Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Blaðsíða 15
16.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
skurði. Þetta var ákveðið áfall. Maður fer í
þetta mót og ætlar sér að vinna það. Svo
kemstu allt í einu ekki í efstu 10.“
Gengið hefur vel á þessu keppnistímabili.
Sara varð efst á Open þar sem allir crossfit-
kappar heims fá að spreyta sig. Hún varð í
fyrsta sæti á Dubai-meistaramótinu sem fram
fór fyrir jól og varð í öðru sæti á eftir Tia Cla-
ir-Toomey, meistara síðustu þriggja heims-
leika, á Rouge Invitational.
„Mér finnst ótrúlega gaman að keppa og ég
fæ sjálfstraustið mitt á því. Ég ákvað því að
keppa svolítið mikið í ár og ég sé ekkert eftir
því núna alla vega. Mér finnst mjög spennandi
að sjá hvernig mér mun ganga á leikunum
þetta árið miðað við hvernig mér hefur gengið
á öðrum mótum,“ segir Sara sem er að eigin
sögn í betra formi en í fyrra.
„Sérstaklega andlega. Andlega hliðin er
svona 80% af árangrinum. Það eru allir með
líkamlegu hliðina á hreinu þegar þú ert komin
á heimsleikana en það er þessi andlega hlið
sem setur þig í réttan gír. Hún var ekki til
staðar í fyrra en er það núna alveg 150%.“
Markmið Söru er að ná einu af efstu fimm
sætunum og fara út. Til þess þurfi hún þó auð-
vitað að taka áhættuna á því að sýkjast af veir-
unni umtöluðu. „Ég yrði örugglega með þrjár
grímur á mér í fluginu,“ segir Sara sposk. „Það
er auðvitað hætta á því að ferðast, og þá sér-
staklega til Bandaríkjanna. En ef maður er
kominn með boð á heimsleikana þá held ég að
maður verði bara að fara.“
Það besta fyrir crossfit
Um svipað leyti og Rouge Invitational-mótið
fór fram fór allt upp í háaloft í crossfit-
heiminum. „Þá byrjaði allt þetta bull með
CrossFit og Greg Glassman,“ segir Sara og á
þar við rasísk ummæli Glassman, fram-
kvæmdastjóra CrossFit sem fjallað var mikið
um í júní. Það virtist vera kornið sem fyllti
mælinn en löngum hafði verið kvartað undan
stjórnarháttum hans. Afsökunarbeiðni
Glassman í kjölfarið féll í grýttan jarðveg.
Fólk vildi breytingar.
Voru nokkrir hátt skrifaðir keppendur, þar
á meðal Katrín Tanja, sem sögðust ekki ætla
að keppa undir merkjum CrossFit fyrr en
eignarhaldi og stjórnarháttum yrði breytt.
Endaði það með því að Glassman sagði af sér
sem framkvæmdarstjóri og seldi fyrirtækið,
sem á einkaréttinn á notkun crossfit-orðsins
yfir íþróttina, til Eric Roza.
„Það var frekar erfitt að mótivera þegar það
var allt í gangi. Maður vissi ekki hvort heims-
leikarnir yrðu, hvort það yrði eitthvað annað,
hvað maður ætti að gera í þessu ástandi. Mað-
ur var svolítið fram og til baka,“ segir Sara.
Hún segist ánægð með nýjan mann í brúnni.
„Þetta er held ég það besta sem hefði getað
komið fyrir crossfit. Það er loksins kominn
fagaðili í þessa stöðu sem þurfti,“ segir Sara.
„Hann hefur alla vega góða sögu á bak við
sig. Hann er milljarðamæringur sem byrjaði
frá grunni þannig hann veit hvað hann er að
gera og hvað þarf að gera. Hann hefur verið í
crossfit í 10 ár og átt fjölda stöðva og alltaf
verið draumurinn hans að kaupa CrossFit. Á
blaði lítur hann mjög vel út. Ég hef talað við
hann í síma og hann virðist mjög hógvær.
