Morgunblaðið - 24.06.2020, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 11
Norðurþing
Verið velkomin
Fuglastígur
á Norðausturlandi
www.northiceland.is
www.visithusavik.com
www.nordurthing.is
á RÚV nú í vetur. „Siglufjörður hefur svo mikla
og merkilega sögulega dýpt. Svo finnst mér
ævintýralegt að aka meðfram norðurströnd-
inni, frá Húsavík, út á Melrakkasléttu, Langa-
nes og til Vopnafjarðar. Þar er maður kominn
eins langt frá Reykjavík og hægt er, í mikið
strjálbýli,“ segir hann. „Stundum hefur maður
gott af því að vera þar sem er fátt fólk. Ég verð
reyndar alltaf hissa þegar fólk þekkir mig á
stöðum úti á landi en sjónvarpið sést víst þar
líka,“ segir hann kíminn. „Húsavík finnst mér
einnig vera indælisbær og ég á þann draum að
Akureyri verði einhvern tíma alvöru borg, Ís-
land má alveg við því að eiga tvær borgir.“
Á margar minningar úr upptökuferðum
fyrir sjónvarpið
Egill rekur aðra ætt sína í Húnavatns-
sýsluna, nánar tiltekið á Björnólfsstaði í
Langadal sem eru rétt hjá Blönduósi.
„Ég fór þangað einu sinni þegar ég var lítill
drengur með föðursystur minni og ég man að
mér þótti þetta heldur fornbýlt enda bjó þar
afabróðir minn ásamt ráðskonu sinni. Ég á í
sjálfu sér engar sérstakar æskuminningar
þarna að norðan því mínar minningar tengjast
aðallega upptökuferðum fyrir Sjónvarpið.
Sumir halda að ég sé holdgervingur 101-
mannsins, en það passar ekki alveg því ég hef
farið mjög víða um landið og tekið upp efni. Því
fylgir yfirleitt mikil keyrsla og vinna, því ekki
viljum við bruðla með fé Sjónvarpsins. Mest
hef ég farið á Siglufjörð og eignast þar ynd-
islega vini – en þessi landshluti togar mikið í
mig,“ segir hann og teygir sig eftir kaffibolla
um leið og hann heldur áfram: „Síldarminja-
safnið á Siglufirði er til dæmis alveg á heims-
mælikvarða og það er um að gera að gefa sér
góðan tíma til að skoða það vel. Fyrir fólk sem
hyggst gista á Siglufirði mæli ég tvímælalaust
með hótelunum tveimur, Hótel Sigló og Hótel
Siglunesi. Á síðarnefnda hótelinu er hinn róm-
aði marokkóski veitingastaður og á Akureyri
fær maður einn besta indverska mat á Íslandi –
að hugsa sér hvað heimurinn hefur breyst! Svo
borðaði ég líka á stað sem heitir Báran á Þórs-
höfn síðasta haust og það var afburðagóður
matur.“
Þingvellir „kidstöff“ miðað við Ásbyrgi
Að lokum nefnir Egill skrúðgarðinn á Húsa-
vík sem heillaði hann upp úr skónum. „Ég held
barasta að hann sé sá fallegasti á Íslandi, en
það er ekki auðvelt að finna hann. Líklegast er
best að fá leiðsögn frá heimamönnum. Svo er
það Ásbyrgi. Sigurður Pálsson vinur minn ólst
upp á næsta bæ við Ásbyrgi og sagði að miðað
við það væru Þingvellir „kidstöff“ – það er
nokkuð til í því. Ég var þar um daginn og
heyrði söng og kvak í ótal fuglategundum – hví-
lík upplifun! Best finnst mér samt alltaf á
ferðalögum að finna góða laut, helst við læk eða
á, og sofna síðan svolítið í skauti náttúrunnar,“
segir 101-maðurinn og náttúruunnandinn Egill
Helgason.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Þessi litríku hús setja
svip sinn á Siglufjörð. „Sumir halda að ég sé
holdgervingur 101-
mannsins, en það
passar ekki alveg…“