Skessuhorn - 25.03.2020, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2020 19
Forsætisráðuneytið hefur birt aug-
lýsingu um framboð og kjör for-
seta Íslands. Kjör forseta skal fara
fram laugardaginn 27. júní 2020.
Framboðum til forsetakjörs skal
skila til dómsmálaráðuneytisins,
ásamt samþykki forsetaefnis, nægi-
legri tölu meðmælenda og vottorð-
um yfirkjörstjórna um að þeir séu
kosningabærir, eigi síðar en fimm
vikum fyrir kjördag. Forsetaefni
skal hafa meðmæli minnst 1500
kosningabærra manna, en mest
3000, er skiptist þannig eftir lands-
fjórðungum:
Úr Sunnlendingafjórðungi (þ.e.
Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur,
Rangárþing eystra, Rangárþing
ytra, Ásahreppur, Vestmannaey-
jabær, Flóahreppur, Sveitarfélagið
Árborg, Skeiða- og Gnúpverjah-
reppur, Hrunamannahreppur,
Bláskógabyggð, Grímsnes- og
Grafningshreppur, Hveragerðis-
bær, Sveitarfélagið Ölfus, Grind-
avíkurbær, Suðurnesjabær, Reyk-
janesbær, Sveitarfélagið Vogar, Haf-
narfjarðarkaupstaður, Garðabær,
Kópavogsbær, Reykjavíkurborg,
Seltjarnarnesbær, Mosfellsbær,
Kjósarhreppur, Akraneskaupstaður,
Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrep-
pur og Borgarbyggð sunnan Hví-
tár) séu minnst 1224 meðmælen-
dur, en mest 2448.
Úr Vestfirðingafjórðungi (þ.e.
Borgarbyggð vestan Hvítár, Eyja-
og Miklaholtshreppur, Snæfells-
bær, Grundarfjarðarbær, Helga-
fellssveit, Stykkishólmsbær, Dal-
abyggð, Reykhólahreppur, Vestur-
byggð, Tálknafjarðarhreppur, Bo-
lungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðar-
bær, Súðavíkurhreppur, Árne-
shreppur, Kaldrananeshreppur,
Strandabyggð og Húnaþing vestra
vestan Hrútafjarðar) séu minnst 59
meðmælendur, en mest 117.
Úr Norðlendingafjórðun-
gi (þ.e. Húnaþing vestra norðan
Hrútafjarðar, Húnavatnshreppur,
Blönduósbær, Sveitarfélagið Sk-
agaströnd, Skagabyggð, Sveitar-
félagið Skagafjörður, Akrahrep-
pur, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð,
Hörgársveit, Akureyrarbær, Eyjaf-
jarðarsveit, Svalbarðsstrandarhrep-
pur, Grýtubakkahreppur, Þing-
eyjarsveit, Skútustaðahreppur,
Norðurþing vestan Reykjaheiðar
og Tjörneshreppur) séu minnst 160
meðmælendur, en mest 320.
Úr Austfirðingafjórðungi (þ.e.
Norðurþing austan Reykjaheiðar,
Svalbarðshreppur, Langanesbyg-
gð, Vopnafjarðarhreppur, Fljóts-
dalshreppur, Fljótsdalshérað,
Borgarfjarðarhreppur, Seyðisf-
jarðarkaupstaður, Fjarðabyggð,
Djúpavogshreppur og Sveitarfé-
lagið Hornafjörður) séu minnst 57
meðmælendur, en mest 115.
mm
Gamanmyndahátíð Flateyrar hefur
í samstarfi við Reykjavík Foto efnt
til 48 stunda gamanmyndakeppni á
netinu. Keppnin gengur út á það að
eintaklingar eða lið geta skráð sig
til leiks og frá og með 27. mars fá
liðin 48 klukkustundur til að full-
klára gamanmynd út frá því þema
sem verður gefið upp. Sýningar-
hæfum myndum þarf svo að skila
inn til Gamnmyndahátíðarinnar 48
klukkustundum síðar, sunnudag-
inn 29. mars. Í kjölfarið verður net-
kosning um fyndnustu 48 stunda
gamanmyndina og fær sigurmyndin
veglega Canon EOS M50 mynda-
vél frá Reykjavík Foto að launum.
„Gamanmyndahátíð Flateyrar er
fyndnasta kvikmyndahátíð Íslands
og verður hún haldin í fimmta
skiptið nú í haust. Á seinustu hátíð
var í fyrsta skiptið keppt í 48 stunda
gamanmyndagerð á íslandi og var
það stuttmyndin Ballarhaf var valin
fyndnasta stuttmyndin af áhorfend-
um þar sem þemað var Fiskur.
Það hefur sjaldan eða aldrei ver-
ið jafn mikil þörf á gleði og húm-
or eins og nú og því er tilvalið að
halda nýja 48 stunda gamanmynda-
keppni. Keppnin verður opin öllum
og hægt að taka þátt hvar sem er.