Hann vill að crossfit verði íþrótt en ekki bara
áhugamál. Hann vill að það séu atvinnumenn í
kringum þetta. Ekki að einungis fólk sem eigi
stöð geti æft allan daginn. Það er mjög sjald-
gæft að vera atvinnumaður í þessu.“
mig annað en að óvissan var mikil. Maður
reyndi að láta það ekki á sig fá, það vissi eng-
inn neitt hvort eð er.“
Hann segir gott að Rouge Invitational-mótið
hafi verið haldið. „Ég missti annars bara af
einu móti úti sem ég hefði farið á,“ segir Björg-
vin.
Þá hefur tekjutapið ekki verið mikið vegna
kórónuveirunnar. Crossfit-kappar fá þorra
sinna tekna frá styrkaraðilum sem auglýsi
mikið í gegnum netmiðla þótt tekjur frá mót-
um skipti líka máli. „Maður er lygilega vel
kominn undan þessu og ef þetta fer að batna
fljótlega hefur þetta líklega ekki mikið að
segja í heildina.“
Andrúmsloftið gott hér
Hann segir að það yrðu vonbrigði að komast
ekki til Kaliforníu á heimsleikana eftir að hafa
náð þriðja sæti í fyrra og verið í toppbaráttu
síðan 2015. Hann var í fjórða sæta í undan-
keppni leikanna, Open, í fjórða sæti á Dubai-
meistaramótinu og í öðru sæti á Rouge Invita-
tional. Allt eru þetta mjög sterk mót.
Einhverjir innan crossfit-heimsins vilja
meina að Mat Fraser, meistari síðustu fjög-
urra heimsleika, gefi nú betra færi á sér en áð-
ur. Björgvin gefur lítið fyrir það. „Ég tek
þessu öllu með fyrirvara. Hann er pottþétt
staðráðinn í að vinna þetta oftar en Rich Fron-
ing [sem vann fjórum sinnum í röð]. En það er
náttúrulega fullt af öðrum gaurum sem eiga
möguleika á að komast í efstu fimm. Ég gæti
talið upp 10 eða 15 sem eiga möguleika. Ég
þarf þá bara að vera betur í stakk búinn,“ segir
Björgvin sem hefur fulla trú á að hann komist í
lokakeppnina.
Hann segist í enn betra formi en í fyrra.
„Maður nær einhvern veginn að komast í betra
og betra form. En það er mikið af þáttum sem
þarf að smella. Mér finnst andrúmsloftið búið
að vera gott hérna heima miðað við það sem
hefur verið úti.“
Verður að fara ef maður fær boðið
Sara lenti í 19. sæti á síðustu heimsleikum sem
voru mikil vonbrigði eftir að hafa náð fjórða
sæti 2017 og verið á palli árin tvö þar á undan.
„Ég var bara ekki að gera réttu hlutina,“ segir
Sara sem ákvað að vera ekki með þjálfara sem
sæi um allar æfingar hennar eins og áður og fá
þess í stað aðstoð úr ýmsum áttum.
„Ég var ekki með rétta þjálfarann fyrir mig.
Við vorum búin að gera allt sem við gátum gert
saman. Ég lærði helling af því en ég þurfti að
gera ákveðnar breytingar. Ég þurfti að slíta
mig frá honum. Ég þurfti að bæta næringuna
og talaði við næringarfræðing. Ég ákvað að
gera miklar breytingar eftir heimsleikana og
ég hefði aldrei gert þessar breytingar ef ég
hefði ekki lent í þessu áfalli að ná ekki niður-
M
iðað við ástandið er þetta
besta útkoman,“ segir
Ragnheiður Sara Sig-
mundsdóttir, oftast kölluð
Sara, um nýja fyrir-
komulagið. „Ég viðurkenni að ég var ekki sér-
lega spennt fyrir því að ferðast til Bandaríkj-
anna í þessu hræðilega ástandi. Kalifornía
búin að loka aftur en við samt að fara út. Mað-
ur var bara farinn að hugsa, „Hvað gerist ef ég
fæ vírusinn og er bara föst þarna?““
Sara er ein tveggja íslenskra kvenna sem er
í hópi þeirra 30 sem fengu keppnisrétt á leik-
unum. Auk hennar verður Katrín Tanja Dav-
íðsdóttir einnig meðal keppenda, ef marka má
heimasíðu heimsleikanna í crossfit, en hún er
búsett í Bandaríkjunum og keppir því þar. Þá
tryggði Annie Mist Þórisdóttir sér einnig þátt-
tökurétt á mótinu en verður ekki með því hún
eignaðist sitt fyrsta barn á dögunum.
