Bæjarins besta - 08.03.1989, Side 7
BÆJARINS BESTA
Fegurðarsamkeppni:
Fimm keppa um
titilinn Ungfrú Yestfirðir
Laugardagskvöldið 8. apríl
n.k. fer fram á veitingastaðnum
Uppsölum keppnin um fegurstu
konu Vestfjarða, „Ungfrú Vest-
firðir 1989“. Keppendur að þessu
sinni eru fimm. Þær eru: Hafdís
Jónsdóttir, Seljalandsveg 69,
Isafirði, Lilja Ingólfsdóttir,
Seljalandsveg 4a, ísafirði, Ás-
laug Fjóla Magnúsdóttir, Tún-
götu 20, Súðavík, Jóna Hrund
Jónsdóttir, Hlíðarveg 26a, ísa-
firði og Guðbjörg Hilmarsdóttir,
Miðtúni 27, ísafirði.
Keppnin sjálf verður laugar-
dagskvöldið 8. apríl og hefst kl.
19 með því að tekið verður á
móti gestum með fordrykk og
konfekti. Um kl. 20 ganga kepp-
endur og dómnefnd í salinn. Síð-
an verður snædd þríréttuð mál-
tíð. Þá verður tískusýning, þar
sem keppendur sína fatnað frá
versluninni Jóni og Gunnu, ísa-
firði, íþróttafatnað frá Sport-
hlöðunni, ísafirði og loðfeldi frá
Eggert feldskera, Reykjavfk.
Börn á aldrinum 3-7 ára sýna
fatnað frá Legg og Skel, ísafirði.
Stúlkur á aldrinum 13-15 ára
sýna jazzballett fatnað frá
„Dance France“ með nokkrum
léttum og góðum danssporum.
Síðan verða skemmtiatriði. Að
skemmtiatriðum loknum munu
stúlkurnar koma fram í sundbol-
um og samkvæmiskjólum. Það
verður svo um kl. 23 sem fegurð-
ardrottning Vestfjarða 1989
verður krýnd. Að því loknu
verður dansað til kl. 3 um nótt-
ina.
Aðstandendur keppninnar að
þessu sinni eru veitingastaður-
inn Uppsalir, Dagný Björk Pjet-
ursdóttir, framkvæmdastjóri
keppninnar og þjálfari stúlkn-
anna, Hrefna Bjarnadóttir þjálf-
ari, Hárgreiðslustofa Siggu
Þrastar,sem sér um hárgreiðslu,
Svanlaug Guðnadóttir í verslun-
inni Krismu, sem sér um snyrt-
ingu og Toppblómið,sem sér um
skreytingar á lokakvöldinu.
Styrktaraðilar keppninnar
eru: Gullauga, sem gefur feg-
urðardrottningu Vestfjarða
handsmíðaða nælu, Flugleiðir
ísafirði, sem gefa fegurðar-
drottningu Vestfjarða farseðil
ísafjörður - Reykjavík - ísa-
fjörður, Sporthlaðan, sem gefur
fegurðardrottningu Vestfjarða
íþróttafatnað, Hljómtorg, sem
gefur öllum keppendum hljóm-
plötu að eigin vali, snyrtivöru-
verslunin Krisma, sem gefur öll-
um keppendum snyrtivörur og
heildverslun Hafsteins Vil-
hjálmssonar, sem býður öllum
gestum upp á konfekt með for-
drykknum.
Hafdís Jónsdóttir, IS.ára
nemandi í M.í. Foreldrar:
Jón Guðni Pétursson og Est-
er Hallgrímsdóttir. Áhuga-
mál: Fatasaumur, líkamsrækt
og tónlist.
Áslaug Fjóla Magnúsdóttir,
18 ára starfstúlka á barna-
heimili. Foreldrar: Magnús
Steindórsson og Þóra Ragn-
arsdóttir. Áhugamál: Ljóð-
list, söngur, hundar og
líkamsrækt.
Jóna Hrund Jónsdóttir, 22
ára afgreiðslustúlka. Foreldr-
ar: Jón Egilsson og Sjöfn
Kristinsdóttir. Áhugamál:
Ferðalög, handbolti, hestar
og útilegur.
Guðbjörg Hilmarsdóttir, 18
ára starfsstúlka á barnaheim-
ili. Foreldrar: Hilmar Stein-
grímsson oj> Þórdís Jóhann-
esdóttir. Ahugamál: Skíði,
hestar og ferðalög.
Lilja Ingólfsdóttir, 21 árs
starfsstúlka á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á ísafirði. For-
eldrar: Ingólfur Eggertsson
og Herborg Vernharðsdóttir.
Áhugamál: Saumaskapur,
ferðalög, að horfa á góða bíó-
mynd, kettir, ballferðir og
tónlist.
Nýir Vestfirðingar:
Hrafnhildur Haraldsdóttir
og Guðjón Elí Sturluson,
Hlíðarvegi 27, ísafirði, eign-
uðust son þann 20. febrúar.
Drengurinn var tæpar 16
merkur og 53 sm.
Svanhildur Guðmundsdóttir
og Björn Kristjánsson,Holta-
brún 3, Bolungarvík, eignuð-
ust dóttur þann 21. febrúar.
Stúlkan var 3400 grömm og 52
sm.
Birna Bragadóttir og Alfreð
Erlingsson, Eyrargötu 8, ísa-
firði, eignuðust son þann 22.
febrúar. Drengurinn var 4050
grömm og 55 sm.
Helga Friðriksdóttir og Smári
Haraldsson, Miðtúni 33, ísa-
firði, eignuðust son þann 3.
mars. Drengurinn var 4300
grömm og 56 sm.
ATVINNA
Fólk óskast til afgreiðslustarfa.
Vaktavinna. Til greina kemur að fólk skipti
með sér vöktum.
\Jís£sr
Sími4306