Nesfréttir - feb. 2020, Blaðsíða 13
Nesfrétt ir 13
Skeljagrandi 1 · 107 Reykjavík
Sími 899 3417 · www.tölvuland.is
PC og Apple
tölvuviðgerðir
Fullkomið tölvuverkstæði og margra
ára reynsla og þekking fagmanna
Menntun og tækifæri
Eitt af því besta við að búa á
Seltjarnarnesi er hversu gott það
er að alast hér upp. Vel skipulögð
umgjörð og öflugt fagstarf í leik-,
grunn-, og tónlistarskólanum ásamt
frábæru gæðastarfi í íþrótta- og
tómstundastarfi bæjarins gerir
Seltjarnarnes að einum eftirsóttasta
stað landsins til að ala upp börn.
Þessum gulleggjum þarf þó að
viðhalda með uppbyggingu innviða
og stuðningi við fagfólk sem vill
þróa fræðslustarfið á Nesinu
til framtíðar.
Því miður hafa komið upp mál í
vetur þar sem stjórnendur bæjarins
hafa lent upp á kant við kennara í
leik- og grunnskólum bæjarins og
er komin þreyta í kennarahópinn
þar sem loforð um bætt kjör og
betri aðbúnað eins og bygging nýs
leikskóla dragast sífellt á langinn.
Það eru fjölmörg tækifæri
hér á Nesinu til þess að
styðja við öflugt menntastarf
og stendur nú yfir þessar
vikurnar stefnumótunarvinna í
menntamálum á Seltjarnarnesi
þar sem móta á stefnu til
næstu ára. Að því tilefni boðar
Samfylking Seltirninga til opins
fundar um menntamál 25.
febrúar næstkomandi á bókasafni
Valhúsaskóla klukkan 20:00. Á
fundinum verða fluttar stuttar
kynningar um nýja menntastefnu
Reykjavíkurborgar og þau tækifæri
sem felast í grunnskólakerfinu á
Nesinu en fyrst og fremst viljum
við heyra frá bæjarbúum hvað
ykkur finnst að vel sé gert og
hvar mætti sækja fram í skóla- og
frístundamálum á Nesinu.
Hildur Ólafsdóttir
– Fulltrúi Samfylkingar Seltirninga
í skólanefnd
Guðmundur Ari Sigurjónsson
– Bæjarfulltrúi Samfylkingar
Seltirninga
Guðmundur Ari
Sigurjónsson.
Hildur
Ólafsdóttir.
1717
RAUÐA KROSSINS
HJÁLPARSÍMI
Opinn allan sólarhringinn
Upplýsingar um úrræði
Alveg ókeypis (líka úr gsm)
Kemur ekki fram á símreikning
Fullur trúnaður
Ef þér líður illa – ef þú átt í vanda
Komdu með bílinn á
Hólmaslóð 2 ú á Granda
og fáðu skoðun sem gildir
í ár eða lengur
AFGREIÐSLUTÍMI mán.-fös. kl. 8-17
Það er alltaf logn
á Grandanum
Skoðun dagsins: