Bæjarins besta - 21.06.1989, Síða 7
BÆJARINS BESTA
7
ísafjörður:
Studió Dan varð
eldi að bráð
- talið fullvíst að um íkveikju hafi
verið að ræða.
Bæjaryfirvöldum hafa borist kvartanir vegna vatnaþotnanna
sem við greindum frá í síðasta blaði. Meðal annars er því haldið
fram að þær fæli allt fuglalíf frá Pollinum.
ísafjörður:
Pollurinn
Fuglalíf búið vegna
vatnaþotnanna
- kvartanir hafa borist lögreglu og
hafnarstjóra vegna hávaða frá þeim
VIÐ greindum frá því í
síðasta blaði að hinar
svokölluðu vatnaþotur væru
komnar til bæjarins. Ekki
eru allir sáttir við nærveru
þessara tækja eða réttara
sagt sem berst frá hávaðanum
í þeim seint á kvöldin og hafa
lögreglunni á ísafirði nú bor-
ist kvartanir vegna þessara
tækja.
Jónas H. Eyjólfsson yfir-
lögregluþjónn sagði í samtali
við blaðið að þeim hjá lög-
reglunni hefðu borist ítrek-
aðar kvartanir vegna þessara
vatnaþotna og hefði hann
m.a. rætt þær við hafnar-
stjóra. Það sem kvartað er
yfir, er hávaði og einnig sá
hraði sem þær eru á, á innri
höfninni. Þá hefur hann einn-
ig heyrt menn tala um að allt
fuglalíf hefði horfið af Pollin-
um eftir að þessi tæki fóru að
sjást og væri nokkuð til í því.
Á meðan þessi farartæki
þeysast um Pollinn, þá fer
fuglinn. Við sjáum vart fugl
hér innan Polls, hvort sem
það er þessum tækjum að
kena eða ekki. En það má
álykta að það sé ástæðan og er
það miður“ sagði Jónas.
Varðandi hraða þessara
tækja sagði Jónas að sam-
kvæmt nýrri hafnarsamþykkt
frá 8. febrúar s.l. væri
óheimilt að fara hraðar en á
fjögurra sjómílna hraða inn-
an hafnarmarkanna sem er
lína frá Norðurtanganum og
yfir í hlíðina hinum megin og
íjóst væri að þessi tæki væru
keyrð á miklu meiri hraða.
Jónas sagði að rekstur
þessara vatnaþotna yrði ekki
stöðvaður að svo stöddu
heldur yrði rætt við eigend-
urna og farið fram á að þeir
virtu þær reglur sem væru í
gildi og fylgst yrði með ferð-
um þotnanna eftir þær við-
ræður.
Studió Dan.
UM klukkan 01.45 að-
faranótt síðastliðins
þriðjudags tilkynnti vegfar-
andi sem átti leið um Hafn-
arstræti um eld í Stúdíó Dan
sem er til húsa að Hafnar-
stræti 20a. Allt tiltækt
slökkvilið var kallað á vett-
vang. Mikill eldur var í hús-
inu, það mikill að rúður voru
farnar að springa. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn og
tók slökkvistarf um 20 mínút-
ur.
Strekkingsvindur var að
suðaustan og stóð vindurinn
beint á nærliggjandi hús
Hjálpræðishersins. Ekki var
talin mikil hætta á því að eld-
urinn færi í næstu hús, en
það hefði getað farið verr
eins og lögreglan orðaði það
í samtali við blaðið.
Er slökkvilið kom á stað-
inn var eldur á fimm stöðum
í húsinu, í nuddherbergi á
l.hæð, á salerni undir stiga,
á tveimur stöðum í kjallara
og í herbergi á efri hæð.
Miklar skemmdir urðu á
húsnæðinu og innbúi þess af
völdum hita, reyks og vatns.
Talið er fullvíst að um
íkveikju hafi verið að ræða.
Að sögn lögreglunnar á ísa-
firði er húsið talið tryggt.
Tveir menn frá Rannsókn-
Gerir aðra
tilrann
GUNNAR Úlfsson
(Pimmi), sonur Úlfs
heitins Gunnarssonar fyrr-
verandi yfirlæknis á FSÍ
sem ætlaði að sigla frá
Reykjavíkur til Akraness
síðastliðinn sunnudag á
pappírsskipi sem hann hef-
ur smíðað sjálfur þurfti að
hætta við fyrirhugaða ferð
sína vegna veðurs. Hann
hefur nú ákveðið að gera
aðra tilraun n.k. sunnudag
og verður lagt í hann kl. 13.
