Bæjarins besta - 21.06.1989, Síða 5
BÆJARINS BESTA
5
Stúdentar:
„Mikil breyting
að byrja
aftur í skóla
- segir Halldóra Þórdardóttir
stúdent frá öldungdeild MÍ
og dúx skólans
HALLDÓRA Þórðar-
dóttir (Júlíussonar), 32
ára skrifstofustúlka og hús-
móðir var dúx Menntaskól-
ans á ísafirði þetta árið. Hail-
dóra sem stundaði nám á
hagfræðibraut fékk aðalein-
kunina 8,21. Þá fékk hún
bókaverðlaun fyrir árangur í
hagfræði og íslensku og pen-
ingaverðlaun frá aldaraf-
mælissjóði ísafjarðarkaup-
staðar.
BB hafði samband við
Halldóru og spurði fyrst um
ástæðuna fyrir því að hún
hóf nám aftur eftir tíu ára
hlé?
„Mig bara langaði til þess.
Það tók mig tíu ár að jafna
mig á grútleiðinlegum gagn-
fræðaskóla og svo bara allt í
einu var mig farið að langa
aftur í skóla. Ég fór ekki í
Menntaskólann með það að
markmiði að fara áfram í
Háskólann, bara til að ná
mér í meiri menntun“ sagði
Halldóra.
En hvað tekur nú við eftir
að stúdentsprófið er íhöfn?
„Nú leggst ég bara í leti.
Ég er ekkert farin að spá í
framtíðina enda held ég að
Stúdentar:
„Ætla í læknis-
fræði í vetur“
Halldóra Þórðardóttir.
það sé ekkert auðveldara
fyrir mig að ákveða frekara
nám heldur en hjá hinum
krökkunum"
Var ekki mikil breyting að
byrja aftur í námi?
„Jú, það var rosalegt, en
áhuginn var svo mikill að
hann yfirgekk allt. Ég held
að það sama megi segja um
alla aðra sem voru með mér í
öldungardeildinni. Við hefð-
um ekki haldið þetta út
öðruvísi" sagði dúxinn Hall-
dóra Þórðardóttir.
- segir Þurídur Pétursdóttir, dúx í
dagskóla MÍ
URÍÐUR Pétursdóttir
(Guðmundssonar mynd-
listarmanns), sundkonan
efnilega úr Vestra var dúx í
dagskóla við Menntaskóla
ísafjarðar þetta árið. Þuríður
sem var á mála- og samfé-
lagsbraut fékk 8,16 í aðal-
einkun.
Þuríður sem starfar núna
sem afgreiðslustúlka hjá
ÁTVR á Isafirði sagði í sam-
tali við BB að menntaskóla-
námið hefði verið frekar létt
og að hún ætlaði að halda
áfram námi strax næsta vet-
ur. Þá ætlaði hún í Háskól-
ann í læknisfræði. Það nám
tæki hana næstu tíu árin.
Fyrstu sex árin færu í al-
menna læknisfræði og fjögur
árin þar á eftir í eitthvert sér-
Eldri stúdentar frá MÍ mættu við útskriftina til þess að sjá hvort ekki færi allt fram eins og lög
gera ráð fyrir og svo náttúrulega til að sýna sig og sjá aðra.
Gísli Úlfarson, Helga Sigurð-
ardóttir og Ingólfur Arnarson
nýstúdentar.
Nýstúdentar frá öldungadeild. Efri röð frá vinstri: Inga Sig-
ríður Guðmundsdóttir, Jökull Úlfsson og Bára Snæfeld.
Fremri röð frá vinstri: Jóna Pálmadóttir, Halldóra Þórðar-
dóttir og Þórný María Heiðarsdóttir.
Gamla bakaríið
auglysir
Þuríður Pétursdóttir.
nám, sem hún ætlaði sér í þó
svo að hún hefði enn ekki á-
kveðið hvað það yrði.
Þá sagði Þuríður að flestir
þeir stúdentar sem hefðu út-
skrifast núna ætluðu sér að
taka sér eins árs frí frá námi
og halda síðan áfram. En við
á BB óskum Þuríði góðs
gengis í læknisfræðináminu.
Kona óskast til frágangs og ræstingar-
starfa í bakaríið nú þegar.
Upplýsingar gefur Ruth.