Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Síða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.8. 2020 LÍFSSTÍLL Undir lok árs 2009 byrjaði JoeRogan með hlaðvarpsþáttsinn sem nokkrum mán- uðum seinna var nefndur The Joe Rogan Experience og komst um svipað leyti á topp 100 lista yfir vin- sælustu hlaðvarpsþættina á iTunes. Á þessum tíma hafði Rogan getið sér orð sem uppistandari, þáttastjórn- andi FearFactor og sjónvarpsþulur hjá UFC-bardagasamtökunum. Þættinum var streymt ókeypis á netinu og til að byrja með settist Rogan niður einu sinni í viku með vini sínum Brian Redban og spjallaði við hann um allt milli himins og jarðar. Eftir því sem vinsældir þáttanna juk- ust mættu sífellt fleiri í spjall til Rog- ans; fyrst aðrir vinir en síðar grín- istar, bardagamenn, vísindamenn, íþróttamenn og fleiri. Til umræðu í þáttunum hefur alltaf verið það sama: allt milli himins og jarðar. Í dag er hlaðvarpsþátturinn, sem streymt er í myndbandsformi beint á YouTube, einn sá vinsælasti, ef ekki sá vinsælasti, í heimi. Nokkuð erfitt er að fá áreiðanlega tölfræði um nið- urhal hlaðvarpsþátta en Rogan hefur sjálfur sagt að náð sé í þætti hans 190 milljón sinnum í mánuði á hlaðvarps- veitum. Við þetta má bæta fjölda fólks sem horfir á YouTube en þar eru fylgjendurnir 9,2 milljónir og hver þáttur fær milljónir áhorfa. Óformlegt og langt spjall Ástæður þessara gífurlegu vinsælda eru margþættar og erfitt að komast að fullu til botns í þeim. Vinsældirnar virðast vinda upp á sig; þ.e.a.s. því vinsælli sem Rogan verður því auð- veldara á hann með að fá gesti í þátt sinn sem draga hlustendur og áhorf- endur að. Form þáttanna skiptir miklu máli. Oftast situr Rogan með viðmælanda sínum í tvo til þrjá tíma og spjallið er mjög óformlegt. Auðvitað er það rætt sem viðkomandi hefur frá að segja en ekkert viðfangsefni er heilagt. Oft talar Rogan ofan í viðmælanda sinn svo ekki er hægt að segja að um eig- inlegt viðtal sé að ræða. Þetta form, þar sem rætt er vand- lega um hlutina í langan tíma, er ein- mitt á skjön við þá þróun sem átt hef- ur sér stað í miðlun upplýsinga síðustu árin með tilkomu snjallsíma og annarra snjalltækja. Sífellt erf- iðara er að ná athygli fólks og halda henni og því hafa sjónvarpsstöðvar, sérstaklega vestanhafs, leitað í mjög stutt viðtöl þar sem viðmælandinn nær að koma takmarkað miklu frá sér. Ef rökfærslu viðmælandans er ábótavant kemur það oft ekki fram í fimm mínútna innslagi. Þegar við- mælandinn situr hins vegar fyrir framan Joe Rogan í tvo tíma og þarf að útskýra mál sitt vel og vandlega er ekki það sama uppi á teningnum. Segir það sem honum sýnist Rogan er óhræddur við að láta skoð- anir sínar í ljós. Á tímum þar sem lít- ið þarf til að móðga aðra hafa fjöl- miðlamenn lent í því að missa vinnuna vegna skoðana sinna. Rogan er hins vegar ekki í vinnu hjá neinum og getur því sagt það sem honum sýnist þó margir séu honum ósam- mála um margt. Þetta frelsi hefur orðið til þess að hlaðvarpsþættir verða sífellt vinsælli. Hver sem er getur gefið út hlað- varpsþátt og, líkt og Rogan, orðið geysivinsæll án þess að nokkur ráði efnistökum þátta þeirra, líkt og raun- in hefur verið í gegnum tíðina. Engin tímamörk eru sett og hægt er að spjalla um viðfangsefnin eins lengi og þarf. Rogan hefur sjálfur sagt að ástæða vinsælda hans, og annarra hlaðvarps- þáttastjórnanda, sé sú að hægt er að hlusta á hlaðvarpsþætti þegar ekki er hægt að lesa, vera í símanum eða horfa á myndbönd. Hægt er að hlusta á þættina þegar við keyrum, eldum, æfum, tökum til, hengjum upp þvott og svo framvegis. Á sama tíma hefur önnur fjölmiðlun orðið undir í barátt- unni við samfélagsmiðla, streymis- og