Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.07.1988, Síða 4

Bæjarins besta - 06.07.1988, Síða 4
4 BÆJARINS BESTA BB SPYR Hvernig þótti þér til takast með Ísafjarðarhátíð? Ingibjörg Valdimarsdóttir: Ég varð ekki vör við hana, ég er svo nýkomin heim. En hún hefur ábyggilega tekist vel. Ernir Ingason: Alveg svakalega vel, sérstaklega hjá veðurguðunum. Þeir stóðu sig með prýði. Magnús Reynir Guðmundsson: Mjög vel heppnuð, og veðrið eftir því. Reynir Ingason: Alveg einstaklega vel. Efnahagsstefna I molurn Eins og stendur í júlíbyrjun 1988 eru mörg teikn á lofti sem sýna glöggt að ríkisstjórnin hef- ur nánast engin tök á efnahags- málum þjóðarinnar. Eftirgeng- isfellinguna í maí rauk verð- bólgan upp úr öllu valdi og fór yfir 50% á ársgrundvelli. Þessi tala segir þó ósköp lítið. Verð- bólgan er reiknuð út fyrir einn mánuð og síðan framreiknuð fyrir eitt ár út frá þessu. Ríkis- stjórnin og talsmenn hennar halda því fram að í árslok verði verðbólga innan við 25% á árs- grundvelli. Þrátt fyrir þetta og kannski einmitt vegna þessarar umræðu er orðið nokkuð Ijóst að heldur litlar lfkur eru á því að núverandi ríkisstjórn takist að ná árangri í baráttunni við verð- bólgudrauginn. Auk verðbólgunnar eru önn- ur hættumerki framundan. Ef verð á freðfiskmörkuðum Is- lendinga í Bandaríkjunum og Evrópu heldur áfram að lækka er nokkuð ljóst að tekjur lands- ins minnka að raungildi. Það væri glapræði að fara gengis- fellingarleiðinna oftar á þessu ári. Nægir að nefna síðustu gengisfellingu og eftirfylgjandi verðbólgu. Það er nefnilega skammgóð- ur vermir að pissa í skóinn sinn. Það hlýnar á fótunum fyrst en svo verður enn kaldara og óþægilegra á tánum. Eyðslusöm þjóð á vertíð fslendingar eru vertíðarfólk. Á vertíðinni vinna menn þrot- laust til þess, að sjálfsögðu, að hafa gott upp úr sér. Þess sér víða stað í þjóðfélaginu að þjóðin hefur lifað margar góðar vertíðir. Glæsileg híbýli oggóð- ur bílakostur eru dæmi þess ásamt nokkuð almennri heimil- istækjaeign og ýmsu öðru sem nauðsynlegt þykir. Ein skýring er sú að lengi vel greiddu menn ekki raunverulega vexti af lánsfé. Það rýrnaði vegna lágra raunvaxta. Þetta notfærði stór hópur íslnedinga sér óspart bæði til bygginga íbúðarhús- næðis og í atvinnurekstri. Á síð- ustu árum hefur fólki verið gert mögulegt að spara með raun- vöxtum, sem að sjálfsögðu hafa krafist hárra útlánsvaxta á móti. Og háir vextir á lánsfé eru eitt helsta umkvörtunarefni margra. En lækkun þeirra leysir ekki efnahagsvanda afkomenda víkinga, sem allir vildu vera kóngar og losna við að borga skatta. Hins vegar gera háir raunvextir þá kröfu til atvinnu- fyrirtækja, að þau standi sig í stykkinu. Nú er ekki lengur hægt að taka vitlausar ákvarðanir vegna þess að lánsfé er ódýrt. Bað er skilyrði að atvinnurekstur skili arði. Nú má enginn móðgast þótt þessu sé varpað hér fram. Rýrnandi króna gerir miklar kröfur til allra þeirra sem hana meðhöndla. Á það jafnt við um stjórn atvinnurekstrar og ein- staklinga. í dag er það kolröng ákvörðun að kaupa eitthvað á lánum einum. Samt halda at- vinnurekendur og húsbyggj- endur áfram á vertíðinni Fjár- festa strax er mottóið. Af hverju? Jú af því að pabbi og mamma gátu það. En var það eðlilegt? Tæpast, þó þetta ástand hafi hjálpað íslending- um til að verða ein af best hýstu þjóðum í heimi. En þetta gengur ekki lengur. Nú er það krafan að verðmæti standi bak við íslensku krónuna þegar hún er lánuð. lanuð. Vertíðin er búin. Fólk getur ekki lengur lifað í gróðahyggju verðbólgunnar. Vertíðinni er lokið hvort sem okkur líkar betur eða verr. Sumum stjórnarþingmönn- um líkar þessi staðreynd illa. Þeir vilja gengisfellingar á færi- bandi. Stór hluti almennings er sömu trúar. Framtíðn sker úr um réttmætið.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.