Morgunblaðið - 24.06.2020, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020
É
g tilheyri kynslóð sem man eftir
vondum vegum og finnst í raun al-
veg merkilegt að hægt sé að bruna
til Akureyrar á örfáum tímum,“ seg-
ir Egill sem hefur alið manninn í 101
til fjölda ára þar sem hann býr í hjarta mið-
borgarinnar.
„Norðurland er sérlega fjölbreytt og mér
finnst líka þægileg tilfinning að vera kominn á
Ísland sem er dálítið mikið öðruvísi en það sem
ég þekki best. Fólkið talar meira að segja að-
eins öðruvísi en við fyrir sunnan,“ segir Egill
og bætir við að sér finnist sérstaklega
skemmtilegt að tala við skýrmælta Norðlend-
inga:
„Ég grínaðist með það um daginn að ég væri
svo mikið kamelljón að ég færi að tala norð-
lensku undir eins og ég kæmi þangað. Það eru
mest brögð að þessu þegar ég kem í Þingeyj-
arsýslur. Þannig var ég varla kominn til Húsa-
víkur um daginn þegar ég hóf að tala klingjandi
norðlensku. Ég get bara ekkert að þessu gert,
en fjölskyldu minni finnst þetta brjálæðislega
fyndið,“ segir hann og hlær.
Siglufjörður í sérstöku uppáhaldi
Spurður að því hvort hann eigi sér einhverja
uppáhaldsstaði á Norðurlandi nefnir hann
Siglufjörð sem hann segir í miklu uppáhaldi hjá
sér eftir þættina sem hann gerði og voru sýndir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Órakaður og alsæll Egill smellti í selfí þar
sem hann var á flækingi um Norðurland í síð-
ustu viku. Egill er mikill aðdáandi Siglufjarðar
og hvetur alla til að fara þangað. Svo bíður
hann þess að Akureyri verði að alvöru borg.
Morgunblaðið/Hafþór Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Finnst best að finna
laut við læk og sofna
í faðmi náttúrunnar
Egill Helgason hefur á ferli sínum sem sjónvarpsmaður ferðast víða um
landið. Hann gerði meðal annars góða þætti um Siglufjörð og þar heillaðist
hann mikið af þeim skemmtilega bæ en hann segir að sér finnist allt þetta
landsvæði skemmtilega ólíkt því sem hann á að venjast fyrir sunnan.
Margrét Hugrún | margret.hugrun@gmail.com
Egill segist alls ekki vera nein
miðbæjarrotta heldur kunni vel
við sig úti á landsbyggðinni.
Siglufjörður er
sögufrægur bær.
Egill segir að Ásbyrgi
sé einn af fallegustu
stöðum landsins.