Bæjarins besta - 02.12.1987, Qupperneq 24
Stöð 2 á helginni?
Þeir sem eiga pantaða myndlykla eru
vinsamlegast beðnir að hafa samband.
N HF. Verslun sími 3792
Húlluinhæ
á torginu
Torgsala á laugardaginn
Fyrst var degið hnoðað og mótað í Gamla bakaríinu
Gjörónýtur eftir
útafkeyrslu
Kraftaverk að einhver sleppi úr svona slysi
segir lögreglan
... síðan skorið út af stórum
Húsmæðraskólanum.
STYRKTARSJÓÐUR til bygg-
ingar tónlistarskóla verður með
torgsölu fyrsta laugardaginn í
desember nú í ár eins og mörg
undanfarin ár. Torgsala sem þessi
er orðinn fastur liður í fjáröflun
til byggingar tónlistarskóla og
hefur ávallt verið mikil stemning í
kringum hana.
Bæjarbúar vita flestir hvernig
stemning getur myndast í mið-
bænum ef veður er gott. því ættu
sem flestir að koma í miðbæinn
því mikið verður um að vera sem
endranær. Væntanlega mun dag-
skráin hefjast kl. 14 með því að
Sunnukórinn takí nokkur vel
valin lög í félagi við barnakór
Tónlistarskólans.
Þarna mun að venju verða á
boðstólum heitt kakó, lummur
bakaðar á staðnum, og laufa-
brauð, að ógleymdu jólaglöggi
sem virðist vera orðin ómissandi
drykkur á aðventunni. Þá verður
einnig til sölu á torginu nýklippt
ísfirskt greni.
750 kökur af
laufabrauði
Við litum inn hjá konunum sem
standa að þessari torgsölu nú fyrir
stuttu. Voru þær þá í óða önn að
baka laufabrauð fyrir laugar-
jafnt sem smáum höndum í
daginn. Laufabrauðið hefur notið
vaxandi vinsælda á borðum
landsmanna með jólahangikjöt-
inu og hefur salan á því aukist ár
frá ári. Núna bökuðu þær um 750
kökur en voru ekkert alltof vissar
um að það væri nóg.
Þá er bara að hvetja fólk til
þess að koma á torgið á laugar-
daginn, sína sig og sjá aðra. Nú og
ekkert er líklegra en að fólk
rekist á jólasveininn á torginu því
nú fara þeir að tínast í bæinn
hver á fætur öðrum úr þessu.
Á sunnudagsmorguninn gerðist
það að bíll fór út af Hnífsdals-
veginum. ísing var á veginum.
Bíllinn hentist út af veginum
miðja vegu milli ísafjarðar og
Hnífsdals og gjöreyðilagðist eins
og myndin ber með sér. Bíl-
stjórinn var einn í bílnum þegar
þetta gerðist og þykir það ganga
kraftaverki næst að ekki hafi
farið verr en raun ber vitni. Hann
mun hafa skorist í andliti en er
heill að öðru leiti.
Bílstjórar eru minntir á að nú
er svartasta skammdegið að
ganga í garð og að aldrei er of
varlega farið þegar setið er undir
stýri. í þessu sambandi skulum
við muna eftir málshættinum:
,,Kemst þótt hægt fari.“
Stöð 2 á föstudaginn!
AÐ sögn írisar Erlings-
dóttur, þjónustustjóra Stöðv-
ar 2 munu útsendingar stöðv-
arinnar sjást á ísafirði í fyrsta
sinn á föstudaginn ef allt
gengur að óskum.
Uppsetningu sendis á
Blönduósi er lokið og eru
starfsmenn Stöðvar 2 á leið-
inni vestur. Þeir munu ljúka
uppsetningu sendis hér á
föstudaginn, 4. desember, svo
framarlega scm ekkert óvænt
kemur uppá.
íris sagði að útsendingar-
tími stöðvarinnar væri um 80
tímar á viku, þar af væru 15
tímar íslenskt efni. RÚV aft-
ur á móti sendi út í 40 tíma á
viku, þar af 15 tíma íslenskt
efni.
Eins og sjá má líkist þetta ekki bíl lengur.