Morgunblaðið - 24.06.2020, Page 9

Morgunblaðið - 24.06.2020, Page 9
„Hér eru svo mikil rólegheit og því er mjög notalegt að búa hérna. Samskiptin við bæjarbúa eru svo þægileg og þannig verður allt lífið svo einfalt. Ef mann til dæmis vantar eitthvað, og það er á annað borð til í bænum, þá er einfalt að nálgast það. Svo þekkist fólk og er greiðvikið í sínu samfélagi sem getur komið sér vel þegar fólk er að standa í framkvæmdum eða standa fyrir einhverju. Þá gengur allt svo hratt og þægilega fyrir sig,“ segir hún. Eins og margir vita gegnir Síldarminjasafnið á Siglu- firði stóru hlutverki fyrir bæinn enda margrómað og hef- ur hlotið viðurkenningar bæði innan og utan landstein- anna. Nýja hótelið á Siglufirði er jafnframt alveg til fyrirmyndar, jafnt að innan sem utan. Alveg fyrsta flokks. „Fólk kemur alls staðar að af landinu til að njóta hér bæði matar og menningar. Það er orðið mjög algengt að fólk skelli sér hingað í bíltúr frá Akureyri og nær- liggjandi bæjum, og það færist sífellt í aukana að vinnustaðir komi hingað með starfsmenn í hópeflis- ferðir og á fundi. Þegar svona margir eru að gera skap- andi og skemmtilega hluti þá magnast bæjarandinn upp og verður jákvæður og hvetjandi sem aftur laðar að fleiri og fleiri skapandi og skemmtilega einstaklinga. Allt vinnur saman að vaxtaráhrifum. Þjóðlagasetrið, galleríin, gestavinnustofan í Herhúsinu, Ljósmynda- sögusafnið, Ljóðasetrið, Síldarminjasafnið, að ónefnd- um öllum frábæru veitingastöðunum. Þar má nefna hið einstaka veitingahús Siglunes sem býður upp á ómót- stæðilegan marokkóskan mat, Súkkulaðihúsið Fríðu þar sem boðið er upp á heimagert konfekt og ljúffengt súkkulaði, veitingastaðina Torgið og Harbour House og svo auðvitað hótelin og veitingahúsin á bryggjunni. Súrdeigspizzurnar og tónleikarnir á Kaffi Rauðku hafa slegið rækilega í gegn og þá er ónefnt bakaríið okkar sem er orðið að samkomustað bæjarbúanna sjálfra. Þegar allt er upptalið sést að hér er gríðarleg gerjun og eitthvað fyrir alla.“ „Ætli sauðkindin hafi ekki alltaf heillað“ Þar sem hin norðlenska Aðalheiður hefur aldrei flutt suður er eðlilegt að álykta að listin hennar hljóti að vera norðlensk í húð og hár. Hún gengst alveg við því. „Allt umhverfið, það fólk sem maður umgengst og auð- vitað allt sem ég hef alist upp við hefur haft bein áhrif á innblástur minn og sköpun. Þetta þjóðlega sem fólk hef- ur séð í verkum mínum kemur að sjálfsögðu héðan að norðan, úr æsku minni, uppvexti og því lífi sem ég lifi í dag. Ég var til dæmis alin að hluta til upp á litlu búi hjá afasystur minni við heyskap og sauðfjárrækt þar til allt var skorið þar niður vegna riðu. Ætli sauðkindin hafi því ekki alltaf heillað. Í fimm ár vann ég markvisst með þessa ágætu skepnu og okkar rótgrónu íslensku bænda- menningu og þau verk mín hafa verið mest áberandi síð- asta áratuginn,“ segir Aðalheiður sem á húsið Freyju- lund í Hörgárdal og þar dvaldi hún í þann tíma sem hún vann að þessum verkum. Hún segir að í Hörgárdalnum hafi hún átt mikil samskipti við bændurna sem þar búa og upplifað þessa skemmtilegu og einstöku menningu sem einkennir bændalífið. „Það sem ég upplifi á hverjum tíma skín alltaf í gegn um verkin mín.“ Sjósund og sýningar á Hjalteyri, hoppubelgir á Sigló og stórgóður golfvöllur Spurð að því hvað sé algerlega ómissandi fyrir ferða- langa að upplifa á Norðurlandi nefnir hún umhugs- unarlaust Safnasafnið á Svalbarðsströnd. Þar er að finna allskonar skemmtilega list sem höfðar til allra aldurshópa. Sem dæmi má nefna stórbrotið safn af þjóðbúningadúkkum, ilmvatnsflöskum og allskonar list sem virkar bæði glaðleg og aðgengileg. Húsið er jafn- framt mjög fallegt sem og garðurinn í kring. Hún nefn- ir einnig Verksmiðjuna á Hjalteyri sem er stór- merkilegt og óvanalegt sýningarrými í gríðarstórri verksmiðju en þar er maður að nafni Gústaf Geir Bolla- son potturinn og pannan í starfinu. Á Hjalteyri er heit- ur pottur sem hægt er að skella sér í og margir bregða sér þar í smá sjósund. Aðalheiður bendir líka á frábær- ar aðstæður fyrir fjölskyldufólk, bæði á Sigló og í Ólafsfirði en þar eru prýðilegar sundlaugar og góð tjaldstæði. „Á Sigló erum við líka með nýuppgerð leiksvæði fyrir krakka og flotta hoppubelgi sem eru mjög vinsælir. Krakkarnir bíða í röð eftir því að þetta sé blásið upp á morgnana og svo er hoppað allan liðlangan daginn,“ seg- ir hún og hlær. Og enn er ekki allt upptalið því innan við Siglufjörð er líka nýuppgerður golfvöllur og gott skíða- svæði. Innar í firðinum er annað tjaldsvæði sem er mikið hljóðlátara og rólegra en það sem er í bænum, svona ef fólk kýs meiri kyrrð og ró. Að lokum spyr ég Aðalheiði hvaða lýsingarorð komi fyrst upp í hugann þegar hann er látinn reika um Norðurland, þá nefnir hún fyrst rólegheitin í samfélag- inu og gott aðgengi að þjónustu og mannauði. „Fyrir mér er þetta eins og móðurfaðmur sem heldur fallega utan um fólk og mér líkar það vel.“ Uppgefinn skíðamaður kominn heim heitir þetta verk eftir Aðalheiði Ey- steinsdóttur. Verkið er á Ice- landair hótelinu á Akureyri. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þetta verk hef- ur vakið tölu- verða athygli. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Þetta verk er eftir Aðalheiði. Morgunblaðið/Kristján MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 9

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.