Bæjarins besta - 30.12.1987, Page 6
6
BÆJARINS BESTA
Á myndinni eru talið frá vinstri: Sigurður Þorláksson, formaður Kiwaniskliíbbsins Bása, Lára
Helgadóttir, formaður Kvennadeildar SVFI, Halldór Sv. Hauksson, formaður bsv. Tinda, Skúli Skúlason,
formaður bsv. Skutuls og Jóhann G. Ólafson úr bátakaupanefnd.
Björgunarsveitunum berast
miklar og góðar gjafír
Nokkuð hefur verið fjallað um
fyrirhuguð kaup björgunar-
sveitanna hér í bænum á stórum
björgunarbát. Við greindum ýtar-
lega frá því, um hvernig bát er að
ræða í síðasta BB. í stuttu máli er
hér um að ræða einn full-
komnasta björgunarbát á íslandi
og víðar. Ljóst er að hingað
komin mun báturinn kosta um 11
milljónir króna. En til þess að
dæmi sem þetta getið gengið upp
treysta björgunarsveitarmenn á
velvilja fyrirtækja, bæjarbúa. og
hins opinbera.
Þegar hafa borist loforð um
peningagjafir og var efnt til
blaðamannafundar vegna þessa
nú fyrir jólin. Þar var fyrst sagt frá
því að bátakaupanefnd björg-
unarsveitanna hefur opnað sér-
stakan reikning við Útvegsbanka
Islands hf. Högni Þórðarson, úti-
bússtjóri Útvegsbankans var á
fundinum í Sigurðarbúð og
greindi hann frá því að bankinn
hefði ákveðið að gefa fyrsta
framlagið inn á reikninginn og las
hann gjafabréf sem því fylgdi en
þar segir m.a.:
„Hér með afhendum við ykkur
að gjöf kr. 100.000,- vegna fyrir-
hugaðra kaupa á björgunarbát.
Gjöfinni fylgja þakkir og virðing
Útvegbankans fyrir dáðrík og
giftusamleg störf fyrr og síðar að
slysavarnarmálum og því öryggi
sem sæfarendum og vegfarendum
er að skýlum við strendur og
heiðum uppi og öllum þeim
búnaði sem tiltækur er þegar á
þarf að halda.“
Þá fjallaði Högni lauslega um
starfsemi björgunarsveitanna og
sagði m.a. orðrétt „Það er
kannski einkennileg tilfinning að
þurfa í rauninni að óska þess að
sem minnst þurfi til þessa tækis
að grípa. En það er nú einu sinni
þannig með allt sem lítur að
slysavarnarmálum að þessi tæki
þurfa að vera til svo og allur
búnaður en maður vonast alltaf
til þess að sem sjaldnast og helst
aldrei þurfi til hans að grípa.“
Þá tók Árni Sædal formaður
styrktarnefndar Kiwanisklúbbs-
ins Bása til máls. Las Árni upp
tillögu styrktarnefndarinnar til
stjórnar klúbbsins en hún er svo-
hljóðandi: „Að Kiwanisklúbbur-
inn Básar lýsir yfir stuðningi við
Björgunarsveitir SVFÍ við Djúp,
með árlegri styrkveitingu úr
Minningarsjóði Kiwanisklúbbsins
Bása, næstu 7 ár, sem nema muni
alls kr, 1,000,000,- (ein milljón
krónur), þannig að árleg greiðsla
nemi kr. 143.000.- (eitt hundrað
fjörutíu og þrjú þúsund krónur).“
Arni undirstrikaði að hér væri
aðeins um að ræða tillögu til I
stjórnar klúbbsins en sagðist ekki
eiga von á öðru en að hún yrði
samþykkt þar.
Þá tók Skúli Skúlason,
formaður björgunarsveitarinnar
Skutuls til máls og las upp bréf
sem borist hafði frá Olíufélagi
Útvegsmanna hf. í bréfinu var
tilkynnt að Olíufélag Útvegs-
manna hf. hafi ákveðið að færa
björgunarsveitunum að gjöf kr.
500.000.- með ósk um að upp-
hæðin renni til kaupa á björg-
unarbát.
Þá kom og fram á fundinum að
leitað hefði verið til ráðherra,
þingmanna, Slysavarnarfélags
Islands og fleiri aðila og að flestir
hefðu tekið erindi björgunar-
sveitarmanna mjög vel. Meðal
annars hefur fengist fjárveiting út
úr fjárveitingamefnd Alþingis en
endanleg upphæð er ekki ákveð-
in. Einnig var tilkynnt að skatt-
stjórinn í Vestfjarðakjördæmi
hefði heimilað að fjárframlög
fyrirtækja til þessara bátakaupa
væru frádráttarbær frá skatti upp
að 10% af tekjuskattsstofni.
Af máli þeirra sem tóku til
máls er ljóst að mál þetta hefur
fengið mikinn og góðan meðbyr,
bæði hér heima sem annars-
staðar. Mikið fé hefur þegar
safnast og eru loforð að berast
allsstaðar frá. Skömmu eftir að
fundinum lauk bættist hálf
milljón í kassann sem forsvars-
menn Hrannar hf„ sem gerir út
skuttogarann Guðbjörgu afhentu
björgunarsveitunum. Og svona í
lokin er rétt að segja frá því að
reikningurinn sem stofnaður var í
Útvegsbankanum heitir: Slysa-
varnarfélag Islands, vegna báta-
kaupa á ísafirði, Sigurðarbúð,
400. ísafjörður. Númer reikn-
ingsins er 65 og nafnnúmer við-
takanda 9349-7317.
Starfsfólk óskast
Á skrifstofu, hálft starf.
í verslun, afleysingar og
kvöldvaktir.
í brauðeldhús, hálft starf.
Upplýsingar gefur Úlfar.