Bæjarins besta

Issue

Bæjarins besta - 30.12.1987, Page 7

Bæjarins besta - 30.12.1987, Page 7
BÆJARINS BESTA 7 Þessi mynd er nú ekki tekin í birgðageymslu jólasveinanna eins og kannski einhverjum gæti látið sér detta í hug. Nei ekki aldeilis. heldur í einni af leikfangaverslunum bæjaríns á Þorláksmessu. Þá var nú mikið um að vera í bænum og hreifst fólk af mörgu því sem það sá í búðargluggunum. Ekki vitum við hvað það er sem hrífur jólasveinana svona en vandi er um það að spá. Áramóta- brenna / a Torfnesi Á áramótum eru ávallt brennur hér og þar um bæinn. Einn myndarlegasti bálköstur- inn sem reistur hefur verið nú fyrir þessi áramót er inn við Torfnes. Kapparnir sem standa að þessari brennu hafa ákveðið að kveikja bálið kl. 21:00 stundvíslega. Skemmtileg stemning getur myndast við brennur sem þessar og eru bæjarbúar hvattir til þess að koma saman og horfa á bálið. Þama virðist dæmið hafa snúist við. Strákurínn á myndinni er farínn að segja jólasveininum sögur að því er virðist og jólasveinninn hlustar hugfanginn á.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.