Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.01.1989, Blaðsíða 6

Bæjarins besta - 04.01.1989, Blaðsíða 6
6 BÆJARINS BESTA Hærri skattar - dýrara bensín og - gengisfelling! Ísafjarðarbíó Dagana 5. jan - 9. jan Vítisvélin I auðnum Afganistan er háð grimmileg barátta innfæddra við vítisvélina sem æðir um og tortímir öllum sem á vegi hennar verða. Rússneskir her- menn þurfa ekki eingöngu að sigrast á frelsisbarátt- umönnum, heldur og samvisku sinni.. Mögnuð spennumynd Hrikaleg atriði Aðalhlutverk: George Dzundua, Jason Patric og Steven Bauer- Leikstjóri: Kevin Reynolds Sýnd fimmtudagskvöld kl. 9 Sýnd föstudagskvöld kl. 9 D.O.A. Þá er hún komin hér hin frábæra spennumynd D.O.A. en hún er gerð af sputnikfyrirtækinu Touch- stone sem sendirfrá sér hvert trompið á fætur öðru, þar á meðal „Good Morning Vietnam". Þau Dennis Quaidog Meg Ryan gerðu þaðgott í „Innerspace". Hér eru þau aftur komin í þessari stórkostlegu mynd. Sjáðu hana þessa! Sýnd sunnudag ki. 9 ^ Sýnd mánudag kl. 9 Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar hefur birt landslýð fagnaðarboðskap- inn á nýju ári. Með aðstoð margfrægra huldumanna voru skattar hækkaðir og er tekjuskattur í staðgreiðslu nú 30.8% en útsvar 6.94% að meðaltali yfir landið. Um er að ræða nokkra hækkun tekjuskattsins sem var 28.5% á fyrsta ári staðgreið- slu. Þannig er nú staðgreið- sla orðin 37.74% en var 35.2% á fyrra ári. Persónu- afsláttur er nú 17.842 kr. á mánuði en var 16.092 fyrir áramót. Að sögn kunnugra heldur bann ekki í við lánskjara- vísitöluna eins og upphaf- lega var áætlað. Söluskattur á matvæli var tekinn upp í tíð fyrri ríkisstjórnar, þeirrar sem Þorsteinn Pálsson stýrði. Hann er nú 25% og einnig kom til sérstakur söluskattur á ýmsar þjón- ustugreinar, bókhaldara, lögfræðinga, fasteignasala og annarra slíkra. Vörugjald var lagt á með lögum um svipað leyti og tekjuskatturinn hækkaði. íslenskir iðnrekendur bera sig illa undan því. En hvaða máli skiptir það? Að sjálf- sögðu þarf að borga allan rekstur velferðarþjóðfé- lagsins. Um það geta allir verið sammála að enginn vill vera án velferðarinnar. En spyrja má: Er velferð- in rót vandans? Er ekki frek- ar um að kenna of linum tökum, því sem sumir vilja kalla stjórnleysi eða jafnvel óstjórn? Alltof lítið hefur borið á hugmyndum um að draga saman í ríkisrekstri. Bensín er ekki brennivín Á nýársdag hækkaði bensíní verðium 12% ogfór hljótt þar til að ljóst var að ekki var mögulegt að birgja sig upp. Það sem hækkaði var skatthluti bensínverðs- ins, svokallað bensíngjald. í því tilfelli var það upplýst að ekki hefði reynst mögu- legt að hækka brennivín vegna verðstöðvunarlaga. Neysluvarning má ekki hækka en skatta má hækka þrátt fyrir verðstöðvun. Þess vegna hækkar bensín en ekki brennivín. Skilja þetta allir? En þar við sat ekki. Nú hefur gengi krónunnar ver- ið fellt um 4%. Mun það hækka framfærsluvísitölu um 1.5% að sögn viðskipt- aráðherra. Hér er rétt að staldra við. Stjórnarandstaðan segir þetta dæmi þess að ríkis- stjórnin sé að öðlast skiln- ing á vanda atvinnulífsins. En ekki muni nógu langt gengið. Sennilega er það rétt. Ærleg gengisfelling kann að koma útgerð og fiskvinnslu til góða ef ekki er skuldað í erlendum gjald- miðli og vissulega er það rétt, að mestu skiptir að undirstaðan, rekstrar- grundvöllurinn, sé fyrir hendi. Hann batnar ekki við til- komu Atvinnutrygginga- sjóðs útflutningsgreina. Hann gæti batnað við rétta gengisskráningu og litla verðbólgu. Þau atriði sem að framan voru nefnd eru síður en svo örugg tæki til að ná þessum síðastnefndu markmiðum. Til þess þarf eitthvað meira en hærri skatta og dýrara bensín. En vissulega er engin töfraformúla til, það er meinið.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.