Þyrftu að sæta sóttkví
Dagsetningar fyrir keppnina voru tilkynntar á
fimmtudag. Keppnin hefst föstudaginn 18.
september á netinu en lokakeppnin mun fara
fram vikuna 19. til 25. september. Sara segir
keppendur hafa fengið að kjósa um tímasetn-
ingu bæði netkeppninnar og hinna eiginlegu
heimsleika í Kaliforníu. Áætlað er að net-
keppnin, þar sem keppendur streyma mynd-
böndum af sér að gera æfingarnar sem gera á í
keppninni, taki þrjá daga.
Þeim, sem eru ekki bandarískir ríkisborg-
arar eða með dvalarleyfi þar í landi, er meinað
að fara til Bandaríkjanna eins og staðan er í
dag. Sara segir að keppendurnir muni fá inn-
göngu í landið á sérstakri vegbréfsáritun fyrir
íþróttamenn sem CrossFit hefur sótt um. Þeir
þurfi þó að sæta tveggja vikna sóttkví við kom-
una þangað og því þyrfti Sara að komast til
Bandaríkjanna tímanlega komist hún í loka-
keppnina.
Ekki fyrsta netmótið
Björgvin Karl Guðmundsson verður eini ís-
lenski keppandinn í karlaflokki. Honum líst
ágætlega á fyrirkomulagið. „Það var verið að
pæla í að hafa keppnina án áhorfenda á bú-
garði Dave Castros í Kalifroníu þar sem allir
yrðu með,“ segir Björgvin. „En það kom fljót-
lega í ljós að það voru ekkert allir að fara að
komast þangað og svo yrði erfitt að fara eftir
öllum reglunum í sambandi við Covid.“
Rouge Invitational-mótið var haldið með
svipuðu sniði í júní og því eru heimsleikarnir
ekki þeir fyrstu til fara fram í gegnum net-
heima. Bæði Björgvin og Sara tóku þátt í því
móti. „Svo lengi sem staðið verður vel að öllu
og allir fari eftir öllum reglum og noti rétta
búnaðinn þá ætti þetta að ganga upp,“ segir
Björgvin.
„Þetta veltur svolítið á því hvort CrossFit
sendi keppendum allan búnað eða hvort þú
getir notað þinn eigin búnað. Það þarf að vera
svolítið á hreinu, þyngdirnar og þetta allt,“
segir Björgvin en einhverjir keppendur eru
vanir að nota lóð mæld í kílóum, aðrir í pund-
um.
„Það er spurning hversu nákvæmt þetta
verður því þetta veltur oft á einhverjum sek-
úndubrotum á milli manna. En ég hef fulla trú
á þessu og þetta er spennandi.“
Mögulega ekki þau bestu efst
Sérstakur dómari frá CrossFit mun sjá til þess
að hver og einn keppandi muni framkvæma
æfingarnar rétt. „Ég veit ekki hvort hann
verður íslenskur en okkur verður úthlutað
dómara,“ segir Sara.
„Það var þannig á Rouge-mótinu,“ segir
Björgvin. „Þá þurfti ég líka að hafa „operation
manager“ til að vera á bak við myndavélina og
sjá til þess að þetta gengi smurt fyrir sig.“
Í fyrra voru leikarnir með breyttu sniði frá
því sem var áður. Var keppendum fækkað mun
fyrr í keppninni en fólk átti að venjast og
margir sterkir keppendur duttu snemma úr
leik. Vildu einhverjir þeirra meina að aðeins
hefðu íþróttamennirnir verið prófaðir í hluta
þeirra tegunda æfinga sem crossfit byggir á og
því ekki þeir sterkustu sem fóru áfram í 10
manna úrslit til að mynda.
