Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.06.1989, Blaðsíða 10

Bæjarins besta - 21.06.1989, Blaðsíða 10
10 BÆJARINS BESTA Guörtín Guömundsdóttir flutti ávarp fjallkonunnar. Velheppnuð hátíðarhöld á ísafirði Einar Ólafsson, íþróttamað- nr ísafjarðar og nýstúdent fluCti hátíðarræöu dagsins. Þessi ungi maður átti í erfið- leikum með að halda sér á lín- unni sem skátarnir höfðu sett upp. AUTJÁNDA júní hátíð- arhöldin á ísafirði fóru eins og venjulega fram á sjúkrahústúninu og þóttust takast hið besta. Betur rætt- ist úr veðri, heldur en hafði verið spáð, engin rigning var en sólin náði að gægjast gegnum skýin öðru hvoru. Hátíðarhöldin hófust um hálftíma seinna heldur en undanfarin ár og var það að- allega vegna þess að um kl. 13 sama dag fór fram útskrift stúdenta frá M.í. en þeir mættu síðan á svæðið og skörtuðu sínu fegursta. Jóhann Torfason, formað- ur fþróttabandalags ísfirð- inga setti hátíðina og síðan lék sambland af Lúðrasveit ísafjarðar og lúðrasveit Tón- listarskóla Isafjarðar undir stjórn Michaels Jones. Þá flutti nýstúdentinn og íþróttamaður ísafjarðar, Einar Ólafsson, hátíðar- ræðu. Að henni lokinni söng blandaður kór undir stjórn Skarphéðins Þórs Harðars- sonar. Ávarp fjallkonunnar var næst og það flutti að þessu sinni Guðrún Guðmunds- dóttir. Litli leikklúbburinn flutti léttan leikþátt við góðar undirtektir yngri kynslóðar- innar. Þá fór fram danssýn- ing og að lokum lék lúðra- sveitin nokkur lög. Það sem vakti án efa mesta athygli barnanna var flugvél, sem Örn Ingólfsson flaug yfir svæðið, því úr vél- inni var dreift sælgæti yfir mannfjöldann og var þá mik- ið að gera hjá ungviðinu. Síðan fór fram kynning á hinum ýmsu íþróttum og leikjum. Meðal annars sýndu skátarnir þrautir og leiki, íþróttafélag fatlaðra sýndi Boccia, hestamannafé- lagið Hending bauð gestum á hestbak, Golfklúbbur ísa- fjarðar sýndi réttu handtökin í golfi, Boltafélag ísafjarðar knattspyrnuþrautir fyrir yngri jafnt sem eldri og sunddeild Vestra sýndi æf- ingar án sundleugar. Um kvöldið fór síðan fram útidansleikur á Grunn- skólaplaninu þar sem Har- monikusveitin sá um fjörið. BB var að sjálfsögðu á staðnum og tók þá meðfylgj- andi myndir. Þessar ungu stúlkur höfðu margt að gera á þjóðhátíðar- daginn... ... en Vilberg Vilbergsson rakari virðist vera orðinn eitt- hvað þreyttur. Þessi flugvél, eða réttara sagt það sem úr henni kom vakti mesta athygli yngri hátíðargesta.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.