Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.01.1989, Blaðsíða 11

Bæjarins besta - 04.01.1989, Blaðsíða 11
BÆJARINS BESTA 11 Vestfirska fréttablaðið, fyrsta óháða fréttablaðið á ísafirði var selt. Árni Sigurðsson stofnandi blaðsins seldi það nýstofnuðu fyrirtæki Grafíktækni hf. Fjárhagsáætlun ísafjarðar- kaupstaðar var samþykkt í apríl. Megn óánægja var ríkjandi inn- an menningarráðs ísafjarðar með áætlunina, því að fé til menningarmála hafði verið skor- ið nokkuð við nögl að þessu sinni. Fimmtudaginn 8. apríl var slökkvilið ísafjarðar kallað út að Niðursuðuverksmiðjunni hf við Sundahöfn. Eldur var laus við kassastæðu sem stóð við vegg hússins. Litlar skemmdir urðu á húsinu. íkveikja var talin líkleg- asta skýringin sem eldsupptök. Mikill kraftur færðist í at- vinnulífið í Bolungarvík í apríl. Meðal annars kom Sólrún ÍS að landi með um 100 tonn af rækju eftir 20 daga túr, að verðmæti um 10.5 milljónir króna. Þá var einnig metafli hjá öðrum togur- um og bátum og má nefna það að Flosi ÍS frá Bolungarvík sló að öllum líkindum met er hann kom með 308 tonn að landi í mars, mestmegnis steinbít. Við samþykkt fjárhagsáætlun- ar bæjarsjóðs ísafjarðar / var ákveðið að selja öll hlutabréf bæjarsjóðs í Flugleiðum. Bæjar- sjóði bauðst tæplega 1,4 milljóna króna tilboð í bréfin frá Fjárfest- ingafélaginu hf og Hlutabréfa- markaðnum hf. Ákveðið var að taka tilboði Hlutabréfamarkað- arins. Ekki var tekin afstaða til tilboðs sömu aðila í hlutabréf bæjarins í Eimskipafélagi fs- lands hf. „Þetta kom skemmtilega á óvart“ sagði framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins á ísa- firði er stofnuninni barst pen- ingagjöf frá alþjóðlegum sam- tökum í Luxemburg. Þar var um að ræða 2.700 dollara gjöf frá al- þjóðlegu samtökunum Inter- national Bazar. íþróttafélag fatlaðra á ísafirði sendi stóran hóp íþróttamanna til að keppa á íslandsmeistara- mótinu í Boccia sem fór fram í Laugardalshöll fyrir páskana. Lið Isfirðinga stóð sig með ágæt- um og lenti í þriðja sæti. Útvegsbanki íslands hf á fsa- firði var í apríl verðlaunaður fyr- ir góðan árangur í rekstri. Fékk bankinn í viðurkenningarskyni veglegan verðlaunagrip sem hinn landsþekkti gullsmiður Jens Nítján bæjarstjórar, víðs vegar af landinu, héldu sinn árlega fund á ísafirði í maí. Myndin er tekin af hópnum rétt áður en hann lagði upp í útsýnisflug með Flugfélaginu Erni hf. Mikið hreinsunarátak var gert á ísafirði í júní. Á myndinni sjást tveir af höfuðpaurum átaksins, Jónas H. Eyjólfsson og Þorbjörn Sveinsson, skoða ástand fyrir utan Djúpbátinn hf ásamt Kristjáni Jónassyni, framkvæmdastjóra. Guðjónsson hafði smíðað. Auk þess fékk starfsmannafélag bankans á ísafirði kr. 75.000. Högni Þórðarson, bankastjóri Útvegsbankans á ísafirði kvaðst í samtali við BB vera mjög ánægður með þessi verðlaun. Sérstaklega þótti honum vænt um að fá verðlaunagrip eftir æskuvin sinn og nágranna, Jens Guðjónsson, gullsmið. Rörverk hf átti lægsta tilboðið sem barst í byggingu nýs íþrótta- hús á ísafirði. Tilboðið hljóðaði uppá tæpar 43 milljónir króna. Fyrir þá upphæð ætla Rörverks- menn að steypa upp húsið og ganga frá því að utan. Nokkrir unglingar á ísafirði tóku þátt í maraþondansi sem fór fram í Sponsinu, æsku- lýðsmiðstöð ísfirðinga. Ungling- arnir dönsuðu samfleytt í 27 klukkustundir. ísfirskir keppendur á Skíða- móti íslands stóðu sig með prýði Íetta árið sem og undanfarin ár. sfirska liðið kom heim með 10 gull af 20 mögulegum. Einar Ólafsson, göngumaður varð t.d. fjórfaldur Fslandsmeistari. Jón Friðgeir Einarsson var í apríl kjörinn fyrsti kjörræðis- maður Finnlands á Vestfjörðum. Það var sendiherra Finnlands á íslandi sem afhenti Jóni viður- kenningarbréf þess efnis þann 12. apríl. TIL SÖLU Til sölu er efri hæð að Fjarðar- stræti 17, ásamt hálfum kjallara. Einnig hálft bil í veiðarfæra- skemmu við Sundahöfn og 53 tonna nýr stálbátur. Upplýsingar gefur: Arnór Sigurðsson í síma 3442 ItPPSAtlR * si ★ ^ (EmnSTAÐURÍ V BÆJARIM+ | Laugardagskvöld Diskótek frá kl. 23 - 3 Aldurstakmark 18 ár T i i veir staðir á einum miða

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.