Nesfréttir - feb. 2020, Qupperneq 10
10 Nesfrétt ir
Nesvegur 100
Símar 562-1070, 896-4243
Opið virka daga kl. 10 - 18:30
MIKIÐ ÚRVAL SPENNANDI FISKRÉTTA
VERIÐ VELKOMIN
FERSKUR FISKUR
DAGLEGA
Skemmtilegt verkefni á eiði
Við á deildinni Eiði í leikskóla
Seltjarnarness erum að vinna með
mjög skemmtilegt verkefni um þessar
mundir. Verkefnið byggir á aðferð
sem kallast könnunaraðferðin og
er unnið út frá áhuga barnanna.
Verkefnið er sérstaklega skemmtilegt
í ár og hugmyndin kemur út frá þema
leikskólans þetta árið sem er Jörðin.
Það er unnið í samstarfi við foreldra
barnanna á deildinni og hefur það farið
hratt stækkandi. Unnið er í tveimur
hópum og völdu báðir hóparnir að
vinna með eldfjöll eftir að hafa unnið
með hugarkort þar sem jörðin var í
miðdepli. Annar hópurinn valdi eldfjöll
á Íslandi og eru þau mjög heilluð
af gosinu í Vestmannaeyjum. Hinn
hópurinn valdi eldfjöll úti í heimi.
Einnig hafa báðir hóparnir fylgst vel
með og sýnt áhuga á kvikumyndun
undir Þorbjarnarfelli.
Við tökum þátt í HönnunarMars og
verðum með sýningu á verkefninu í
Norræna húsinu en það er einn þáttur
í foreldrasamstarfinu þar sem við erum
svo heppin að Þórey Eva stjórnandi
HönnunarMars er foreldri hjá okkur á
deildinni. Við erum einstaklega heppin
með hversu áhugasamir foreldrar hafa
verið við að aðstoða okkur í verkefninu
t.d. höfum við fengið heimsókn frá
fagstjóra í líffræði og jarðfræði við
Menntaskólann í Reykjavík til okkar.
Fræddi hún okkur um jarðskjálfta og
kom með ýmislegt skemmtilegt til að
sýna börnunum og segja frá t.d. hraun, ösku, alls
konar steina og gerð var tilraun með vikurstein
og vatn sem sló í gegn. Einnig fengum við til
okkar einn afa sem sagði okkur frá gosinu
í Vestmannaeyjum. Börnin voru búin að setja
saman spurningar sem höfðu vaknað hjá þeim
í umræðum um gosið. Börn og starfsfólk lærðu
mikið af þessari heimsókn.
Magnús Tumi fræddi börnin um eldgos
Einn pabbinn hjá okkur tók sig til og sendi
póst á Magnús Tuma eldfjallasérfræðing og
fékk hann til að taka á móti okkur í HÍ
og fræða okkur um eldgos og eldfjöll en
unnið er að finna tíma og dag sem hentar
öllum. Allt starfsfólk deildarinnar hefur
verið fullt af áhuga og einstaklega gaman
að vinna verkefni sem allir taka þátt í
af ánægju og gleði en ég er einstaklega
heppin með samstarfsfólk á deildinni.
Verkefnið hefur verið tekið upp og mikið
af myndum verið teknar af ferlinu sem
Gunnar Páll auglýsingaleikstjóri, annað
foreldri, ætlar að setja saman fyrir okkur
svo hægt verði að sjá ferli verkefnisins
á sýningunni. En það sem er svo gaman
við könnunaraðferðina er að hægt er að
sjá ferlið frá upphafi til enda sem og þá
þekkingu sem börnin hafa tileinkað sér.
Þetta er bara hröð yfirferð á verkefninu
sem fléttast svo líka í listaskála þar sem
hvert barn er að búa til sína eigin jörð.
Opna sýningu formlega 28. mars
Á sýningunni verða einnig teikningar
og skissur af ferlinu frá börnunum og
samvinnuverkefni sem er stórt eldfjall,
allt það ferli er í höndum Kristínar
Vilborgar sem er verkefnastjóri í
listaskála en hún er einnig leirlistarkona
sem tengir okkur enn betur við
sýninguna og þátttöku í HönnunarMars.
Börnin opna sýninguna formlega
laugardaginn 28. mars kl. 13 og eru þau
að útbúa boðskort sem og gestalista sem
sendur verður út í byrjun mars. Nafnið á
sýningunni kom svo með lýðræðislegum
hætti þar sem allir komu með hugmyndir
af nafni sem var svo kosið um í samverustund.
Fyrir valinu varð “Eldurinn í jörðinni”.
Helga Lotta deildarstjóri á Eiði.
Þú hitar bílinn með fjarstýringu og nýtur
þannig þæginda og öryggis
Aldrei að skafa! Með Webasto bílahitara
Bílasmiðurinn hf. Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavik - sími 5672330 - www.bilasmiðurinn.is - bilasmiðurinn@bilasmiðurinn.is