Bæjarins besta - 14.06.1989, Qupperneq 4
4
BÆJARINS BESTA
rr. \
Ísafjarðarbíó
Gamanmyndin
MARGTER
LÍKTMEÐSKYLDUM
OUdWMOÖft
KrkCamefon
Það er ferlega hallærislegt að
vera 18 ára menntaskólanemi
með heila úrfertugum,
forpokuðum skurðlækni, en
jafnvel enn verra að vera
frægur læknir með heila úr 18
ára snargeggjuðum töffara...
Seinni sýning
fimmtudag kl. 2100
ALLTER
BREYTINGUM HÁÐ
★★★★ - Variety
★★★★ - Box Office
Þarf að segja meira???
Don AmeceúrTrading Places
og Cocoon og Joe Mantegna
úr Three Amigos og Suspect
fara með aðalhlutverkin.
Sýnd föstudag kl. 2100
og þriðjudag kl. 2100
TUNGLYFIR PARADOR
Ný þrælfyndin gamanmynd
frá þeim sömu og gerðu
„Down and out in Beverly
Hills“. Það er ekki að sökum
að Sþyrja þegar atvinnulaus
leikari fær hlutverk sem alvöru
einræðisherra í S-Ameríku-
riki.
Sýnd sunnudag kl. 2100
og mánudag kl. 2100
L J
Eftir leikina stilltu þessir framtíðar knattspyrnumenn Isatjarðar sér upp fyrir Ijósmyndarann, ánægðir eftir skemmtilega leiki.
ÞESSIR ungu knatt-
spyrnumenn sem eru í 6.
flokki BÍ léku sína fyrstu
leiki í blíðunni síðastliðinn
laugardag. Kepptu þeir við
nágranna sína frá Bolungar-
vík og var mjög hörð keppni
á milli þessara bæjarfélaga.
Fyrri leik liðana lauk með
jafntefli 2-2 og voru þar A-lið
félagana á ferð. B-lið Bol-
ungarvíkur sigraði hins vegar
B-lið BÍ með tveimur mörk-
um gegn einu. Mikill fjöldi
áhorfenda var á leiknum sem
var hinn skemmtilegasti á að
horfa.
Sama dag kepptu B-lið
meistaraflokks BÍ og Bolung-
arvíkur og lauk þeim leik
með sigri BÍ-manna sem
skoruðu tvö mörk gegn engu.
Fjórir að passa einn....
RITSTJ O RN
í rétta átt
Samkomulagið sem viðskiptaráðherra gerði við viðskiptabankana
þrjá um kaup þeirra á hlut ríkisins í Útvegsbankanum og síðan sam-
einingu allra bankanna markar tímamót í íslenskri bankasögu.
Óheillaþróunin, sem leiddi til þess að hver sparisjóðurinná fætur
öðrum heimtaði að verða banki, án þess að hafa til þess nokkurt
bolmagn, hefur verið snúið við.
Þökk sé þeim er þar stóðu að verki.
í áraraðir hafa menn séð vankantana sem margir og smáir bankar
leiddu af sér. Yfirbyggingin óheyrileg, tilkostnaður í hámarki,
bankahallirnar í engu samræmi við getu bankanna, sem lánastofn-
ana. Það vantaði ekki að menn þóttust sjá þetta allt saman og töluðu
fjálglega um nauðsynlegar breytingar, fækkun og stækkun banka.
Einhverra hluta vegna hefur málið ætíð strandað þar til nú, að við-
skiptaráðherra hjó á hnútinn. Trúlegt er þó að sameiningin hefði átt
langt í land, ef hremmingar Útvegsbankans hefðu ekki komið til.
Sameining bankanna er flókin og skeður ekki með pennastriki
einu saman. Samruni höfuðstöðva og stoðdeilda, fækkun útibúa,
einkum á Reykjavíkursvæðinu, sala fasteigna, starfsmannamál.
Hagkvæmnin og sparnaðurinn, sem samruninn mun leiða af sér, skil-
ar sér ekki fyrst í fall, þvert á móti gæti hann leitt til útgjalda í byrjun.
Til lengri tíma litið er á hinn bóginn enginn vafi á, að færri og stærri
bankar eru á allan hátt betur í stakk búnir til að sinna hlutverkum
sínum, viðskiptavinum sínum til hagsbóta.
Viðskiptaráðherra var á sínum tíma legið á hálsi fyrir að selja ekki
Sambandinu, já eða KR-ingum, sem svo voru kallaðir, Útvegsbank-
ann. Sjá menn fyrir sér hver framvindan í bankakerfinu hefði orðið,
ef önnur en sú leið hefði verið valin?
íslensk stjórnmál hafa í gegnum tíðina gengið út á smáskammta-
lækningar hómópatans. Stjómmálamennirnir hafa alltof oft forðast
að horfast í augu við raunverulegan vanda hverju sinni. Þannig hefur
heftiplásturslækningin nánast orðið að reglu. Áhrifaríkari aðgerð-
um, líkt og uppskurði, ætíð slegið á frest. Vilji menn losna undan
krankleika þarf oft á tíðum að leggja á sig tímabundin óþægindi.
Hægur bati er varanlegri en áhrif töframixtúru.
Sameining bankanna er gott dæmi um langtíma markmið. Hún er
jafnframt hvatning til samruna og samstarfs á fleiri sviðum, ekki síst
í undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar fiskveiðum og vinnslu. Vonandi
erum við að átta okkur, vonandi erum við á leið út úr vitleysunni.
s.h.
BÆJARINS BESTA, óháð vikublað á Vestfjörðum. Útgefandi: H-PRENT sf, Suðurtanga 2, 400 ísafjörður, s 4560.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Blaðamaður: Vilborg Davíðsdóttir.
Útgáfudagur: Miðvikudagur. Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Suðurtanga 2, S 4570. Telefax, s 4564.
Setning, umbrot og prentun: H-prent sf, Suðurtanga2,400 ísafjörður.
íþróttir:
Framtíðar
knattspyrnumenn
ísafjarðar