Skessuhorn - 25.03.2020, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 20206
Laumar
út lögum
VESTURLAND: Huldu-
tónlistarmaðurinn
Amlóði Amlóða-
son reynir hvað
hann getur
að lífga
upp á til-
v e r u n a
á þessum
síðustu og
verstu tím-
um. Hann sendi
nýlega frá sér
nýtt lag, Shala-
lalalag og hef-
ur sent frá sér fjögur lög á
þessu ári. Enn er þó ýmis-
legt, raunar flest, á huldu um
Amlóða. Hann hefur aldrei
komið fram opinberlega og
aldrei fests á filmu. Skessu-
horn komst aðeins á snoður
um tilvist hans í gegnum vin
hans, sem taldi rétt að lands-
menn allir fengju að njóta
tónlistar hans. „Lagið hans
Shalalalalag hefur verið að
spila mikla rullu í aðgerðum
almennilegra varna og þoka
fólki í átt að betra lífi,“ seg-
ir vinur Amlóða í samtali við
Skessuhorn. Alla sína tón-
list gefur Amlóði út á vefn-
um Soundcloud.com, undir
nafninu Amlóði Amlóðason.
Þar má heyra nýjasta lag-
ið hans, Shalalalalag, ásamt
öðrum lögum sem hann hef-
ur sent frá sér á árinu. -kgk
Hætta flokkun
sorps
DALABYGGÐ: Vegna Co-
vid-19 hefur flokkun sorps í
Dalabyggð verið hætt. Allt
sorp fer nú til urðunar, að
því er fram kemur á heima-
síðu sveitarfélagsins. Er þessi
ákvörðun tekin til hliðsjónar
af verklagsreglum Umhverf-
isstofnunar vegna smithættu
af sorpi og meðhöndlun úr-
gangs vegna heimsfaraldurs.
-arg
Færri mál hjá
lögreglu
VESTURLAND: Færri
mál komu til kasta Lögregl-
unnar á Vesturlandi í liðinni
viku en oft áður. Ástand-
ið í þjóðfélaginu hefur orð-
ið til þess að ferðamenn eru
sárafáir í landshlutanum
sem annars staðar á landinu
og íbúar minna á ferðinni
en áður. Að sögn lögreglu er
þó haldið uppi öllu eftirliti,
svo sem umferðareftirliti og
hraðamælingum. Lögregla
hefur þurft að hafa afskipti
af ökumönnum vegna of
hraðs aksturs, ljósabúnað-
ar, stöðvunar og lagningar
ökutækja og fleiri mála sem
teljast nokkuð hefðbundin.
Enginn var stöðvaður ölv-
aður undir stýri í vikunni,
né undir áhrifum ávana- og
fíkniefna. Er það ánægju-
legt að sögn lögreglu, enda
ein af fáum vikum í seinni
tíð sem svo er ekki.
-kgk
Bílvelta við
Hafnarfjall
HVALFJ.SV: Um hálf átta-
leytið á miðvikudagsmorg-
un var tilkynnt um bílveltu
við Hafnarfjall. Ökumaður
ók eftir Vesturlandsvegi á
eftir öðrum ökumanni, sem
hemlaði skyndilega. Við það
hemlaði maðurinn, missti
stjórn á bifreið sinni með
þeim afleiðingum að hann
missti bílinn að lokum út
af þar sem hann valt. Öku-
maðurinn meiddist á höfði
og var fluttur með sjúkra-
bíl á heilsugæsluna í Borg-
arnesi. -kgk
Endaði
á toppnum
HVALFJ.SV: Umferðar-
slys varð á Vesturlandsvegi
að kvöldi síðasta miðviku-
dags, um kl. 22:30. Öku-
maður missti þá stjórn á bif-
reið sinni, fór út í vegkant,
reyndi að rétta bílinn af en
endaði út af hinum megin
vegarins og bíllinn endaði á
toppnum. Þrír voru í bíln-
um, allir yngri en 18 ára.
Kenndu þeir sér eymsla og
voru fluttir með sjúkrabíl á
starfsstöð HVE á Akranesi.
Bíllinn er talsvert skemmd-
ur.