Sara viðurkennir að hún sé smeyk við að
svipað gæti verið uppi á teningnum í ár.
„Fimm efstu. Þetta er rosalega mikill skurður.
Þú mátt ekki gera ein mistök og þá ertu farin.
En þau hafa alla vega afsökun þetta árið ef þau
ná ekki réttu aðilunum inn á heimsleikana.
Kórónuveiran er ekki að gera þeim auðvelt
fyrir að geta prófað fólk í öllu.“
Mismunandi aðstæður
Björgvin segir að aðstæður verði öðruvísi en í
venjulegri keppni. „Það eru einhverjir sem
standa sig illa fyrir framan áhorfendur og aðr-
ir sem standa sig betur,“ segir hann. Á Rouge
Invitational-mótinu hafi ekkert mátt heyrast í
áhorfendum og engin tónlist spiluð þar sem
æfingarnar voru gerðar. „En þau eru búin að
segja að það verði ekki svoleiðis. Það verða
áhorfendur eins og reglur leyfa í sambandi við
samkomubann. Það er strax miklu betra.“
Hann segir möguleika á að þau Sara taki æf-
ingar sínar á sama staðnum. „Ef það er fólk að
koma þá hef ég litlar áhyggjur af þessu. Við
erum svona að skoða hvernig við ætlum að
snúa okkur í því.“
Takmarkað er hvaða æfingar er hægt að
láta keppendur gera ef allir eru í sínu landi við
mismundandi aðstæður. Einhverjir keppa í 40
gráðu hita í Kaliforníu á meðan aðrir, t.d. á Ís-
landi, eru í mun kaldara loftslagi. „Það er ekk-
ert hægt að láta okkur hlaupa úti. Á ég þá að
gera það í 20 metrum á sekúndu? Það yrði
aldrei sanngjarnt. Þau eru samt sem áður að
spyrja okkur hvar næsta 400 metra braut sé.
Það eru margir sem hafa gert athugasemdir
við það. Það mun aldrei ganga, held ég.“
Kemur lygilega vel undan veirunni
Æfingatímabilið fór allt úr skorðum hjá cross-
fit-köppum vegna veirufaraldursins. Líkams-
ræktarstöðvum hér á landi var lokað og bæði
mót og æfingabúðir erlendis var blásið af.
„Stöðinni okkar [í Hveragerði] var lokað
þannig að ég var sá eini þarna,“ segir Björg-
vin. „Þetta hafði því mjög takmörkuð áhrif á
Rétt fyrir síðustu helgi tilkynnti CrossFit að heimsleikarnir í íþróttinni færu fram að hluta á netinu í ár. Munu
30 hraustustu konur og 30 hraustustu karlar heims keppa í sínu heimalandi um að vera í hópi þeirra fimm
efstu í hvorum flokki sem er síðan boðið til Kaliforníu í Bandaríkjunum í lokakeppnina. Sunnudagsblaðið
heyrði í Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur og Björgvini Karli Guðmundssyni sem munu keppa á Íslandi.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Færi út með þrjár grímur
’Það er ekkert hægt að láta okkur hlaupa úti. Á ég þá að gera það í 20metrum á sekúndu? Það yrði aldrei sanngjarnt. Þau eru samt semáður að spyrja okkur hvar næsta 400 metra braut sé. Það eru margirsem hafa gert athugasemdir við það. Það mun aldrei ganga, held ég.
’Ég ákvað að gera miklar breytingar eftir heimsleikana og ég hefðialdrei gert þessar breytingar ef ég hefði ekki lent í þessu áfalli aðná ekki niðurskurði. Þetta var ákveðið áfall. Maður fer í þetta mót ogætlar sér að vinna það. Svo kemstu allt í einu ekki í efstu 10.