Bæjarins besta - 04.01.1989, Side 10
10
BÆJARINS BESTA
Vestfjörðum auk tveggja þing-
manna. Á fundinum kom m.a.
fram að það væri ekki spurning
hvort göng kæmu í gegnum
Breiðadals- og Botnsheiðar
heldur hvenær.
Nýr skemmtistaður var opn-
aður í mars, þar sem Félags-
heimilið í Hnífsdal var áður til
húsa. Skemmtistaðurinn sem
hlaut nafnið Glaumbær var rek-
inn þar um nokkurra mánaða
skeið undir stjórn þeirra Ólafs J.
Einarssonar og Snorra Bogason-
ar, matreiðslumcistara.
Martha Jörundsdóttir var
kjörin ungfrú Vestfirðir á til-
komumikilli skcmmtun sem fór
fram í veitingahúsinu Uppsölum
í byrjun mars. Fimm stúlkur víðs
vegar af Vestfjörðum tóku þátt í
keppninni og var mikil spenna í
loftinu rétt áður en úrslit urðu
kunn.
Ríkismat Sjávarafurða stóð
fyrir úttekt á um 100 hraðfrysti-
húsum á landinu og í kjölfar
hennar sendi ríkismatið frá sér
skýrslu sem bar nafnið „Fisk-
vinnsla til fyrirmyndar". Meðal
þeirra fyrirtækja sem hlutu við-
urkenningu frá ríkismatinu var
FORRÉTTIR:
Tónwt vodka krapi
* * *
Hleypt egg ineð kampavínssósu
★ ★ ★
Gratinerud hörpuskel með Im'tlauksbraúði
★ ★ ★
FISKRÉTTIR:
Steinbítsrúllur með piparosti
★ ★ ★
Pönnusteiktur lax með sítrónusmjörsósu
* * *
K.1ÖTRÉTTIR:
Grísasneiðar með vínberjum
★ .'★★'
Kjúklingabringur með Tequilasósu
★ ★ ★
Piparsteik með piparsósu
★ ★ ★
EFTIRRÉTTIR:
Heimalagaður regnbogais
★ ★ ★
Ostaterta með ferskum ávöxtum
PANTIÐ BORÐ TÍMANLEGA
Þann 18. maí sigldi Guðbjörg ÍS inn í ísafjarðarhöfn eftir
gagngerðar breytingar sem framkvæmdar voru í Sichau skipa-
smíðastöðinni í Bremerhaven.
íshúsfélag ísfirðinga hf.
í mars var gerð opinber niður-
staða tveggja starfsmanna hjá
rannsóknarstofnun fiskiðnaðar-
ins á ísafirði á neysluvatni á ísa-
firði. í þeirri rannsókn kom fram
að drykkjarvatn á ísafirði var
ónothæft. Meðal annars fundust
240 kólígerlar og 49 saurgerlar í
einu 100 ml. vatnssýni sem tekið
var í Hnífsdal. „Hér er mjög al-
varlegt vandamál um að ræða
sem unnið cr að finna lausn á“
sagði Haraldur L. Haraldsson
bæjarstjóri í samtali við BB.
Þorramótið á skíðum fór fram
í mars eins og endranær. Mótið
fór hið besta fram og unnu
heimamenn til margra verðlauna
eins og svo oft áður. Pá var í-
þróttamaður ársins í Bolungar-
vík útnefndur með pompi og
pragt í Félagsheimilinu í Bolung-
arvík. Sá sem hlaut þann titil að
þessu sinni var sundmaðurinn
góðkunni Hannes Már Sigurðs-
son. Þetta var í annað sinn sem
Hannes hlaut þennan titil.
íþróttafélag fatlaðra á Vest-
fjörðum var stofnað í mars og
var fyrsti formaður þess kjörinn
Gísli Hjartarson. Almennur
safnaðarfundur í ísafjarðarsókn
var haldinn í mars. Á fundinum
gat um sóknarnefnd störf sín og
undirbúning kirkjubyggingar.
Safnaðarfundurinn mælti með
uppfyllingunni fyrir framan nýja
sjúkrahúsið sem kirkjulóð.
Finnabær, nýr skyndibitastað-
ur var opnaður í Bolungarvík í
mars. Staðurinn sem stendur við
Kirkjuveg 1 var í eigu Bjargar
Jónsdóttur sem einnig hafði rek-
ið Shell skálann í Bolungarvík.
Finnabær hefur nú skipt um eig-
endur.
Apríl
Föstudaginn 8. apríl frum-
sýndi Leikfélag Bolungarvíkur
sakamálaleikrit í léttum dúr,
„Slétturekuna", í leikstjórn
Oktavíu Stefánsdóttur, hinnar
sömu og leikstýrði „Fimm kon-
um“ á Flateyri.
Nýr 53 tonna stálbátur bættist í flota ísfirðinga í maí. Það var
Hulda ÍS sem smíðaður var í Svíþjóð. Eigandi bátsins er
Arnór Sigurðsson, skipstjóri.