myndbandsveitur. Fríar sig ábyrgð Margir eru þó uggandi yfir vinsæld- um hlaðvarpsþátta eins og Rogans. Þó hann hafi gefið sig út fyrir að feta meðalveginn milli þess sem hann kallar öfgahægri- og öfgavinstrivæng stjórnmála gefur hann nánast hverj- um sem er tækifæri til að koma í þáttinn. Menn eins og Alex Jones, stjórnandi InfoWars, sem heldur uppi alls kyns samsæriskenningum, hafa fengið að tjá skoðanir sínar fyrir milljónum hlustenda Rogans. Margir eru ósáttir við það og vilja ekki veita slíkum mönnum brautar- gengi. Rogan fríar sig hins vegar ábyrgð, hefur margoft sagst vera „bara grínisti“, ekki fjölmiðlamaður. Hann fái einungis fólk til sín í spjall, ef aðrir vilja fylgjast með þessu spjalli sé það þeirra mál. Veðja á Rogan og hlaðvarpið Spotify hefur síðasta eitt og hálfa ár- ið eða svo fært sig upp á skaftið í hlaðvarpsiðnaðnum. Í fyrra keypti sænski streymisrisinn, sem þar til hafði einblínt á tónlist, hlaðvarpsfyrirtækin Gimlet Media og Anchor. Fyrr á þessu ári keypti fyrirtækið íþróttasíðuna The Ringer, sem Bill Simmons stofnaði 2016. The Ringer heldur úti um 30 hlaðvarps- þáttum, þar á meðal The Bill Sim- mons Podcast sem er einn vinsælasti íþróttaþátturinn á þessu sviði. Næsta skref var að semja við Joe Rogan um réttinn á þætti hans. 20. maí tilkynnti hann að hinn 1. sept- ember yrðu þættir hans gefnir út á Spotify, bæði á myndbands- og hlað- varpsformi. Þar til í lok árs verður þáttunum einnig streymt á YouTube en eftir áramót einungis á Spotify. Wall Street Journal heldur því fram að Rogan fái um 100 milljónir bandaríkjadala, jafngildi tæplega 14 milljarða íslenskra króna, fyrir samninginn. „Þeir verða ókeypis og þetta verða nákvæmlega sömu þætt- irnir,“ sagði Rogan á Instagram við tilefnið. „Þetta er bara leyfissamn- ingur, þannig að Spotify fær ekki að stjórna efnistökum,“ sagði hann enn- fremur en mikilvægt hefur verið fyr- ir Rogan að halda frelsi sínu við þáttagerðina. Samningurinn er talinn vera mjög áhrifamikill. Rogan á dygga aðdá- endur (sumir bera jafnvel húðflúr af andliti hans eða hundsins hans, sem á eigin Instagram-síðu) sem munu að öllum líkindum elta hann yfir á Spotify, til að mynda frá Apple, þar sem flestir hlusta á hlaðvarpsþætt- ina. Þegar fólk er á annað borð komið á Spotify til að hlusta á Rogan vona stjórnendur Spotify að þeir hlusti á aðra hlaðvarpsþætti þar og tónlist einnig. Það geti fært þeim auglýs- ingatekjur eða jafnvel nýja áskrif- endur. Spotify virðist ætla að veðja á hlað- varpið fremur en að treysta einungis á tónlist til að borga reikningana. Þó tekjurnar séu miklar og tónlist- armenn kvarti oft sáran undan lágum streymisgjöldum hefur fyrirtækið aðeins nýlega farið að skila hagnaði. Þegar Rogan skrifaði undir var bent á að tónlistarmaður þyrfti tugi millj- arða streyma á veitunni til að hala inn eins mikið og Rogan fær fyrir samninginn. Spurning er hversu vel tónlistariðnaðurinn tekur í það. Getur ekki verið rekinn Hinn umdeildi Joe Rogan er einn áhrifamesti fjöl- miðlamaður í heimi, hvort sem hann tekur undir það eður ei. Hann skrifaði nýlega undir samning við Spotify um réttinn á hlaðvarpsþætti hans sem metinn er á um 14 milljarða króna. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is AFP AFP Auk þess að halda úti einum vinælasta hlaðvarpsþætti í heimi lýsir Rogan UFC- bardögum og flytur uppistand. Rogan með uppi- stand í upphafi aldarinnar. SÉRSMÍÐI Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Sérsmíðum eftir óskum hvers og eins. Þú kemur með hugmyndina og við látum hana verða að veruleika með vandaðri sérsmíði og flottri hönnun.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.