Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Side 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.8. 2020 LÍFSSTÍLL Flestir eru sammála því að það ermikilvægt að efla sjálfsmyndog sjálfstraust barna og ung- linga. Þetta eru hugtök sem við not- um mikið í daglegu lífi, hugtök sem hafa margar skilgreiningar og erfitt getur verið að mæla. Hérna tölum við um sjálfsmynd sem hugtak sem lýsir því hvaða hugmyndir við höfum um okkur sjálf og oftast er það skoð- að með því að spyrja spurninga eins og hver er ég og hvernig er ég öðru- vísi eða eins og aðrir? Sjálfsmynd byrjar að mótast snemma á lífsleið- inni og getur tekið miklum breyt- ingum með auknum aldri og þroska. Samskipti við aðra og samanburður hefur mikil áhrif á sjálfsmynd sem verður flóknari með aldrinum. Sam- anburður við aðra felur líka í sér get- una til þess að setja sig í spor ann- arra og skilja að tilfinningar og reynsla annarra geta verið eins ólík- ar og fólkið sem upplifir þær. Flestir eru á þeirri skoðun að vinna með eig- in sjálfsmynd sé í raun eilífðarverk- efni eða áskorun sem sé í sífelldri endurskoðun. Það felast nefnilega lífsgæði í því að vera með jákvæða sjálfsmynd. Foreldrar og kennarar eru mikilvægar fyrirmyndir og ættu því að vinna í eigin sjálfsmynd og tala um þá vinnu við börnin sín. Rannsóknir sýna að heilinn og þar með hugmyndir okkar um okkur sjálf breytast í takt við það sem við æfum, þjálfum og leggjum áherslu á. Með því að ræða þetta við börn sýn- um við gott fordæmi og að sjálfs- mynd er ekki einhver fasti sem mót- ast í æsku og helst óbreyttur eftir unglingsárin. Í nokkrum lögum Sjálfstraust er hugtak sem er notað til skoða hvernig við metum eigin verðleika og hvaða tilfinningar tengj- ast því mati. Flestir eru á því að sjálfstraust sé í nokkrum lögum eða sviðum. Það er til dæmis hægt að vera með hátt sjálfstraust þegar kemur að hreyfingu og íþróttum en lítið sjálfstraust þegar að kemur að námslegri getu og öfugt. Sama á við um útlit, félagslega stöðu og hegðun eða hlýðni, sjálfstraust á einu sviði hefur ekki endilega fylgni við sjálfs- traust á öðrum sviðum. Almennt er talið að sjálfstraust á ákveðnu sviði ýti undir frumkvæði sem leiðir til aukinnar getu á því sviði. Það er því til mikils að vinna við að efla sjálfs- traust barna og unglinga á þeim svið- um sem þau vilja bæta sig í. Sjálfs- traust tengist líka hugtakinu álit á eigin getu (e. self-efficacy) sem er mat á því hversu líkleg börn telja sig vera til að leysa ákveðin verkefni. Því líklegri sem þau telja sig vera því meiri líkur eru á því að þau gefist ekki upp. Ef þau halda áfram að reyna og gefast ekki upp eru síðan meiri líkur á því að þau nái árangri. Það ýtir undir seiglu og færni. Þetta er hins vegar ólíkt sjálfstrausti því ef að barn hefur ekki áhuga á ákveðnu sviði þá skiptir það ekki máli fyrir sjálfstraustið þó þau hafa litla trú á getu á því sviði. Þetta bendir til þess að mikilvægt er að hafa í huga hver eru áhugamál, markmið og hug- myndir barnanna sjálfra. Robert Weinberg, prófessor og íþróttasálfræðingur, segir að sjálfs- traust geti verið lykilinn að andlegri seiglu (e. mental toughness) sem get- ur leitt til framúrskarandi árangurs til dæmis afreksíþróttafólks. Við vit- um að góð hreyfifærni getur ýtt und- ir jákvæða sjálfsmynd og að börn sem hreyfa sig reglulega eru með meira sjálfstraust en þau sem hreyfa sig lítið. Kenning Csikszentmihalyi um flæði fjallar meðal annars um tengsl sjálfsmyndar og flæðis. Flæði er upplifun sem kemur þegar að jafnvægi er á milli áskorana og færni. Í flæði kemur tilfinning um það að sigrast á eða geta ráðið við eitthvað (e. mastery) og við það eflist sjálfstraustið og það hefur áhrif á sjálfsmyndina. Við nýjar sigraðar áskoranir kemur jákvæð styrking á því að gera hlutina. Í þessu ljósi væri gott að hugsa nám þannig að börn fái alltaf viðeigandi áskoranir sem er líklegt að þau geti leyst með æfing- unni og að þau læri að mistökin á leiðinni eru lærdómsrík. Kennarar og foreldrar þurfa líka að hugsa hvort þeir séu með viðeigandi áskor- anir í sínu lífi og hvort þeir séu að upplifa flæði í því sem þau eru að gera. Kennari eða foreldri með góða sjálfsmynd gefur meira af sér og er betri fyrirmynd. Viðeigandi áskoranir