Bæjarins besta - 04.01.1989, Qupperneq 2
2
BÆJARIJNTS BESTA
Fjórðungssjúkrahúsið:
„Yongóður um að
ná samkomulagi
— segir yfírlæknir. Sendinefnd
á fund ráðherra á morgun
Fulltrúar frá landlæknisemb-
ættinu og Innkaupastofnun ríkis-
ins komu á vegum heilbrigðis-
ráðherra til ísafjarðar í gær til að
skoða aðstæður í sjúkrahúsun-
um tveimur og eiga viðræður við
stjórn sjúkrahússins um væntan-
lega flutninga. Guðjón Magnús-
son aðstoðarlandlæknir var
meðal þeirra sem komu vestur.
Tilgangur þessarrar heimsóknar
var, að sögn Kristins Benedikts-
sonar yfirlæknis, sá að kanna
hvort ástæða væri fyrir þeim við-
horfum starfsfólksins að engin
leið sé að byrja starfsemi í nýja
húsinu strax.
Eftir að fólkið hafði skoðað
bæði sjúkrahúsin var haldinn
fundur með sjúkrahússtjórninni
og yfirlækni á Hótel ísafirði og
að sögn Kristins fóru þar fram
könnunarviðræður og undirbún-
ingur að fundi fulltrúa stjórnar.
„Ef tæki á forgangslista verða pöntuð strax samþykkjum við flutn-
ing eftir 2Vi - 3 mánuði“ segir yfirlæknir
starfsfólks, byggingarnefndar og
bæjarstjórnar með heilbrigðis-
ráðherra í Reykjavík á fimmtu-
dag.
„Á þeim fundi vonumst við til
að ná samkomulagi við ráðherra
um að breyta ráðgerðum inn-
flutningsdegi“ sagði Kristinn í
samtali við BB. „Ef tæki á for-
gangslista verða pöntuð strax er
líklegt að við getum samþykkt
flutning eftir 2 1/2-3 mánuði,
með því skilyrði að þau verði þá
komin og við fáum að fylejast
með því.“
Aðspurður kvaðst Kristinn
vongóður um að ná samkomu-
lagi þar sem þessir aðilar sem
komu í gær hefðu sýnt mikinn
skilning á málstað starfsfólksins.
Umferðarslys:
Bílvelta
á Óshlíð
— ökumaður grunaður
um ölvun við akstur
Um klukkan sjö á mánudags-
morguninn veitti lögreglumað-
ur, sem leið átti um Oshlíð, því
athygli að hjólför lágu út af veg-
inum á milli vegskálanna
tveggja. Við nánari athugun
kom í Ijós að Pajero jeppi var
þar í fjörunni og í honum einn
Lögreglan:
Yitni vantar
Lögreglan á ísafirði lýsir eftir
vitnum að eftirfarandi ákeyrsl-
um en tjónvaldar sinntu ekki
þeirri skyldu sinni að tilkynna
um óhöppin til réttra aðila.
Laugardaginn 17. desember
1988 kl. 17.30 var ekið á bifreið-
ina í-493 sem er af gerðinni Ford
Cortina, rauð að lit, þar sem hún
stóð við Stórholt 15 á ísafirði.
Tjónvaldur fór af vettvangi án
þess að tilkynna um atburðinn.
Mánudaginn 26. desember
1988 um kl. 23.30 var ekið á bif-
reiðina í-4323 sem er af gerðinni
Chevrolet Monza, blá að lit, þar
sem hún stóð við Fjarðarstræti 2
á ísafirði. Þar fór tjónvaldur
einnig af vettvangi án þess að til-
kynna um atburðinn.
Um 50 metrar eru frá veginum niður í fjöru þar sem bifreiðin
staðnæmdist.
maður.
Ekki er vitað hversu lengi
maðurinn hafði verið þarna í
fjörunni en giskað er á tímann
frá kl. 04-05.
Ræst var út hjálparlið til að
koma manninum á sjúkrahús.
Vegna erfiðra aðstæðna þurfti
að hífa manninn upp með bíl út-
búnum spili. Maðurinn þykir
hafa sloppið furðu vel miðað við
aðstæður. Hann fótbrotnaði og
hlaut minniháttar meiðsl. Bíllinn
er talinn ónýtur. Grunur leikur á
að ökumaður hafi verið ölvaður.