Morgunblaðið - 20.07.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.07.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2020 Við erum sérfræðingar í malbikun Horfur í efnahagsmálum ánæstu mánuðum eru ekki góðar en þó heldur betri en búist var við að yrði þegar spár voru gerðar fyrr á árinu. Þetta kom meðal annars fram í samtali Morgun- blaðsins við Konráð S. Guðjónsson, hag- fræðing Viðskipta- ráðs, og var tilefnið ummæli Ásgeirs Jónssonar seðla- bankastjóra um að útlitið væri betra nú en þegar samkomubannið var sett á í mars síðastliðnum.    Anna Hrefna Ingimundardóttir,forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, tekur undir þetta og segir batamerki sjást en óvissan sé einnig mikil. Þá segir hún: „Áskorunin nú er að undir- byggja traust hjá atvinnurekendum og neytendum þannig að fjárfesting geti átt sér stað sem mun þá skila sér í fjölgun starfa og aukinni einkaneyslu.    Tiltrú á framtíðarmöguleikumatvinnulífsins til að skapa verðmæti verður þannig undirstaða viðspyrnunnar. Þar munu yfirvöld leika mikilvægt hlutverk og nauð- synlegt að stefnan styðji við þá við- spyrnu með því að skapa hvata til fjölgunar starfa á ný. Þessu er hægt að ná fram, ekki með lang- vinnum sértækum aðgerðum, held- ur með því að létta af álögum á fólk og fyrirtæki og einfalda og skýra regluverk.    Til að mynda eru skattar á borðvið tryggingagjaldið, sem leggst beint á launagreiðslur, taldir íþyngjandi og hafa hamlandi áhrif á ráðningar. Aðrir skattar eru einn- ig háir hér á Íslandi ef við berum okkur saman við önnur lönd, s.s. fasteignaskattar og virðisauka- skattur.“ Anna Hrefna Ingimundardóttir Of miklar álögur á fólk og fyrirtæki STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Formaður kærunefndar jafnréttis- mála, Arnaldur Hjartarson, mun boða til fundar í nefndinni í ágúst til þess að unnt verði að ræða fram- komin drög að frumvarpi um ný jafnréttislög sem nýlega birtust í samráðsgátt stjórnvalda. Að hans sögn mun þá einnig gefast tækifæri til að ræða bréf umboðsmanns Al- þingis til forsætisráðherra. Arnaldur er í fríi úti á landi og aðrir nefndarmenn einnig farnir í sumarfrí. Fá ekki aðild að málum Leitað var eftir áliti Arnaldar á gagnrýni á vinnubrögð kærunefndar jafnréttismála sem kom fram í bréfi umboðsmanns Alþingis til forsætis- ráðherra. Tilefni þess var endur- skoðun jafnréttislaganna sem nú er unnið að. Fram kemur í bréfi um- boðsmanns að ekki verði annað séð en nefndin viðhafi að mestu sömu aðferðir og mat og gagnrýni setts umboðsmanns beindist að í áliti frá árinu 2011. Meðal gagnrýnisatriða er að ekki sé gætt að réttarstöðu þeirra sem fengið hafa störf við ráðningu sem aðrir umsækjendur hafi kært. Þeir séu ekki taldir aðilar að málinu. Kom þetta meðal annars fram í mikið um- ræddum úrskurði kærunefndar- innar frá árinu 2011. Þetta hefur viðgengist mun lengur. Blaðið þekkir dæmi um karl- mann sem var í svipaðri stöðu all- mörgum árum fyrr. Kærandinn fékk öll hans gögn hjá jafnréttisnefndinni en hann fékk synjun um að fá að skoða gögn kærandans með sama hætti á þeim forsendum að hann væri ekki aðili að málinu. helgi@mbl.is Kærunefndin fund- ar um málin í ágúst  Kærandi fær öll gögn en sá sem fær starfið ekki Morgunblaðið/Hari Jafnrétti Verið er að endurskoða lögin um jafna stöðu kynjanna. „Undanfarið hafa verkefnin bara verið að aukast og málum sem hafa komið til okkar fjölgað talsvert,“ segir Ingi B. Poulsen, fyrrverandi um- boðsmaður borgarbúa. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá var starfsemi umboðs- manns borgarbúa færð til innri end- urskoðunar Reykjavíkurborgar fyrr í júlímánuði. Hið sama var gert við starfsemi persónuverndarfulltrúa borgarinnar. Ingi segir hugmynd um flutning ekki nýja af nálinni, þar sem ljóst hafi orðið fljótlega eftir stofnun embættisins árið 2013 að það yrði umfangsmeira en áður var talið. Ingi hefur gegnt starfi umboðs- manns Reykjavíkurborgar frá stofnun embættisins. „Ég ákvað sjálfur að nýta þennan tímapunkt til þess að hleypa öðrum að. Í flestum borgum sem við ber- um okkur saman við er átta ára skipunartími í störfum sem þessum. Þetta er mjög krefjandi starf og mikilvægt að tryggja reglulega end- urnýjun og þar með framþróun verkefnanna,“ segir hann. Ekki er ljóst hvort starfsgildum umboðsmanns fjölgar við þessar breytingar en spurður hvort innri endurskoðun sé í stakk búin til að taka við verkefnum umboðsmanns borgarbúa segir Ingi: „Já. Það er mjög öflugt og flott fólk sem mun vinna að þessum mál- um. Með því að færa þetta saman myndast meira svigrúm til að skoða málin frá fleiri sjónarhornum og setja fleiri þekkingarfleti og könn- unargrundvöll fyrir málin.“ Verkefni umboðsmanns sífellt fleiri  Fljótt ljóst að embætti umboðsmanns borgarbúa yrði umfangsmeira, að sögn Inga Ingi B. Poulsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.