Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.8. 2020
LÍFSSTÍLL
Undir lok árs 2009 byrjaði JoeRogan með hlaðvarpsþáttsinn sem nokkrum mán-
uðum seinna var nefndur The Joe
Rogan Experience og komst um
svipað leyti á topp 100 lista yfir vin-
sælustu hlaðvarpsþættina á iTunes.
Á þessum tíma hafði Rogan getið sér
orð sem uppistandari, þáttastjórn-
andi FearFactor og sjónvarpsþulur
hjá UFC-bardagasamtökunum.
Þættinum var streymt ókeypis á
netinu og til að byrja með settist
Rogan niður einu sinni í viku með vini
sínum Brian Redban og spjallaði við
hann um allt milli himins og jarðar.
Eftir því sem vinsældir þáttanna juk-
ust mættu sífellt fleiri í spjall til Rog-
ans; fyrst aðrir vinir en síðar grín-
istar, bardagamenn, vísindamenn,
íþróttamenn og fleiri. Til umræðu í
þáttunum hefur alltaf verið það
sama: allt milli himins og jarðar.
Í dag er hlaðvarpsþátturinn, sem
streymt er í myndbandsformi beint á
YouTube, einn sá vinsælasti, ef ekki
sá vinsælasti, í heimi. Nokkuð erfitt
er að fá áreiðanlega tölfræði um nið-
urhal hlaðvarpsþátta en Rogan hefur
sjálfur sagt að náð sé í þætti hans 190
milljón sinnum í mánuði á hlaðvarps-
veitum. Við þetta má bæta fjölda
fólks sem horfir á YouTube en þar
eru fylgjendurnir 9,2 milljónir og
hver þáttur fær milljónir áhorfa.
Óformlegt og langt spjall
Ástæður þessara gífurlegu vinsælda
eru margþættar og erfitt að komast
að fullu til botns í þeim. Vinsældirnar
virðast vinda upp á sig; þ.e.a.s. því
vinsælli sem Rogan verður því auð-
veldara á hann með að fá gesti í þátt
sinn sem draga hlustendur og áhorf-
endur að.
Form þáttanna skiptir miklu máli.
Oftast situr Rogan með viðmælanda
sínum í tvo til þrjá tíma og spjallið er
mjög óformlegt. Auðvitað er það rætt
sem viðkomandi hefur frá að segja en
ekkert viðfangsefni er heilagt. Oft
talar Rogan ofan í viðmælanda sinn
svo ekki er hægt að segja að um eig-
inlegt viðtal sé að ræða.
Þetta form, þar sem rætt er vand-
lega um hlutina í langan tíma, er ein-
mitt á skjön við þá þróun sem átt hef-
ur sér stað í miðlun upplýsinga
síðustu árin með tilkomu snjallsíma
og annarra snjalltækja. Sífellt erf-
iðara er að ná athygli fólks og halda
henni og því hafa sjónvarpsstöðvar,
sérstaklega vestanhafs, leitað í mjög
stutt viðtöl þar sem viðmælandinn
nær að koma takmarkað miklu frá
sér.
Ef rökfærslu viðmælandans er
ábótavant kemur það oft ekki fram í
fimm mínútna innslagi. Þegar við-
mælandinn situr hins vegar fyrir
framan Joe Rogan í tvo tíma og þarf
að útskýra mál sitt vel og vandlega er
ekki það sama uppi á teningnum.
Segir það sem honum sýnist
Rogan er óhræddur við að láta skoð-
anir sínar í ljós. Á tímum þar sem lít-
ið þarf til að móðga aðra hafa fjöl-
miðlamenn lent í því að missa
vinnuna vegna skoðana sinna. Rogan
er hins vegar ekki í vinnu hjá neinum
og getur því sagt það sem honum
sýnist þó margir séu honum ósam-
mála um margt.
Þetta frelsi hefur orðið til þess að
hlaðvarpsþættir verða sífellt vinsælli.
Hver sem er getur gefið út hlað-
varpsþátt og, líkt og Rogan, orðið
geysivinsæll án þess að nokkur ráði
efnistökum þátta þeirra, líkt og raun-
in hefur verið í gegnum tíðina. Engin
tímamörk eru sett og hægt er að
spjalla um viðfangsefnin eins lengi og
þarf.
Rogan hefur sjálfur sagt að ástæða
vinsælda hans, og annarra hlaðvarps-
þáttastjórnanda, sé sú að hægt er að
hlusta á hlaðvarpsþætti þegar ekki er
hægt að lesa, vera í símanum eða
horfa á myndbönd. Hægt er að hlusta
á þættina þegar við keyrum, eldum,
æfum, tökum til, hengjum upp þvott
og svo framvegis. Á sama tíma hefur
önnur fjölmiðlun orðið undir í barátt-
unni við samfélagsmiðla, streymis-
og myndbandsveitur.
