Nesfréttir - febr 2020, Qupperneq 2

Nesfréttir - febr 2020, Qupperneq 2
ÚT GEF ANDI: Borgarblöð ehf, Eiðistorgi 13-15, 172 Seltjarnarnes, Pósthólf 171. S: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 RITSTJÓRI: Krist ján Jó hanns son • ÁBYRGÐAR MAÐUR: Krist ján Jó hanns son BLAÐAMAÐUR: Þórður Ingimarsson UM BROT: Valur Kristjánsson NETFANG: borgarblod@simnet.is • HEIMASÍÐA: borgarblod.is Nesfréttir koma út mánaðarlega og er dreift frítt í hvert hús á Seltjarnarnesi 2 Nesfrétt ir www.borgarblod.is Heft umferðarflæði Seltjarnarnesbær hefur gert athugasemdir við nokkrar framkvæmdir á umferðargötum í Vesturbæ Reykjavíkur. Víkja þær einkum að þrengingum gatna við stoppistöðvar og ljósastillingu. Bæjaryfirvöld telja þær hefta umferðarflæði til og frá Seltjarnarnesi og brjóta í bága við samkomulag sveitarfélaganna frá árinu 2013. Í svari Reykjavíkurborgar er því neitað að verið sé að ganga á þetta samkomulag. Ekki er þó eining í borgarstjórn um að svo sé. Nokkrir borgarfulltrúar létu bóka að Seltjarnarnesi sé fangi Reykjavíkur í umferðarmálum. Tæpast hugkvæmist nokkrum að byggja mislæg gatnamót eða viðlíka mannvirki við Hringbrautina vestan Melatorgs. Bygging undirganga er nokkuð sem mætti hugleiða. Þau yrðu fyrst og fremst fyrir gangandi og hjólandi fólk. Þau myndi auka öryggi þess en hafa mjög takmörkuð áhrif á umferð bíla. Hvar sem mörk sveitarfélaganna liggja þá er Seltjarnarnes og Vesturbær Reykjavíkur ein umferðarheild. Umferð af Seltjarnarnesi og úr Vesturbænum að hluta liggur í gegnum íbúðahverfi. Það setur stofnbrautum ákveðin mörk. Ein leið til þess að koma hraðbraut fyrir í Vesturbæ Reykjavíkur væri að breyta Ægisíðunni í stofnbraut með tengingu suður fyrir Reykjavíkurflugvöll. Varla nokkrum kæmi slík framkvæmd til hugar. Því síður myndi hún hljóta samþykki. Önnur leið væri að leggja Hringbrautina í stokk. Dýr mannvirkjagerð sem ekki er í augsýn. Seltirningar verða líkt og aðrir íbúar á vesturhluta höfuðborgarsvæðisins að sætta sig við þær umferðaræðar sem eru til staðar. En eru þeir fangar Reykjavíkur? Leið ari √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ Mínar síður √ Húsbók þjónustusaga húss √ Auk annarrar þjónustu Húsfélagaþjónusta Eignaumsjón leiðandi í 17 ár www.eignaumsjon.is Bráðskemmtilegt Mýróball Mýróball var haldi í félags- heimilinu á Seltjarnarnesi þann 8. febrúar sl. Þar komu saman nemendur úr Mýrarhúsaskóla úr árgöngum 1947 til 1957 og skemmtu sér og rifjuðu upp gamla daga. Allt að 150 mans mætti á ballið. Boðið var upp á fordrykk við komuna og svo var mjög góður pinnamatur í boði fram eftir kvöldi. Stefán Halldórsson úr árgangi 1949 var veislustjóri. Haldnar voru ræður frá ýmsum árgöngum og svo var dansað fram á miðnætti. Hljómsveitin sem lék fyrir dansi lék gömlu og góðu löginn t.d. lög Bítlana og Rolling Stones. Flottar konur á góðum aldri voru einkennandi á Mýróballinu. ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR www.husavidgerdir.is/hafa-samband info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070 Finndu okkur á Fegrun og lenging líftíma steyptra mannvirkja er okkar áhugamál. Við höfum náð góðum árangri í margs konar múr- og steypuviðgerðum, múrfiltun, steiningu og múrklæðningum. Hafðu samband Við skoðum og gerum tilboð! Dagskrá mars 2020 Eiðistorgi 11, 170 Seltjarnarnes, Sími: 5959-170, Netfang: bokasafn@seltjarnarnes.is Opnunartími: Mán. - fim. 10-19 og fös. 10-17. Lau. 11-14 2. mars kl. 20–22 5. mars kl. 17.30–18 21. mars kl. 11.30–12.30 3. mars kl. 19.30–20.30 23. MARS kl. 17.30–18.30 4. mars kl. 17–17.30 27. mars kl. 17 BRASS Á TÓNSTÖFUM Brassband Tónlistarskólans kemur fram og spilar gamla góða standara og slagara inn á milli. Allir velkomnir! HORMÓNAJÓGA Rakel Fleckenstein Björnsdóttir hormónajóga- og hathajógakennari og þýðandi bókarinnar Hormónajóga – leið til að endurvekja hormónabúskap þinn heldur erindi um og kynnir bókina. Gallerí Grótta – Sýning Sigurður Magnússon sýnir verk sín í Gallerí Gróttu á sýningunni Inngrip. Sýningunni lýkur 22. mars. SelGARNanes og nágrenni Áhugafólk um hannyrðir hittist einu sinni í mánuði og á notalega stund saman við handavinnu, hjálpar hvert öðru og deilir hugmyndum. Allir velkomnir. Nánar á FB-síðu hópsins: SelGARNanes og nágrenni BÓKMENNTAKVÖLD – Bragi Ólafsson og Staða pundsins Bragi Ólafsson rithöfundur fjallar um og les upp úr bók sinni Staða pundsins sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2019. Sögustund fyrir yngstu börnin Lesin verður sagan Skrímslin í myrkrinu. Höfundur: Áslaug Jónsdóttir Sýningaropnun í GALLERÍ GRÓTTU Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir opnar myndlistarsýningu sína HRINGIR sem er hluti af HönnunarMars. Sýningunni lýkur 2. maí. Ertu ekki örugglega á póstlistanum? Skráðu þig á Bókasafni Seltjarnarness eða sendu póst á bokasafn@seltjarnarnes.is og við setjum þig á listann. Börnum býðst að heimsækja safnið og lesa sér til ánægju fyrir hunda sem eru sérstaklega þjálfaðir til að hlusta á börn lesa. Sex börn komast að í hvert skipti. Lesið fyrir hund – Vigdís Vinir gæludýra á Íslandi Skráning á sigridur.gunnarsdottir@seltjarnarnes.is

x

Nesfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.