Morgunblaðið - 20.07.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2020
60 ára Valdimar ólst
upp á Akranesi en býr í
Mosfellsbæ. Hann er
fiskeldisfræðingur að
mennt, er fyrrverandi
alþingismaður og hefur
verið framkvæmda-
stjóri Stéttarfélags
leiðsögumanna sl. tvö ár. Hann er for-
maður UMSK.
Maki: Þóra H. Ólafsdóttir, f. 1966, flug-
freyja og menntaður framreiðslumaður.
Börn: Ása Björk, f. 1998, og Róbert Leó,
f. 1999. Stjúpbörn eru Ólafur Daði, f.
1982, og Ólafur Nór, f. 2001. Barnabörn
eru orðin þrjú.
Foreldrar: Friðrik Adolfsson, f. 1923, d.
2005, útvarps- og sjónvarpsvirki, og
Jenný Lind Valdemarsdóttir, f. 1932, fv.
framkvæmdastjóri Fatagerðarinnar. Hún
er búsett í Reykjavík.
Valdimar Léó Friðriksson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú veist hver þú ert. Orsökin eru
erfiðleikar, sem sigrast má á. Vertu því
ekki bara til fyrir aðra, heldur leitaðu uppi
vin fyrir sjálfan þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Ást við fyrstu sýn er möguleiki í dag.
Heilbrigðar ákvarðanir hjálpa þér að vera
skýr í hugsun og láta af kvíðanum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Upplagt að bjóða vinum heim í
dag og halda þeim teiti. Láttu sem ekkert
sé þótt einhver mótbyr verði.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú finnur fyrir auknum kröfum frá
fjölskyldunni í dag. Nú ríður á miklu um
framhaldið og þá máttu láta tillitsemina
ráða ferðinni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það skiptir öllu máli að hlutirnir séu
rétt framkvæmdir; annars áttu á hættu að
árangurinn verði heldur endasleppur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Viðkvæmt leyndarmál er þér falið
svo gættu þess að bregðast ekki því
trausti. Reyndu að sýna þolinmæði.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú er rétti tíminn til að taka til hend-
inni heima fyrir og losa sig við það sem þú
hefur ekki þörf fyrir lengur. Spurningin er
hvort væntingar þínar til viðkomandi hafi
verið raunhæfar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sýndu samstarfsmönnum
þínum skilning þegar vinnuáætlanir þeirra
falla ekki alveg saman við þínar. Mundu að
kærleikurinn felst meðal annars í viljanum
til að gefa og þyggja.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur lagt óhemju hart að
þér að undanförnu og hlýtur nú umbun
erfiðis þíns. Viðraðu hugmyndir þínar og
veittu viðbrögðunum eftirtekt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta er góður dagur til að taka
áhættu. Nú er rétti tíminn til að stefna fé-
lögunum saman til fundar og leggja á ráð-
in.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert í góðum samböndum og
ættir að notfæra þér þau til að koma góð-
um málum á framfæri. Nú er rétt að
staldra við og bíða færis.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Komi til árekstra milli þín og vinar
eða samstarfsmanns skaltu varast að láta
reiðina ná tökum á þér. Hugurinn starfar á
ógnarhraða.
þar sem Set Pipes GmbH hóf starf-
semi 2010 og nýlega var stofnað
sölufyrirtæki í Danmörku Set Pipes
AS. Starfsmannafjöldi er um 90
manns og tekjur samstæðunnar á
síðasta ári námu 3,3 milljörðum
króna.
góðri stöðu í einangrun stálröra
með plaströrum Steypuiðjunnar og
rekstur félaganna var sameinaður
fimm árum eftir stofnun Set. Starf-
semin er nú á fjórum stöðum. Á Sel-
fossi, í vöruhúsi í Reykjavík, í bæn-
um Haltern am See í Þýskalandi
E
inar Pálmar Elíasson
fæddist í Vestmanna-
eyjum 20. júlí 1935 og
ólst þar upp með fjöl-
skyldu sinni á Há-
steinsvegi 15. Hann vann ýmis störf
á unglingsárum en sumarið 1955 fór
hann ásamt nokkrum Eyjapeyjum
að Laugarvatni þar sem þeir störf-
uðu næstu sumur við lagfæringar á
burstum Héraðsskólans sem eyði-
lögðust í bruna nokkrum árum fyrr.
Þar kynntist hann eiginkonu sinni
Sigríði Bergsteinsdóttur en þau hófu
síðar búskap á Selfossi. Á Selfoss
kom Einar fyrst sumarið 1958 og
starfaði við afleysingar á mjólkur-
bílum. Hann hóf nám í húsasmíði hjá
trésmiðju Kaupfélags Árnesinga og
bóklegan hluta þess í Iðnskóla Sel-
foss. Eftir útskrift árið 1964 hóf hann
eigin rekstur sem staðið hefur óslitið
síðan í 56 ár.
Trésmíðaverkstæðið í bílskúrnum
að Engjavegi 24 varð upphafið og
vinnuflokkur sem byggði fjölda
bygginga á miklum uppgangstíma í
sögu Selfoss. Stöðnunar tók að gæta
vegna efnahagsniðursveiflu undir lok
sjöunda áratugarins. Til að mæta
þeim samdrætti afréð Einar að
stofna fyrirtækið Steypuiðjuna sf.
árið 1968 og hóf framleiðslu á stein-
steyptum holræsarörum, milli-
veggjaplötum úr vikri og hleðslu-
steinum úr rauðamöl. Miklar fram-
kvæmdir stóðu þá yfir við gatnagerð
og fráveitur sveitarfélaga. Keyptur
var búnaður til uppsteypu á súrheys-
turnum og vinnuflokki var haldið úti í
nokkur ár undir forystu nema hans í
húsasmíði sem einnig er Vest-
mannaeyingur, Agnars Péturssonar.
Byggingaiðnaður tók aftur við sér og
umsvif Steypuiðjunnar urðu mest á
árunum um og eftir eldgosið á
Heimaey.
Einar stofnaði fyrirtækið Set hf.
árið 1978 ásamt Hans Bjarnasyni og
Kristjáni Óla Hjaltasyni. Tilgangur
félagsins var framleiðsla á forein-
angruðum stálrörum til hitaveitu-
lagna. Steypuiðjan kom fljótt af
stað framleiðslu á plasthlífðar-
rörum fyrir einangrun hitaveitu-
efnisins og síðan plaströrum fyrir
fleiri notkunarsvið. Set náði fljótt
Flugvöllur og herminjasafn
Einar hóf flugnám hjá flugskóla
Helga Jónssonar árið 1973. Þá vakn-
aði fljótt áhugi hans á að koma upp
aðstöðu til flugs á Selfossi og fékk
hann augastað á ónýttu landsvæði á
sandmelum sunnan við Selfoss. Við
eftirgrennslan við Pál Lýðsson kom í
ljós að landeigendur að þessu ónýtta
svæði höfðu áður fengið svipaða
fyrirspurn frá flugáhugamanninum
Jóni Guðbrandssyni dýralækni.
Samstarf þeirra varð fljótt til þess að
gerður var samningur við landeig-
endur um byggingu flugvallarins.
Flugklúbbur Selfoss var stofnaður
1974 í Steypuiðjunni og fram-
kvæmdir við byggingu vallarins hóf-
ust. Jón I. Guðmundsson, yfirlög-
regluþjónn í Árnessýslu, var einn
þeirra flugáhugamanna sem hóf flug-
nám á þessum tíma og varð hann
fyrsti formaður flugklúbbsins.
Sigurður Karlsson, verktaki og fyrr-
verandi starfsmaður Einars, átti
einnig mikinn hlut að byggingu og
viðhaldi flugvallarins.
Eftir að Einar tók að minnka við
sig vinnu við fyrirtæki fjölskyld-
unnar um og eftir aldamótin fór hann
að safna munum í flugskýli 1, aðal-
lega hlutum frá veru bresku strand-
gæslu flugsveitarinnar í Kaldaðar-
nesi. Arngrímur Jóhannsson,
flugstjóri og flugrekandi, kostaði
heimsókn eftirlifandi meðlima flug-
sveitarinnar til landsins í nokkur
skipti og kom að þeim viðstöddum
upp minnismerki á Selfossflugvelli
árið 1999. Bretarnir kunnu frá
mörgu að segja frá veru sinni á bökk-
um Ölfusár á viðsjárverðum tíma.
Safnið er merk heimild um þá sögu.
„Það hefur veitt mér mikla ánægju
að vinna við þau verkefni sem ég hef
tekist á við á lífsleiðinni og sjá það
sem þetta bras mitt hefur skilið eftir
sig,“ segir Einar. „Um leið vil ég
senda öllum vandamönnum, vinum
og samstarfsfólki á þeirri vegferð
góða kveðju á þessum tímamótum.“
Fjölskylda
Börn Einars og Sigríðar Berg-
steinsdóttur, f. 12.4. 1941, en þau
slitu samvistum 1985 eru 1) Berg-
Einar Pálmar Elíasson, fyrrverandi iðnrekandi – 85 ára.
Flugmaðurinn Einar í flugvél sinni TF PJE sem er Cessna Skyhawk 172.
Athafnamaður og safnstjóri
Safnstjórinn Einar við Willys-jeppa af herminjasafninu.
40 ára Dóra er Reyk-
víkingur og ólst að
mestu upp í Vestur-
bænum og býr þar.
Hún er leikkona að
mennt frá LHÍ og
lærði spuna og
sketsaskrif í UCB í
New York og The Second City í Chicago
og stofnaði Improv Ísland. Dóra hefur
leikið í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og
leikhúsi og var yfirhandritshöfundur Ára-
mótaskaupsins 2017 og 2019.
Sonur: Ragnar Eldur Jörundsson, f.
2010.
Bróðir: Gunnar, f. 1985.
Foreldrar: Lilja Jóhannsdóttir, f. 1956,
kennari í Grunnskóla Seltjarnarness, og
Jóhann Þór Magnússon, f. 1955, verk-
fræðingur. Þau eru búsett á Seltjarnar-
nesi.
Dóra Jóhannsdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Þráinn
Vídalín Sævarsson
fæddist 20. ágúst
2019 kl. 9.20. Hann
vó 4340 g og var 52
cm langur. Foreldrar
hans eru Ásdís Erla
Erlingsdóttir og
Sævar Vídalín Krist-
jánsson.
Nýr borgari