Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.01.1989, Side 3

Bæjarins besta - 04.01.1989, Side 3
BÆJARIJNTS BESTA Bifreiðaskoðun íslands: 99 F áum lítið að yitau segja lögreglustjóri og fyrrverandi starfsmaður Bifreiðaeftirlitsins. Aðili á Akranesi mun sjá um ökupróf fyrir Yestfirði „Það eina sem ég veit er að þetta nýja fyrirtæki hefur tekið þetta húsnæði á leigu og mér hef- ur verið sagt upp“ sagði Arnór Jónsson fyrrverandi starfsmaður Bifreiðaeftitlits ríkisins í samtali við BB þegar hann var spurður um á hvaða hátt fyrirkomulag við skoðun bifreiða breyttist við tilkomu hinnar nýju Bifreiðar- skoðunar íslands, sem tekur við starfsemi Bifreiðeftirlitsins. Pétur Kr. Hafstein sýslumað- ur og lögreglustjóri sagði í sam- tali við blaðið að embættinu Aramótin: — tveir teknir grunaðir um ölvun við akstur Mikið annríki var hjá lögregl- unni á ísafirði eftir kl. 4 á nýárs- dagsmorgun, um það leyti sem skemmtistaðirnir voru að loka. MikiII fjöldi beiðna barst um að- stoð í heimahús vegna ölvunar og óláta, það mikill að um tíma var ekki hægt að sinna öllum beiðnum sem bárust. „Þetta kom eins og holskefla, allt á sama tíma“ sagði Jónas H. Eyj- ólfsson yfirlögregluþjónn í sam- tali við BB. Á götum úti var hins vegar frekar rólegt og engin meirihátt- ar óhöpp urðu. Tveir voru teknir grunaðir um ölvun við akstur, einn á Þingeyri og annar á ísa- firði. Sá á Þingeyri hafði ekið utan í tvo bíla og skemmt þá. Sá á ísafirði hafði aftur á móti velt bíl sínum niður í fjöru á Hnífs- dalsvegi, rétt innan við Krók. Að sögn sjónarvotts mun sá öku- maður hafa setið með flöskuna í hendi er lögreglan kom á vett- vang. Einn aðili gisti fangageymslur lögreglunnar aðfaranótt nýárs- dags og annar nóttina á eftir. „Það má segja að helgin hafi verið stórslysalaus. Hún fór bet- ur en á horfðist“ Eyjólfson. sagði Jónas hefðu engar upplýsingar borist um rekstur Bifreiðaskoðunar ís- lands, utan það að borist hefði bréf frá dómsmálaráðuneytinu um framkvæmd ökuprófa. Þar verður sú breyting á að hér eftir mun umdæmisfulltrúi á Akranesi sjá um öll ökupróf á Vesturlandi og Vestfjörðum. Pétur sagðist ekki sjá í fljótu bragði að þjónustan gæti batnað með þessum hætti. Arnór Jónsson sagði þessa breytingu fáránlega. „Það er lagt í hendur þessa manns hvort hann kemur hingað einu sinni í mán- uði eða aðeins þegar einhver ákveðinn fjöldi er kominn af nemendum sem ætla að taka próf“ sagði hann. „Við höfum ekki fengið neitt um þessi mál að vita nema það sem maður hefur frétt í fjölmiðl- um“ sagði Pétur Kr. Hafstein. „Að vísu hefur verið gefin út auglýsing í Stjórnartíðindum um skráningu ökutækja, skoðun þeirra og eftirlit þar sem fram kemur að Bifreiðaskoðun ís- lands taki frá áramótum við hlut- verki Bifreiðaeftirlits ríkisins að þessu leyti, þar á meðal álestur ökumæla og óljóst er hvernig framkvæmd þess verður hagað. Það hefði verið eðlilegt að lögreglustjórar hefðu fengið að vita um hvernig þessi fram- kvæmd ætti að vera, til dæmis til að geta svarað þeim fjölmörgu fyrirspurnum sem hafa borist hingað. Það er allt á huldu um ýmis atriði sem snúa að löggæsl- unni, til dæmis varðandi eftirlit og skoðun á ástandi ökutækja við árekstur sem Bifreiðaeftirlit ríkisins hefur annast. Það hefur þurft að kalla bifreiðaeftirlits- manninn hér á vettvang þegar um meiriháttar árekstur er um að ræða en við köllum náttúru- lega engan á vettvang frá Akra- nesi eða Reykjavík.“ n! V erðhru Stor rýmingarsala 20-50% afsláttur af öllum vörum verslunarinnar næstu daga vegna breytinga. VINNUVER Mjallargata 5 •S 3520

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.