá var hún einnig
valinn í A landsliðshóp kvenna.
Í karlaflokki var það Beitir Ólafsson markmaður
meistaraflokks sem var valinn. Hann var lykilmaður
í Íslandsmeistaraliði KR sl. sumar og átti margar
lykilvörslur sem gerði það að verkum að sigur
vannst. Þá stóð liðið uppi sem sigurvegari í öllum
mótum nema bikarkeppninni sem er auðvitað
frábær árangur. Beitir er einnig boðinn velkominn
í markmannafélag KR en til þess að komast þangað
þurfa menn að leika 50 leiki í meistaraflokki, verða
Íslands- eða bikarmeistari eða vera valinn í landslið.
Beitir uppfyllti tvö fyrri skilyrðin og tekur bara
landsliðið næsta ár.
Ingibjörg og Beitir hlutu
markamannabikar KR 2019
Frá afhendingu markamannabikarins. Ingibjörg og Beitir eru fyrir miðju á myndinni.
GETRAUNANÚMER
KR ER
107
Sími: 588 9705
www.skautaholl.is
Opnunartímar:
Mánud. Þriðjud. og miðvikud.
13:00-14:30
Fimmtudaga
13:00-14:30 og 17:00-19:30
Föstudaga
13:00-14:30
Laugardaga og sunnudaga
13:00-17:00
Skólar og sérhópar:
Mánudag til föstudags 10:00 til 15:00.
RAFMENNT – fræðslusetur rafiðnaðarins annast verkefni er varða
menntamál rafiðnaðarmanna, allt frá upphafi náms til loka meistara-
skóla, og endurmenntun þeirra sömuleiðis.
RAFMENNT varð til árið 2018 við sameiningu Rafiðnaðarskólans
og Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins í því skyni að auka þjónustu við
félagsmenn og gera framboð menntunar og fræðslu enn fjöl-
breyttara og markvissara.
Rafiðnaðarsamband Íslands og Samtök rafverktaka eiga og
reka RAFMENNT í sameiningu.
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • rafmennt.is • sími 540 0160
RAFMENNT er máttur
Dagbjört Elín Ármannsdóttir, nemi í rafv
irkjun, og
Helgi Már Valdimarsson rafiðnfræðingur a
ð störfum.
IÐJUÞJÁLFI
Seltjörn hjúkrunarheimili Seltjarnarnesi óskar eftir
að ráða iðjuþjálfa í 50 til 60% starfshlutfall. Um er að
ræða nýtt starf og væri æskilegt að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Svanlaug Guðnadóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar í síma 864 4184.
Hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu
Sunnuhlíðar, sunnuhlid.is.
IÐJUÞJÁLFI
Seltjörn hjúkrunarheimili Seltjarnarnesi óskar eftir að
ráða iðjuþjálfa í allt að 100% starfshlutfall.
Um er að ræða nýtt starf og væri æskilegt ð
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Svanlaug Guðnadóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar í síma 864 4184.
Hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu
Sunnuhlíðar, sunnuhlid.is