-kgk
Brotist inn í bíl
AKRANES: Á föstudag var
tilkynnt um innbrot í bíl
sem stóð við Kirkjubraut
á Akranesi. Eigandi gerði
lögreglu viðvart um klukk-
an átta að morgni föstu-
dagsins, en bíllinn hafði þá
staðið við götuna frá því um
kl. 17:00 daginn áður. Þeg-
ar eigandinn kom að bíln-
um sá hann að búið var að
fjarlægja spjaldtölvu sem
þar var, ásamt tösku utan af
henni og einni taka blueto-
oth-hátalara ófrjálsri hendi.
Málið er til rannsóknar.
-kgk
Byggðarráð Borgarbyggðar sam-
þykkti á fundi sínum sl. föstudag
að ganga að tilboði VÍS í trygging-
ar fyrir sveitarfélagið. Ráðið hafði
áður samþykkt tilboðið, en sveit-
arstjórn vísað málinu aftur til
umræðu í byggðarráði.
Eins og áður hefur verið rakið í
Skessuhorni úrskurðaði kærunefnd
útboðsmála að Borgarbyggð mætti
ekki gera þá körfu í útboðsskilmál-
um að bjóðendur starfræktu starfs-
stöð í sveitarfélaginu. Það var VÍS
sem kærði útboðið til nefndarinn-
ar. Greint var frá því í Skessuhorni
í síðustu viku þegar sveitarstjórn
vísaði málinu aftur til byggðarráðs.
„Það er ótækt að sveitarfélag get
ekki valið að versla við fyrirtæki í
heimabyggð. Ef að sveitarfélagið
velur ekki sem fyrsta kost að versla
við fyrirtæki í heimabyggð hvernig
getum við þá ætlast til þess að fyrir-
tæki kjósi að setjast hér að,“ sagði
í bókun minnihluta sveitarstjórnar
12. mars sl.
Nú hefur byggðarráð fjallað um
tilboðið öðru sinni og öðru sinni
samþykkt að ganga að tilboði VÍS,
sem hljóðar upp á rétt rúmar 17
milljónir sem er um 12% lægra
en næsta boð. Næstlægsta boð átti
Sjóvá, 19,3 milljónir og þriðja til-
boðið kom frá TM og hljóðaði upp
á 19,9 milljónir króna. Byggðar-
ráð lýsti jafnframt yfir vonbrigðum
með að „ekki skuli mega meta það
við fyrirtæki að þau séu með starf-
semi í sveitarfélaginu þegar tilboð
eru metin,“ eins og segir í fundar-
gerð frá því á föstudaginn.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Skaginn 3X hefur ráðið til sín tvo
nýja sölustjóra, þá Ágúst Ágústs-
son og Ingvar Vilhjálmsson. Þeir
munu báðir gegna störfum svæðis-
sölustjóra á Evrópumarkaði. Báðir
hafa þeir lengi starfað við sjávarút-
veginn og hjá fyrirtækjum sem sér-
hæfa sig í þróun og framleiðslu há-
tæknimatvinnslubúnaðar, að því er
fram kemur í tilkynningu frá fyrir-
tækinu.
Ágúst er búsettur í Svíþjóð og
starfaði áður hjá Marel. Í gegn-
um störf sín þar hefur hann mikla
reynslu af alifuglaiðnaðinum í Evr-
ópu. Ingvar er búsettur hér á landi
og var áður framkvæmdastjóri Ægis
Sjávarfangs, þar sem hann annaðist
allan almennan rekstur félagsins
og sölu afurða. Ingvar hefur einn-
ig mikla þekkingu á fjármálageir-
anum, en hann starfaði áður sem
framkvæmdastjóri markaðsvið-
skipta hjá Kaupþingi.
„Eitt af því sem gefur Skagan-
um 3X sérstöðu er hversu náið við
vinnum með iðnaðinum og eru
Ingvar og Ágúst frábær viðbót við
teymið okkar,“ segir Ingólfur Guð-
mundsson, forstöðumaður við-
skiptaþróunar hjá Skaganum 3X.
„Víðtæk þekking þeirra og reynsla
í geiranum mun verða mikill ávinn-
ingur fyrir Skagann 3X, ekki síst til
að tryggja áframhaldandi gott sam-
starf við núverandi sem nýja við-
skiptavini.“
kgk
Tilboð VÍS samþykkt öðru sinni
Ingvar Vilhjálmsson og Ágúst Ágústsson.
Tveir sölustjórar til Skagans 3X