Fríar sig ábyrgð
Margir eru þó uggandi yfir vinsæld-
um hlaðvarpsþátta eins og Rogans.
Þó hann hafi gefið sig út fyrir að feta
meðalveginn milli þess sem hann
kallar öfgahægri- og öfgavinstrivæng
stjórnmála gefur hann nánast hverj-
um sem er tækifæri til að koma í
þáttinn. Menn eins og Alex Jones,
stjórnandi InfoWars, sem heldur
uppi alls kyns samsæriskenningum,
hafa fengið að tjá skoðanir sínar fyrir
milljónum hlustenda Rogans.
Margir eru ósáttir við það og vilja
ekki veita slíkum mönnum brautar-
gengi. Rogan fríar sig hins vegar
ábyrgð, hefur margoft sagst vera
„bara grínisti“, ekki fjölmiðlamaður.
Hann fái einungis fólk til sín í spjall,
ef aðrir vilja fylgjast með þessu
spjalli sé það þeirra mál.
Veðja á Rogan og hlaðvarpið
Spotify hefur síðasta eitt og hálfa ár-
ið eða svo fært sig upp á skaftið í
hlaðvarpsiðnaðnum. Í fyrra keypti
sænski streymisrisinn, sem þar til
hafði einblínt á tónlist,
hlaðvarpsfyrirtækin Gimlet Media
og Anchor. Fyrr á þessu ári keypti
fyrirtækið íþróttasíðuna The Ringer,
sem Bill Simmons stofnaði 2016. The
Ringer heldur úti um 30 hlaðvarps-
þáttum, þar á meðal The Bill Sim-
mons Podcast sem er einn vinsælasti
íþróttaþátturinn á þessu sviði.
Næsta skref var að semja við Joe
Rogan um réttinn á þætti hans. 20.
maí tilkynnti hann að hinn 1. sept-
ember yrðu þættir hans gefnir út á
Spotify, bæði á myndbands- og hlað-
varpsformi. Þar til í lok árs verður
þáttunum einnig streymt á YouTube
en eftir áramót einungis á Spotify.
Wall Street Journal heldur því
fram að Rogan fái um 100 milljónir
bandaríkjadala, jafngildi tæplega 14
milljarða íslenskra króna, fyrir
samninginn. „Þeir verða ókeypis og
þetta verða nákvæmlega sömu þætt-
irnir,“ sagði Rogan á Instagram við
tilefnið. „Þetta er bara leyfissamn-
ingur, þannig að Spotify fær ekki að
stjórna efnistökum,“ sagði hann enn-
fremur en mikilvægt hefur verið fyr-
ir Rogan að halda frelsi sínu við
þáttagerðina.
Samningurinn er talinn vera mjög
áhrifamikill. Rogan á dygga aðdá-
endur (sumir bera jafnvel húðflúr af
andliti hans eða hundsins hans, sem á
eigin Instagram-síðu) sem munu að
öllum líkindum elta hann yfir á
Spotify, til að mynda frá Apple, þar
sem flestir hlusta á hlaðvarpsþætt-
ina. Þegar fólk er á annað borð komið
á Spotify til að hlusta á Rogan vona
stjórnendur Spotify að þeir hlusti á
aðra hlaðvarpsþætti þar og tónlist
einnig. Það geti fært þeim auglýs-
ingatekjur eða jafnvel nýja áskrif-
endur.
Spotify virðist ætla að veðja á hlað-
varpið fremur en að treysta einungis
á tónlist til að borga reikningana. Þó
tekjurnar séu miklar og tónlist-
armenn kvarti oft sáran undan lágum
streymisgjöldum hefur fyrirtækið
aðeins nýlega farið að skila hagnaði.
Þegar Rogan skrifaði undir var bent
á að tónlistarmaður þyrfti tugi millj-
arða streyma á veitunni til að hala
inn eins mikið og Rogan fær fyrir
samninginn. Spurning er hversu vel
tónlistariðnaðurinn tekur í það.
Getur ekki
verið rekinn
Hinn umdeildi Joe Rogan er einn áhrifamesti fjöl-
miðlamaður í heimi, hvort sem hann tekur undir
það eður ei. Hann skrifaði nýlega undir samning
við Spotify um réttinn á hlaðvarpsþætti hans sem
metinn er á um 14 milljarða króna.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
AFP
AFP
Auk þess að halda úti einum
vinælasta hlaðvarpsþætti í
heimi lýsir Rogan UFC-
bardögum og flytur uppistand.
Rogan með uppi-
stand í upphafi
aldarinnar.
SÉRSMÍÐI
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Sérsmíðum eftir óskum hvers og eins.
Þú kemur með hugmyndina og við
látum hana verða að veruleika með
vandaðri sérsmíði og flottri hönnun.