Með í förinni verður blaða-
maður frá DV, Sigurjón
M. Egilsson.
Tilgangurinn með þess-
ari ferð er tvíþættur, ann-
ars vegar að setja heims-
met og hins vegar að safna
áheitum í minningarsjóð
sem stofnaður hefur verið
um föður hans. Sá sjóður
er ætlaður til tækja- og
áhaldakaupa fyi ir FSÍ og er
hægt að leggja inn framlög
á tékkareikning í Lands-
banka íslands á ísafirði nr.
34545.
arlögreglu ríkisins komu
vestur á þriðjudagsmorgun
til aðstoðar lögreglunni á
ísafirði við rannsókn máls-
ins. Er blaðið fór í prentun
hafði enginn verið handtek-
inn vegna þess máls. Rann-
sókn þess heldur áfram.
ARNAR G. HINRIKSSON
Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími 4144
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
ÍSAFJÖRÐUR
Túngata 3.4-5 herb. íbúð í suðurenda.
Laust eftir samkomulagi.
Urðarvegur 66.214 m2 raðhús átveim-
ur hæðum.
Sólgata 7. Lítil 3ja herbergja íbúð.
Hafraholt 22. Raðhús, um 140 m2
ásamt bílskúr, 4 svefnherbergi. Laust
eftirsamkomulagi.
Hrannargata 10. 3ja herb. íbúð á 1.
hæð.
Silfurtorg 1. Fjögurra herb íbúð á 3.
hæð ásamt óinnréttuðu risi.
Silfurgata 11. Fjögurra herbergja íbúð
á 1. hæð. íbúðin er laus og selst með
hagstæð-
um kjörum.
Bakkavegur 27. 2x129 m2 einbýlis-
hús. Laust eftir samkomulagi.
Sundstræti 25. Priggja herbergja íbúð
á 1. hæð.
Túngata 13. Tveggja herbergja
kjallaraíbúð.
Sundstræti 29. Tveggja herbergja
íbúð á 2. hæð í fjórbýlishúsi.
Stórholt 13. Fjögurra herbergja íbúð á
þriðju hæð ásamt bílskúr.
Sundstræti 27. Þriggja herbergja íbúð
á 1. hæð. Laus.
Sundstræti 35b. Litið einbýlishús.
Selst ódýrt. Laust fljótlega.
Engjavegur 33. Tveggja herbergja
íbúð á neðri hæð. Laus fljótlega.
Stórholt 11. Fjögurra herbergja íbúð á
2. hæð ásamt bílskúr. Getur losnað
fljótl.
Seljalandsvegur 30. 175 m2 einbýlis-
hús með innbyggðum bílskúr. 4 svefn-
herbergi. Húsið er í góðu standi. Mjög
hagstæð greiðslukjör geta boðist.
Stórholt 13. Þríggja herbergja íbúð á 1.
hæð. Laus eftir samkomulagi.
Sólgata 5. Þriggja herbergja íbúð. Laus
fljótlega.
BOLUNGARVÍK
Hlíðarstræti 14. Einbýlishús, 140 m2.
Getur losnað fljótlega.
Holtastígur 15: Einbýlishús, nær
fullgert, 157+108 m2.
Hafnargata 122: Lítið einbýlishús, 3
svefnherbergi.
Ljósaland 9: Rúmlega 140 m2 einbýlis-
hús ásamt bílskúr. Laust eftir sam-
komulagi.
Vitastfgur 19. Þriggja herbergja íbúð á
neðri hæð. Laus 1. maí n.k.
Skólastígur 8. Þriggja herbergja íbúð
á jarðhæð, sér inngangur. Ibúðin er
laus.
Stigahlíð 4. Tveggja herbergja íbúð á
jarðhæð.
Hjallastræti 20. Rúmlega 100 m2 ein-
býlishús ásamt bílskúr.
Hjallastræti 18. 120 m2 einbýlishús
ásamtbílskúr.
Stigahlíð 4. Þriggja herbergja endaíb-
úðá3. hæð.
Hafnargata 110. Tæplega 100 m2 ál-
klætt einbýlishús.
Skólastigur 20. Fimm herbergja íbúðá
tveimur hæðum í parhúsi.