Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.8. 2020
Þ
ótt fjárbúum hafi fækkað í landinu frá
því sem mest var og laustengt nú-
tímafólk hafi stundum horn í síðu
sauðkindarinnar er annar tími ekki
langt undan.
Vitsmunafé
Bréfritara þykir sauðfé fara fallega í landinu og kvikfé
almennt breyta því sem fyrir ber í kvikmynd.
Frá því að hann fór fyrst að fylgjast með því í
Svartárdalnum og víðar tók hversdagsleg mynd smám
saman að breytast í undur. Um hásumartíð var hlíðin
beggja vegna gullkista þess sem sauðfé sækir í. Maður
mundi ætla þegar horft var á þessa mynd að féð hefði
getað verið eins og bullur á bar, með allt sem magi og
draumheimar þráðu innan seilingar. Því þá í ósköp-
unum að færa sig úr þessu nægtarbúri? Rollurnar litu
þó augljóslega ekki þannig á það. Þegar maður gaut
næst upp til þeirra auga frá snúningum, sem manni
sjálfum eða hinum hundunum hafði verið sigað í, höfðu
þær fært sig með lömbin sín hundruð metra og jafnvel
hátt upp í hlíð þar sem minnst virtist vera að hafa.
Það varð ekki betur séð en hver og ein rolla væri
hokin af sambærilegri þekkingu og doktor í matvæla-
fræði, náttúru- og jarðvegssérfræðingur hefðu þurft að
leggja saman í til að standa jafn vel að vígi.
Og allt þetta hafði rollan lært um örstutt sumarskeið
þegar hún fór þarna um eða svipaða slóð með henni
mömmu sinni. Hún vissi það sjálfsagt ekki þá að það
var upp á líf og dauða að fylgjast með fyrirlestrunum
hennar mömmu. En hún sveikst samt ekki um það.
Og nú var það hún, Dísa dósent í náttúrufræði, sem
hafði alla athygli síns ungviðis.
Aðgát skal höfð
Bréfritara, sem vissi ekkert um þetta þá og enn minna
nú, þótti augljóst vera, eftir því sem litla samhenta
fjölskyldan flutti sig til í brattri hlíð, að öll væri sú ferð
byggð á sundurgreindri þekkingu á náttúrunni, niður í
það allra smæsta, og hávísindalegri aðferð og var ekki
önnur betri til. Öllu hafði verið til haga haldið og
miðlað til hverrar kynslóðar, þótt ungviðið hefði aðeins
hina misviðrasömu sumarglennu til að nema hin flóknu
fræði.
Eftir því sem meira er girt í hugsunarleysi er gengið
á þennan ómetanlega þekkingargrunn.
Um þetta veit bréfritari auðvitað nægilega lítið til
þess að geta látið gamminn geisa og heldur því áfram í
sama dúr. Sauðfé, eins og hross, gerir mannamun í
sínu samfélagi og ekki kæmi á óvart þótt það eignaðist
ævilanga vini og saknaði þeirra sárt, eins og hrossin
gera, þegar tilfinningasljóir óðagotsmenn flytja þau til-
viljanakennt burt frá besta vininum og það þótt engin
efni standi til þess.
Þá syngja augu hrossanna hendingu Davíðs: „Ég
heyri álengdar hófadyninn, ég horfi langt á eftir þér....“
Sendiherrar í sveit
Löngu fyrir daga uppeldisfræðinganna voru börn,
einkum strákar, send í sveit, jafnvel sumar eftir sumar.
Rítalín uppeldisbiskup var þá ekki til, enda var hans
síður þörf á þessum árum. Á veturna var amma heima í
peysufötunum með skotthúfuna og strákarnir gátu
spurt um sumt sem þeir hefðu ekki spurt aðra um.
