Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.06.1989, Qupperneq 20

Bæjarins besta - 14.06.1989, Qupperneq 20
Alltaf eitthvað nýtt á stórgóðum afslætti. Heilsupannan komin aftur á kr. 2590,- íslenskur leiðarvísir fylgir. ///#/ straumur hf Rommkókoskúlurnar komnar aftur. siifurgotu s s 3321 Útsöluhornið: Skipasmíðastöð Marsellíusar hf: Stórfellt atvinnuleysi blasir við - ef fyrirtækið fær ekki smíðaverkefni fyrir haustið NÚ eftir að hinu nýja skipi fyrir Njörð hf í Sandgerði var hleypt af stokkunum er frekar lítið um verkefni hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar hf á ísafirði. Engir samningar um smíði á fleiri skipum liggja fyrir og fari svo að stöðin fái ekki leyfi fyrir smíði á öðru skipi má reikna með fjöldaupp- sögnum-með haustinu. Hjá fyrirtækinu starfa um 40 manns. „Við vonum í lengstu lög að okkur takist að fá smíða- samning og komum honum í gegnum Fiskveiðasjóð svo komist verði hjá uppsögn- um. Við erum með ákveðinn samning í deiglunni en það eru bara svo mörg ljón á veg- inum í þessu máli“ sagði Sæv- ar Birgisson, framkvæmda- stjóri í samtali við BB. „Það er búið að smíða svo mörg skip á undanförnum árum og það er því engin ástæða til að vera mjög bjartsýnn." Heilsugæslustööin: Tveir læknar hætta störfum vegna samstarfserfiðleika við yfirlækni stöðvarinnar VEIR læknar á Heilsu- gæslustöðinni á ísafirði láta af störfum á næstunni vegna samstarfsörðugleika við yfirlækni stöðvarinnar. Það eru þeir Guðmundur Ol- geirsson og Þórir Kolbeins- son. Þórir tekur við störfum heilsugæslulæknis á Hellu þann 16. júní næstkomandi en Guðmundur tekur árs- leyfi frá starfi sínu á ísafirði og fer til starfa á Höfn á Hornafirði í ágústmánuði. Læknarnir vildu ekki tjá sig um þetta mál í samtali við blaðið og ekki tókst að ná tali af formanni stjórnar Heilsu- gæslunnar í gær. Sveitarstjórnarmenn frá Vestfjörðum stilltu sér upp til myndatöku framan við göngin að lokinni skoðunarferð. Jarðgangagerð: Fyrri hálfleik lokið Vestfirðingar skoðuðu göngin í Ólafsfjarðarmúla CVEITARSTJÓRNAR- k3menn frá Vestfjörðum brugðu sér til Ólafsfjarðar á sunnudag og skoðuðu þar í boði heimamanna jarðgöngin í gegnum Ólafsfjarðarmúla. Bæjarstjórinn á Ólafsfirði, Bjarni Grímsson, og verktak- inn, Ellert Skúlason hjá Krafttaki, kynntu sveitar- stjórnarmönnum og blaða- mönnum frá Vestfjörðum breytingar þær sem gerð jarð- gangnanna hefur í för með sér. Til að mynda hafa Ólafs- firðingar hafið samstarf við Dalvíkinga um sameiginlega eyðingu sorps í sorpeyðingar- stöðinni við Dalvík og ætla þeir sér að keyra ruslinu fyrir Múlann það ár sem líða mun þar til göngin verða að fullu tekin í notkun. Gerð gangnanna hefur miðað vel og voru göngin orðin 1553 metrar á sunnu- dag. Það þýðir að verkið er hálfnað og búist er við að gangnagerðinni sjálfri verði að mestu lokið í haust. Verk- inu lýkur þó ekki að fullu fyrr en eftir eitt ár þar sem eftir er að ganga frá slitlagi, upp- byggingu vegs og gerð veg- skála beggja megin við göng- in. Sérstaka athygli gestanna vakti „álfakirkja“ sem sprengd hefur verið inn í bergið út frá göngunum. Að sögn heimamanna var kirkj- an gerð eftir að miklar skrið- ur höfðu fallið á svæðinu, til að friða ókunna vætti í fjall- inu, og hafði hún tilætluð áhrif. Bæjarstjórínn, Bjarni Grímsson, hafði þó á orði að kirkjan yrði ef til vill síðar meir nýtt sem minjagripasala ef álfarnir hefðu þá ekki mik- ið á móti því. Að lokinni skoðunarferð- inni þáðu menn molasopa og hlýddu á fróðleg erindi gesta og heimamanna. Menntaskólinn: Slitið 17. júní Menntaskólanum á Isafirði verður slitið laugardaginn 17. júní nk. kl. 13.00 í heimavist skólans á Torfnesi. Nemendur á fjórða ári voru 22 talsins í vetur og í öldungadeild ljúka 6 manns námi. Þá útskrifast einnig tveir nemendur af iðnbraut- um. Tíu ára stúdentar koma einnig saman á heimavistinni og mun Elías Jónatansson ávarpa gesti fyrir þeirra hönd. Um kvöldið verður haldið útskriftarhóf stúdenta á heim. /istinni.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.