Nesfréttir - feb. 2020, Side 14

Nesfréttir - feb. 2020, Side 14
14 Nesfrétt ir G r ó t t u s í Ð a n www.grottasport.is getRaunanÚMeR gRóttu eR 170 Ofurhetjumót fimleikadeildar Gróttu fór fram í nýja fimleikasalnum 25. og 26. janúar síðastliðinn. Þetta var í 11. sinn sem mótið er haldið en það hét áður Hello Kitty mótið. Góður rómur var gerður að nýja salnum og mikil ánægja var meðal þjálfara með allan aðbúnað og áhöld. Þetta var fyrsta stóra mótið sem haldið hefur verið í fimleikasalnum. Það var mjög lærdómsríkt fyrir okkur sem stöndum að starfinu í fimleikadeildinni að keyra svona stórt mót í salnum. Á mótinu kepptu um 260 keppendur á aldrinum átta til 12 ára og komu frá sex fimleikafélögum. Keppt var í 4., 5. og 6. þrepi íslenska fimleikastigans. Gleðin skein úr augum keppenda en hluti þeirra var að stíga sín allra fyrstu skref í fimleikakeppni. Það þarf djörfung og hug til þess að stíga út á keppnisgólfið og börnin öðlast reynslu sem nýtast mun þeim til framtíðar. Fimleikadeildin vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra sjálfboðaliða sem lögðu hönd á plóg við framkvæmd mótsins. Þjálfarar deildarinnar eru hoknir af reynslu og tóku nokkrir virkan þátt í skipulagningu mótsins. Sesselja Järvelä yfirþjálfari keppnishópa dró vagninn og á heiður skilinn fyrir aðkomu sína að skipulagningu. HB heildverslun og fimleikavörur.is fá sérstakar þakkir fyrir stuðning sinn við deildina í gegnum árin. Við undirbúning mótsins sannaðist enn og aftur hversu öflugt og frábært fólk stendur að börnunum í fimleikadeildinni. Með aðstoð sjálfboðaliða og foreldra úr Gróttu tókst okkur að gera Ofuhetjumótið 2020 að eftirminnilegum viðburði og vonumst við að sjálfsögðu til þess að sjá allar fimleikaofurhetjurnar aftur að ári. Sjötti flokkur karla skellti sér á Njarðvíkurmótið í byrjun febrúar. Grótta tefldi fram fimm liðum á mótinu en spilað var í Reykjaneshöllinni. Fallegur fótbolti og leikgleði var fremst í flokki og allir leikmenn stóðu sig með prýði. Lið Gróttu í Ensku-deildinni gerði sér svo lítið fyrir og vann sína deild á mótinu. Sjötti flokkur karla kom með bikar frá njarðvík ofurhetjumót gróttu Strákar úr sjötta flokki. Gróttukonan Tinna Brá er í hóp U17 ára kvenna landsliðsins sem hélt til Írlands til að leika tvo vináttuleiki. Leikið var á Írlandi dagana 14. og 16. febrúar. Tinna Brá er á eldra ári í 3. flokki en æfir einnig og spilar með meistaraflokki kvenna. Tinna Brá er gríðarlega efnilegur markmaður sem vann m.a. það afrek að vera fyrsta landsliðskona Gróttu þegar hún lék með U15 ára landsliðinu í Víetnam s.l. sumar. Knattspyrnudeild Gróttu óskar Tinnu til hamingju með valið. tinna Brá á leið til írlands Þrjátíu stelpur úr 7. flokki kvenna spiluðu á fótboltamóti Auðar og HK laugardaginn 18. janúar. Grótta tefldi fram fimm liðum á mótinu og skemmtu sér allir gríðarlega vel. Sigrar, töp og jafntefli en umfram allt leikgleði og barátta. Sjöundi flokkur kvenna á fótboltamóti HK og auðar Stelpur úr sjöunda flokki. Gróttukonan Rakel Lóa Brynjarsdóttir var valin í hóp U16 ára kvennalandsliðsins sem æfði saman 29. til 31. janúar undir stjórn Jörundar Áka Sveinssonar. Rakel er á sextánda ári og því á eldra ári í 3. flokki en æfir alfarið með meistaraflokki Gróttu. Rakel er mjög efnileg knattspyrnukona sem er búin að stimpla sig vel inn í meistaraflokk. Rakel lóa á úrtaksæfingum u16 ára landsliðsins

x

Nesfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.