Kynslóðirnar gengu að þessu vísu: „Hún trúði þessu
hún amma mín, ég efaði ei það, að allt það væri satt er
hún sagði um þann stað.“
Á þeim tíma þóttu 350 kílómetrar töluverðar fjar-
lægðir og fæstum datt í hug að sækja „sendiherrana“
heim um sumartímann. Og það var ekki gert ráð fyrir
því þá að börn væru að hringja langlínusímtöl og síst í
sveitasímanum eins og var þar hjá góðu fólki.
Margs að sakna
Það má vel vera að stundum hafi ekki tekist vel um
sambúð sumarbarna og þeirra sem tóku þau að sér og
nýttu til léttra snúninga og veittu útrás og vinnu sem
ekki var völ á í þéttbýlinu. En dæmin eru hins vegar
mörg um að sendingin í sveitina reyndist giftudrjúgt
innlegg í að gera dreng að manni í besta skilningi orðs-
ins og vitnisburðir um það eru víða til. Sennilega eru
þeir þó um það bil að týnast.
Sumarfríið úr skólum var langt í þann tíð, svo að
kennarar gátu jafnvel bætt sér upp heildarlaun með
aukavinnu, og helst vildu margir fást við útivinnu til að
hressa og stæla kyrrsetumanninn.
Þjóðfélagsgerðin tók svo breytingum og allt í sömu
átt. Vélvæðing sveitanna gerði þær ekki eins öruggar
og barnvænar og áður og þrýstingur á að báðir for-
svarsmenn barna kæmust sem fyrst í launaða vinnu
utan heimilis eða lykju námi sem tryggði slíkt.
Og þótt ýmsum hafi þótt þessar breytingar koma
hægt og hikandi þá voru þær næsta fljótar í förum, að
minnsta kosti þegar horft er til baka yfir aldanna
skeið.
Þjóðfélag, sem hafði lítið breyst, fór eins og í gegnum
margar byltingar á örfáum áratugum þótt ekki væru
þær beinlínis blóðugar.
En það má ekki gleyma því að fyrirvinnur heimil-
anna höfðu ætíð verið tvær. Þannig var það auðvitað á
hefðbundinni búskapartíð og vinnudagur hinnar
„heimavinnandi húsmóður“ var langur og hlífðarlítill.
Hið stutta milliskeið hér á landi, þar sem konur voru
heimavinnandi í þéttbýli, var annar hlutur. En þó er
vafalaust að einnig þá tryggði hlutur heimavinnandi
makans einnig miklu meiri efnahagslega búbót en látið
hefur verið og mætti sjálfsagt renna traustum stoðum
undir þá fullyrðingu.
Inn á þann reikning kæmi fjölmargt sem liggur ekki
í augum uppi án athugunar og mætti þá ekki láta upp-
skafningslega fordóma nútímans rugla sig við slíkt
mat.
Það breytir ekki hinu að þróunin var í senn tímabær,
óhjákvæmileg og þörf og hún gaf fólki mun víðfeðmari
tækifæri en áður þekktust.
En það má ekki láta á móti sér að viðurkenna að
verðleikum fyrri tíðar hætti, sem ekkert hefur komið í
staðinn fyrir og tók flestu fram.
Endurtekið efni
Á tímum kórónuveiru (tilgerðarmenn kalla hana
Covid-19!) verður margur háðari sjálfum sér um
kompaní en endranær. Og það hefur komið í ljós að
ýmsir hafa uppgötvað að þeir voru fyrir löngu orðnir
ófærir um að þola samlífið með sjálfum sér um svo
langa hríð án þess að fá það brotið upp reglulega.
Um fé og fé.
Einn slátrar fé
annar prentar það
’Menn voru mældir hundruðum samaneða þúsundum og reyndust sumir nei-kvæðir, sem auðvitað var jákvætt. En þvímiður mældust sumir jákvæðir sem var auð-
vitað neikvætt. En um 9% höfðu fengið bull-
andi veiru og fengið smitið staðfest og veikin
var vond og eftirköstin mikil, en samt voru
þessir menn nú mældir neikvæðir sem var
auðvitað fjarri því að vera jákvætt og jafnvel
allt að því að vera ósvífið.
Reykjavíkurbréf14.08.20