Bæjarins besta

Útgáva

Bæjarins besta - 02.12.1987, Síða 1

Bæjarins besta - 02.12.1987, Síða 1
• J •J BÆfARINS BESIA \ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987 - 4. ÁRGANGUR j 58. ^íiii VríihiiQÍrV li . íL Með auð einbýlishús á leigu síðan í ágúst SAMKVÆMT heimildum BB hefur Fjórðungssjúkrahúsið haft á leigu tvö einbýlishús nú að undanförnu, þar af annað síðan í ágúst. Það væri ekki í frásögu færandi ef húsin hefðu ekki staðið auð síðan þá og umtalsverðar fjárhæðir greiddar í leigu. Samkvæmt hcimildum BB greiddi sjúkrahúsið árs leigu fyrirfram í öðru tilvikinu og var þar um að ræða 360.000 krónur. Húsið er í eigu eins Stakkanes12 stjórnarmanns í stjórn Fjórð- ungssjúkrahússins. I hinu tilfellinu var greidd hálfs árs leiga fyrirfram og fyr- ir þá íbúð voru greiddar 150.000 krónur. Þarna er því um að ræða húsaleigu upp á rúma hálfa milljón fyrir hús sem enginn hefur enn sem komið er farið í. Við höfðum samband við Guðmund Mar- inósson framkvæmdastjóra sjúkrahússins vegna þessa. Ástæðuna fyrir þessu segir Guðmundur vera þá að sjúkrahúsið eigi ekkert hús- næði hér í bænum. Sjúkrahús- ið fái ekki inni í íbúðum bæjarins og því þurfi að hafa til taks húsnæði ef skyndilega komi til fólk sem sækti um þá vinnu hér við spítalann sem alltaf er vcrið að auglýsa. Benti Guðmundur á að þetta er eina sjúkrahúsið á landinu sem á ekki sínar eigin íbúðir. Flest öll önnur sjúkrahús eiga fleiri en eina íbúð fyrir sitt starfslið. Ellefu innbrot upplýst í einu VIÐ sögðum frá því í BB í síðustu viku að brotist hefði verið inn í hús Pósts og síma og að málið væri í rannsókn hjá lögreglu. Rannsókn málsins er nú að fullu lokið og það upplýst. Þar voru á ferðinni tveir ungir piltar. Þegar lög- reglan fór að ræða málin nanar við drengina játuðu þeir á sig tíu innbrot sem framin hafa verið að undan- förnu. Og að auki eitt inn- brot sem framið var í félagi við einn dreng í viðbót. Samanlagt upplýstust þarna því ellefu innbrot. í ljósi þessa vill lögreglan beina þeim tilmælum til foreldra að þeir hafi gát á börnum sínum þegar líða tekur á kvöld og fylgist með því sem þau eru að gera. Fagraholt 12 Orðrétt sagði Guðmundur: ,,Okkur gengur ekkert allt of vel að fá húsnæði hér í bænum. Við eigum von á því að fá hingað á næstunni tvo heilsugæslulækna frekar en einn, og einn yfirlækni. Pað segir sig sjálft að við þurfum að hafa fyrir hencli tbúðir fyrir þessa menn. Heilsugæslustöð- in á íbúðir fyrir heilsugæslu- lækna en sjúkrahúsið á ekkert. Ekki einu sinni starfs- mannabústaðinn sem yfir- læknirinn er í núna. Heilsu- gæslustöðin á hann og hcfur gert kröfu til þess að fá þenn- an bústað aftur, þannig að það er alveg fyrirséð að við verð- um annað hvort að byggja eða gera citthvað í málunum. Við erum með menn í afleysing- um, og hvar eigum við að hýsa þá? Það er þetta fagfólk sem við erum að rcyna að fá hing- að til okkar, við verðum að hafa fyrir það starfsmanna- bústaði Fólki finnst dýrt húsnæði hér og það er mjög erfitt að fá fólk hingað vegna þess að við yfirborgum ekki fólk. Pó að við verðum að taka hús á leigu undir þetta fólk, þá borgar það sína leigu sjálft þegar það er í því. Við höfum sem sagt á lcigu nú tvær íbúðir í bænum og það Halldór! hættir á Hlíf Breytingar á yfírstjórn öldrunarmála í aðsigi HALLDÓR Guömunds- son forstööumaður Hlífar hefur sagt starfi sínu lausu. Halldór var á sínum tíma ráðinn til starfa sem for- stööumaöur yfír Hlíf I. Síð- an hafa oröið miklar breyt- ingar í sambandi við alla öldrunarþjónustu hér í bænum. Hlíf hefur stækkað og öll þjónusta hefur stór- aukist. Veriö er að fjalla uni breytingar í öldrunarþjón- ustunni hjá hinum ýmsu nefndum bæjarins seni láta þessi mál sig einhverju varða. Hugsanlega eru skipu- lagsbreytingar í aðsigi í mál- efnum aldraðra hér í bæ. Þjónustuhópur aldraðra á ísafirði skilaði til bæjar- Framhald á bls. 8 telst ekki stórt þegar þarf að halda út heilu sjúkrahúsi. Pað segir sig sjálft að heilsugæslan og sjúkrahúsið verða að hafa sína starfsmannabústaði. Og eins og ég sagði þá er þetta eina sjúkrahúsið á landinu sem á ekki höfði sínu að halla í eigin íbúð. “

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.