Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.06.1989, Page 8

Bæjarins besta - 21.06.1989, Page 8
Vestfirðir: 8 BÆJARINS BESTA NÝJAR MYNDIR VIKULEGA GiSsrOuTDOOR; THtWIUHIFE tS WHO. BUT HIS IHOTHEK-m-14» IS UHK4IU8LE. THE GREAT OUTDOORS Þegar óþolandi, óboðin, óviðkunnanleg og upp- áþrengjandi tengdafjöl- skylda býður sjálfri sér í heimsókn í sumarbústaðinn til manns virðist sumarfríið vera farið í vaskinn. Það skapar hinsvegar hinar hlægilegustu uppákomur þegar „mágarnir“ Dan Ackroyd og John Candy lenda í þessum kringum- stæðum. TennesseeBuck Til að ganga í augun á nýju eiginkonunni, Barböru (Playboy opnustúlkunni Kathy Shower) fer Ken Manchester með hana í safariferð sem þjóðsagna- persónan Buck Malone stjórnar (David Keith úr „An Officer and a Gentlem- an“ og „Firestarter"). í myrkviðum frumskóganna eru þau tekin höndum af frumstæðum ættflokki sem þeim til skelfingar reynast vera mannætur. JR-VIDEO VIÐ NORÐURVEG 0 4299 Þriggja tonna báti bjargað S Aföstudags- KVÖLDIÐ var gerð leit að manni á þriggja tonna bát frá Isafirði, Sæunni IS 103. Báturinn fannst skammt undan Barðanum um klukk- an 22,30 og var maðurinn heill á húfi. Leit hófst um kl. 18 en þá hafði heyrst óskýrt til mannsins. Staðarákvörðun var ónákvæm en ljóst var að vél bátsins var biluð. Flugvél frá flugfélaginu Erni svipað- ist um eftir bátnum, ásamt Unu í Garði sem var í grend- inni. Skömmu síðar fóru tveir bátar frá Flateyri til leitar, Magnús og Dýrfirð- ingur og fundu þeir Sæunni. Þeir héldu síðan til Flateyrar á ellefta tímanum á föstu- dagskvöldið í blíðskapar- veðri. Sæunn ÍS-103 í Flateyrarhöfn á sunnudag. ísafjörður: Mikíl ölvun um þjóð- hátíðarhelgina MIKIL ölvun var á ísa- firði um þjóðhátíðar- helgina, sérstaklega að kvöldi 17.júní og aðfaranótt þess átjánda. Samfara ölvun- inni var mikið um útköll hjá lögreglunni og mikið var um skemmdarverk og slæma umgengni. Almenningssími á hafnar- kanti var skemmdur í tvígang, rúður voru brotnar í Landsbankanum og í húsinu á móti þar sem bæjarfógeta- embættið var til húsa. Þau skemmdarverk upplýstust strax. Þá voru framin spjöll í blómagarði okkar ísfirðinga að Austurvelli þar sem blóm og annar gróður var rifinn upp og vatnslögn skemmd. Tveir ökumenn voru tekn- ir grunaðir um ölvunarakstur og einn var sviptur ökuleyfi Þessi símaklefi á höfninni fékk ekki að vera í friði. sínu á staðnum er hann var stöðvaður á Óshlíð eftir að hafa ekið á 114 kílómetra hraða. Guðmundur Gunnlaugsson, starfsmaður H-prents við nýju prentvélina. Frá útgefendum: Stærra blað EINS og einhverjir hafa kannski tekið eftir að þá var síðasta tölublað Bæjarins besta töluvert stærra en það sem kom á undan. Ástæðan fyrir þessari stækkun er sú að nú höfum við tekið í notkun nýja prent- vél sem gefur okkur þá möguleika að prenta blaðið í þessu broti með enn meiri hagræðingu en áður var. Frá upphafi var það alltaf stefna okkar að blaðið yrði í þessari stærð þ.e.a.s. 5 dálka blað en aðstæður leyfðu það ekki svo að hagkvæmt væri talið. Nú hefur hins vegar orðið af þessum breytingum og er blaðið orðið jafn stórt í broti og yfir 90% landsmála- blaða. Með tilkomu þessarar nýju vélar styttist prentunar tími blaðsins um heilar 5 klukkustundir. Jafnframt gefur hún prentsmiðjunni enn meiri möguleika á stærri verkefnum sem hægt verður að vinna á stuttum tíma. íþróttir og útilíf: Leikjanámskeið BÍ Leikjanámskeið verður haldið á vegum BÍ 88, Boltafélags fsafjarðar, dag- ana 21. júní til 5. júlí n.k. Ýmislegt verður á boðstól- um, s.s. frjálsar íþróttir, ýmsir leikir, bátaferð, knatt- leikir, hjólreiðar, ratleikir, útigrill o.fl. Mörg börn sóttu námskeiðið sl. sumar og vonandi verður eins nú. Námskeiðið endar á hjól- reiðaferð inn í skóg. Þar verður farið í ratleik (ekki þann sama og í fyrra) og grillaðar pylsur. Kennarar verða fjórir, allt íþrótta- kennarar í bænum. Frá leikjanámskeiðinu sl. sumar.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.