Einstaklingar, fjölskyldur eða vina-
hópar geta skemmt sér við þetta
saman, tekið upp litla gamnmynd
í sínu nærumhverfi. Það þarf ekki
mikinn tækjabúnað til að setja sam-
an stutta gamanmynd, bara góða
hugmynd og einfalda myndavél eða
síma.
Á sama tíma og við vonumst til
að fá margar skemmtilegar mynd-
ir frá áhugafólki skorum við einn-
ig á kvikmyndagerðarfólk að taka
þátt og leggja sitt af mörkum við
að gleðja landsmenn með nýjum
fyndnum stuttmyndum,“ segir í til-
kynningu og bætt við: „Með gleði
og húmor komumst við í gegnum
þessa skrítnu tíma.“
Skráning í keppnina fer fram á
vefsíðu Gamanmyndahátíðarinnar:
https://www.icelandcomedyfilm-
festival.com/48-stunda-gaman-
myndakeppni
mm
Hún Ingibjörg Sigurðardóttir í
Grundarfirði situr sjaldan auðum
höndum. Hún rekur þvottahús í
Grundarfirði, býr þar í bæ ásamt
fjölskyldu sinni en draumurinn er
að geta með tíð og tíma sest að á
jörð þeirra Innri-Látravík, skammt
vestar í Eyrarsveitinn. Ingibjörg,
eða Bibba eins og hún er jafnan
kölluð, hefur auk þess gaman af að
prjóna. „Ég erfði þennan prjóna-
áhuga frá móður minni heitinni,
Sjöfn Halldórsdóttur. Hún prjón-
aði alla tíð mikið og fór á sumrin
í hestaferðir þar sem hún náði að
selja heilmikið af prjónaskapnum.
Áhugamál okkar fara því saman.
Ég er sjálf með hross og nýt þess
að fara á bak þegar veður leyfir. Oft
á hestbaki fæ ég svo hugmyndir að
einhverju sem ég get fitjað uppá
og þegar heim er komið reyni ég
svo að koma því í verk,“ segir hún.
Draumur hennar er að fjölskyldan
geti með tíð og tíma sest að í Innri-
Látravík, og búið þar með hross,
kindur og hænur. „Við keyptum
jörðina en erum enn sem komið
er einungis komin með íveruhús
fyrir okkur sjálf, en eigum eftir að
byggja útihús. Það kemur síðar,“
segir hún.
Bibba segist sitja við prjónana
alltaf þegar færi gefst og er óhrædd
við að feta nýjar slóðir í mynstr-
um og slíku. Eftir að Daði og
Gagnamagnið sló í gegn í undan-
keppni Eurovisjón í vetur hann-
aði Bibba snarlega nýjar húfur sem
hún kynnti á Facebook síðu sinni.
Hún gerði frumeintök af húfunum
og var tilbúin að selja uppskriftina.
Húfurnar náðu þó aldrei flugi enda
varð fljótlega ljóst að ekkert yrði af
söngvakeppninni í Rotterdam. „Þá
datt mér í hug að gera uppskriftir að
peysum þekktra fótboltaliða. „Ég
er mjög litaglöð og því hentaði mér
prýðilega að prjóna fótboltapeysur.
Einhver Poolari hafði sagt mér að
áhangendur Liverpool væru jafn-
an örlátari, hvaðan svo sem hann
hafði þá vitneskju. Ákvað ég því að
prjóna eina Liverpool peysu. Eftir
það prjónaði ég aðra á Manchester
United aðdáanda. Þær seldust báð-
ar og því held ég þessu bara áfram.“
Sjálf segist Bibba hafa takmarkaðan
áhuga á fótbolta en það aftri henni
þó ekki frá að hanna peysur sem
henta eitilhörðum stuðningsmönn-
um þessara liða.
„Núna þegar þessi blessaða veira
hefur áhrif á allt í samfélaginu er
ég þakklát fyrir að hafa áhugamál
sem dreifa huganum. Við Íslend-
ingar þurfum að gera allt sem við
getum til að halda sönsum þegar
svona holskefla af neikvæðum frétt-
um gengur yfir. Mér finnst allavega
frábært að geta umgengist skepn-
urnar okkar og fá þannig minn
skammt af útiveru og hreinu lofti.
Svo þegar inn er komið er frábært
að hafa eitthvað á prjónunum, helst
alltaf. Maður er allavega ekki með
fingurnar ofan í snakkpokanum á
meðan,“ segir Bibba og hlær.
Hægt er að fylgjast með hand-
verki Bibbu á Facebook síðu henn-
ar. mm
Forsetakosningar boðaðar í lok júní
Getur þú gert gamanmynd
á 48 klukkustundum?
Í fríi í Búdapest setti Bibba sér mark-
mið að prjóna eina húfu á dag. Þær
voru með kindamynstri.
Nýtur þess að hanna nýjar prjónauppskriftir
Á hestbaki segist Bibba oft frá hugmyndir að nýju prjónauppskriftum.
ManUtd peysan sem Bibba hannaði
nýlega „You will never walk alone,“ peysa á
Poolara.
Húfa með Daða og Gagnamagninu.
Lítið varð úr því verkefni þar sem
Eurovisjón keppnin var blásin af.