Í kenningu sálfræðingsins Ericsson er áhersla lögð á markvissa þjálfun eða kennslu og viðeigandi áskoranir. Til þess að meta hvað eru viðeigandi áskoranir þarf kennari að þekkja barnið og vita hverjir styrkleikar og veikleikar þess eru. Þetta sýnir líka að mikilvægt er að þekkja hvert er áhugasvið hvers barns og hvar er lík- legt að það nái að blómstra. Ef við fáum að sinna því sem veitir okkur ánægju og þar sem áskoranir eru við hæfi fáum við tækifæri til að upplifa flæði. Þetta getur komið fram á hin- um ýmsu sviðum, t.d. í námi, íþrótt- um, tölvuleikjum, skák eða útivist. Öll viljum við að styrkleikar okkar fái að njóta sín og það ýtir undir já- kvæða sjálfsmynd. Tölvunotkun barna og unglinga hefur aukist undanfarin ár og margir foreldrar hafa áhyggjur af henni. Að sjálfsögðu er óhófleg notkun ekki æskileg og mikilvægt að setja skýran tímaramma um hana. Foreldrar þurfa líka að vera góðar fyrirmyndir í þessu sem öðru. Það er líka mik- ilvægt að skoða hvað börn og ung- lingar eru að gera í tölvunni eða sím- anum því þar er líka að finna margt æskilegt og þroskandi í hæfilegu magni. Samfélagsmiðlar ýta undir samanburð og við vitum í raun ekki hvaða áhrif það hefur á sjálfsmynd unglinganna okkar. Rannsóknir benda til þess að óhófleg notkun hafi fylgni við neikvæða sjálfsmynd, fé- lagslega einangrun og aukinn kvíða. Rannsóknir benda einnig til þess að unglingsstúlkur sem eru með til- hneigingu til að draga sig í hlé fé- lagslega sæki mikið í samfélags- miðla. Netheimur og samfélagsmiðlar breytast hratt og erfitt er fyrir rannsakendur að fylgj- ast með öllu því sem er að gerast þar. Mikilvægt er að styðja við rann- sóknir á þessu því að ljóst er að þarna eru ótal tækifæri til að ná til unglinga og sérstaklega unglinga sem eru í áhættu á félagslegri ein- angrun. Margir unglingar sem hafa góða sjálfsmynd tala um hvetjandi áhrif samfélagsmiðla, til dæmis ung- lingur sem sagði nýlega frá því að nú væru allir að birta fallegar myndir í íslenskri náttúru þannig að hann fór að prófa fjallgöngur og birti stoltur myndir á samfélagsmiðlum. Það væri því hægt að skoða þennan hvetjandi þátt samfélagsmiðla meira og hvetja foreldra til að ræða um heilbrigðan samanburð og hversu langt frá raunveruleikanum glans- mynd samfélagsmiðla er oft og tíð- um. Að efla sjálfsmynd okkar og sjálfs- traust er áskorun sem við öll stönd- um frammi fyrir á lífsleiðinni. Marg- ar aðferðir hafa reynst vel til að styðja við jákvæða sjálfsmynd og hér gefst ekki tækifæri til að fjalla um þær allar. Rannsóknir sýna að það er mikilvægt að finna verkefni sem við höfum áhuga á. Við þurfum að gefa okkur tíma til að þróa og æfa kunn- áttu og færni í þessum verkefnum. Með æfingunni lærum við að mótlæt- ið er óhjákvæmilegt en með aukinni æfingu minnkar það og við upplifum flæði. Við förum að upplifa jákvæða styrkingu í anda Csikszentmihalyi og jákvæðrar sálfræði. Með því að vera góðar fyrirmyndir setjum við okkur markmið og finnum nýjar ákoranir. Þorum að gera mistök og fara út fyr- ir rammann. Hlustum á börnin okkar Hlustum á börnin okkar og ung- lingana. Við verðum að taka samtalið til að skilja hverjar eru þeirra hug- myndir um þau sjálf, hver eru áhuga- málin og á hvaða sviðum hafa þau trú á eigin getu. Með samtalinu getum við leiðbeint þeim og verið til taks fyrir þau þegar að þau finna sér við- eigandi áskoranir. Leyfum þeim að gera mistök og gefum þeim svigrúm fyrir æfinguna. Það er eina leiðin til að upplifa flæðið sem gerir svo mikið fyrir sjálfstraustið. Ræðum um sam- félagsmiðla og hvernig er hægt að setja sig í spor annarra. Hvetjum börn til að nota samanburð á upp- byggilegan hátt. Allt þetta hefur áhrif á það hvernig sjálfmyndin er og verður og það felast aukin lífsgæði í því að vera með jákvæða sjálfsmynd. Sjálfsmynd og mikilvægi hennar fyrir leik og störf Við vitum að góð hreyfi- færni getur ýtt undir já- kvæða sjálfsmynd og að börn sem hreyfa sig reglulega eru með hærra sjálfstraust en þau sem hreyfa sig lítið. Morgunblaðið/Styrmir Kári Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson prófessor hermundurs@ru.is Sigurrós Jóhannsdóttir sálfræðingur Muhammad Ali komst alla leið á toppinn.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.