Bæjarins besta - 21.06.1989, Side 12
Greiðslukort:
ísafjörður:
12
BÆJARINS BESTA
MENNTASKÓLINN Á ÍSAFIRÐI
PÓSTHÓLF 97 - 400 ÍSAFIRÐI
Innritun í öldungadeild
Áformað er að byrja að kenna nýjum
hópi á 1. önn í öldungadeild Mennta-
skólans á ísafirði haustið 1989, ef næg
þátttaka verður.
Inntökuskilyrði: Umsækjendur séu 21
árs eða verði það á árinu.
Kennsla fer fram mánudaga til fimmtu-
daga á milli kl. 19 og 22.
Sækja skal um í öldungadeild með því að
útfylla eyðublað, sem fæst á skrifstofu
Menntaskólans. Einnig má sækja um
með því að hringja til skrifstofunnar í
síma 3599, eða heim til skólameistara á
kvöldin í síma 4119.
Umsóknarfrestur er til 5. júlí 1989.
Væntanlegum umsækjendum er bent á,
að fáist ekki lágmarksfjöldi, verður ekki
farið af stað með nýjan hóp í haust.
Skólameistari
BB - að sjálfsögðu
ORKUBÚ
VESTFJARÐA
Vélstjórar!
Orkubú Vestfjarða óskar eftir að
ráða vélstjóra til starfa við Mjólkár-
virkjun í Arnarfirði.
Einungis kemur til greina vél-
stjóri sem lokið hefur prófi frá Vél-
skóla íslands (4. stigs).
Laun samkvæmt kjarasamningi
O.VogF.O.S. Vest.
Umsóknir merktar „Vélstjóri
Mjólká" berist til skrifstofu Orku-
bús Vestfjarða, ísafirði fyrir 5, júlí
n.k. og skulu þeim fyigja greinar-
góðar persónulegar upplýsingar.
Upplýsingar um starfið gefa:
Jakob Ólafsson rekstrarstjóri,
sími 94-3211
og Harald Kulp stöðvarstjóri,
sími 94-2222.
ORKUBÚ VESTFJARÐA
Sam-
kort
komið
á
fsa-
fjörð
s
ISLENSKA greiðslukorta-
fyrirtækið Samkort er
þessa dagana að auka þjón-
ustu sína og færa kvíarnar út
á landsbyggðina. í síðustu
viku hóf fyrirtækið viðskipti
við á þriðja tug verslana á
ísafirði og fleiri bætast ef-
laust við á næstunni. Sam-
kort var upphaflega ætlað
sem innanfélagsgreiðslukort
Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga en í september á
síðasta ári var sú ákvörðun
tekin að gera kortið að al-
hliða íslensku greiðslukorti
sem öll fyrirtæki geta tekið
upp viðskipti við.
Kortið notast aðeins
innanlands en á móti kemur
að það árgjaldið er lægra og
ekki er innheimt sérstakt út-
skriftargjald eins og hjá öðr-
um greiðslukortafyrirtækjum
á landinu. Jafnframt er ekki
farið fram á að umsækjendur
framvísi óútfylltum trygging-
arvíxlum heldur verða þeir
að vera útfylltir sem jafngild-
ir þrefaldri úttektarheimild
allt frá 40.000 kr. upp í
200.000 á mánuði.
Einnig hefur fólk kost á að
velja sér mismunandi úttekt-
artímabil sem byrja annað
hvort um mánaðarmót og
með eindaga á 17. degi næsta
mánaðar eða tímabil sem nær
frá 18. hvers mánaðar til 17.
næsta mánaðar með eindaga
annan dag hvers mánaðar.
Að sögn Arnar Peterssens
markaðsráðgjafa hjá Sam-
korti hf. hefur komið í ljós að
mikill meirihluti umsækjenda
óskar eftir fyrrnefnda tíma-
bilinu og að 65% þeirra er
kvenfólk.
Pess má geta í framhjá-
hlaupi að forstjóri Samkorts
er gamall ísfirðingur, Hal -
dór Guðbjarnarson, eins og
reyndar einnig forstjórar
EURO og VISA, þeir Einar
S. Einarsson og Gunnar Bær-
ingsson.
Léleg leigu-
bílaþjónusta
AÐ undanförnu hefur
verið nokkuð um að
lesendur BB hafi haft sam-
band við blaðið og komið á
framfæri kvörtunum yfir lé-
legri þjónustu Fólksbíla-
stöðvarinnar á ísafirði. Fólk
hefur kvartað mest yfir því að
um helgar séu aðeins einn til
tveir leigubílar í akstri og hér
um bil vonlaust sé að reyna
að fá leigubíl eftir dansleiki.
BB hafði samband við
Halldór Geirmundsson for-
mann Fólksbílastöðvarinnar
vegna þessa og spurði hann
að því hvort stöðin þyrfti
ekki að auka þjónustuna um
helgar. Hann kvaðst viður-
kenna að skipulagið væri
ekki nógu gott en bætti við að
þar sem margir bílstjóranna
væru í annarri vinnu, auk
keyrslunnar, væri oft erfitt að
fá menn til vinnu um helgar.
„Ég skal ræða þessi mál við
mennina og halda með þeim
fund um þetta“ sagði Hall-
dór. „Pað taka ný lög gildi
þann 1. júlí um leigubílaakst-
ur og í þeim er kveðið á bæði
um takmarkanir og kvaðir
sem gilda um leigubílastöðv-
ar. Við verðum auðvitað að
uppfylla vissar kvaðir.“
Níu manns eru skráðir bíl-
stjórar á Fólksbílastöðinni en
á sumrin eru oft aðeins fjórir
að störfum vegna sumarfría.
Skipstjóri m/s Öskju:
Leiðrétting
- yegna greinar skipstjórans
í BB 14. júní
SKIPSTJÓRl Öskju hefur
óskað eftir að eftirfarandi
verði birt:
„í grein minni í síðasta BB
„Athugasemd vegna viðtals
við hafnarstjóra“ kemur fram
misskilningur, sem má að
hluta til rekja til BB. Bið ég
hafnarstjóra velvirðingar
vegna ásakana sem bornar
eru á hann í greininni."
m.s. Öskju 15. júní 1989
Halldór Karelsson skipstjóri
Fyrruni hrefnuveiðimenn:
Stofna félag
FYRRUM hrefnuveiði-
menn hafa stofnað með
sér hagsmunasamtök og heita
þau Félag hrefnuveiði-
manna. í fréttatilkynningu
frá samtökunum segir að fé-
lagið muni vinna að því að
hrefnuveiðar hefjist á ný á ís-
lensku hafsvæði og stuðlað
verði að frekari rannsóknum
á hrefnustofninum.
Fjórtán hrefnuveiðimenn
voru á stofnfundi félagisns úr
flestum landsfjórðungum.
Formaður félagsins er Kon-
ráð Eggertsson á ísafirði.
Meðstjórnendur eru Gunn-
laugur Konráðsson, Ár-
skógssandi og Guðmundur
Haraldsson, Reykjavík.