Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.03.1989, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 08.03.1989, Blaðsíða 8
8 BÆJARINS BESTA Gallhörðustu bjóraðdáendurnir voru mættir fyrir utan ríkið nokkru fyrir opnun þann 1. mars. Bjórinn: „Heldéggangiheim...“ Vestfirðingar héldu upp á B-daginn án vandræða Það hcfur líklega aldrei verið jafnmikið að gera á miðvikudegi Hestur og hesthús til sölu Til sölu er hesthús á Búðartúni. Einnig er til sölu hesturinn Mósi sem er 9 vetra klárhestur með tölti, mjög gæfur og góður. Reiðtygi gætu fylgt. Upplýsingar í S 4030. í ríkinu á ísafirði og 1. mars síð- astliðinn. A einum degi seldust 16.000 dósir af bjór og 3.840 dósir voru sendar á staði utan ísafjarðar. Og á föstudag var öll fyrsta sendingin uppseld, 960 kassar. Alhörðustu bjóraðdáendurnir voru mættir fyrir klukkan níu fyrir utan áfengisútsöluna og biðu þar í bílum sínum eftir að lásinn yrði tekinn af og mjöður- inn góði fengist keyptur á lögleg- an hátt á íslandi í fyrsta sinn í yfir 70 ár. Um kvöldið voru svo skemmtistaðirnir opnaðir gest- um sem byrjuðu að streyma inn um níuleytið. Menn voru að vonum kátir og óskuðu hverjum öðrum til hamingju með daginn í annarri hverri setningu um leið og krúsunum var slegið saman svo við lá að mjöðurinn færi til spillis. Mátti ekki minna vera Að Uppsölum sá BG-flokkur- inn um létta jazzstemningu við góðar undirtektir gesta. Karl Geirmundsson veitingamaður sagði að ásóknin hefði verið mikil í bjórinn og á dansleiknum á laugardag kláruðust birgðirnar rétt fyrir kl. þrjú. „Maður vissi ekki hvað maður átti að panta mikið, þetta mátti að minnsta kosti ekki minna vera“ sagði hann. „Það er ekki gott að s’egja hvernig þetta verður í framtíð- inni.“ Stefnt er að því að hafa opið að Uppsölum á fimmtudögum auk venjulegs dansleikjahalds um helgar og bjóða þá upp á létta rétti. f Staupasteini léku þeir Michael Bradley frá írlandi og Eric Lewis frá Bretlandi á kassagítara og gáfu gestum þar góða innsýn í breska kráar- Bjórinn virðist losa um ýmsar hömlur... Örby Igjuof nar—margar stærðir SIEMENS - 500w/l 1 lítra - 700w/29 lítra ÍX SAMSUNG-500w/ll lítra-500w/17 lítra PANASONIC - 600w/18 lítra Verð frá kr. 13.950.- - 13.250.- stgr. PÖLLINN HF. PÓLLINN HF VERSLUN SÍMI 3792 stemmningu á miðvikudags- kvöldið og reyndar írska líka þegar leið á kvöldið. Ekki verð- ur um að ræða pöbbarekstur í Staupasteini í náinni framtíð þar sem staðurinn hentar ekki nógu vel fyrir slíkt að mati eigenda, en til stendur að fara yfir í kaffi- teríurekstur eftir mánuð, auk þess rekstrar sem fyrir er. BB — fyrir þig

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.