Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2020, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.8. 2020
LESBÓK
KALDHÆÐNI Bandaríska leikkonan Zoë Kravitz hefur gagn-
rýnt efnisveituna Hulu fyrir skort á fjölbreytni eftir að High
Fidelity, þátturinn sem hún fer með aðalhlutverkið í, var tek-
inn af dagskrá eftir aðeins eina seríu. Eftir að hafa þakkað
samstarfsfólki sínu við gerð þáttanna kærlega fyrir vel
unnin störf á samfélagsmiðlum bárust henni samúðar-
kveðjur frá konum á borð við Reese Witherspoon og
Halle Berry. „Allt í góðu,“ svaraði Kravitz kaldhæðn-
islega um hæl. „Hulu er með haug af öðrum þáttum
með litaðar konur í aðalhlutverki. Bíðið bara.“ High
Fidelity byggist á samnefndri skáldsögu eftir breska
rithöfundinn Nick Hornby og kvikmynd sem gerð var
eftir henni árið 2000. Í þáttunum er aðalpersónan á
hinn bóginn kona.
Skýtur fast á Hulu
Zoë Kravitz
hefur verið
hressari. AFP
HUGTÖK Dee Snider, söngvari glyströllanna
Twisted Sister, segir lífið of stutt til að elta ólar
við hugtök og merkimiða sem hengd eru á rokk-
tónlist. „Hugtakið „þungamálmur“ – ég var
þarna, lagsi – var niðrandi og viðhaft um ákveðna
gerð þungs rokks af blaðamönnum og gagnrýn-
endum sem voru uppfullir af yfirlæti og hroka.
Böndin sjálf hötuðu þetta. Sama máli gegnir um
pönk og gröns, að ekki sé talað um strákaböndin.
Heldurðu að þau vilji vera kölluð það? Menn sem
nú eru komnir á sextugsaldur,“ sagði hann í sam-
tali við miðilinn SiriusXM. Sjálfur kveðst Snider
vera hinn „upprunalegi hárbóndi“ og er slétt
sama. „Svo lengi sem einhver man eftir mér.“
Veit upp á hár hvað hann syngur
Gamli góði Sniderinn er Deesætur að vanda.
Instagram
Meg Ryan á að baki fjölmargar róm-
antískar gamanmyndir á ferlinum.
Ryan hin
rómantíska
LISTI Breska blaðið The Independ-
ent henti í vikunni í lista yfir 34
bestu rómantísku gamanmyndir
kvikmyndasögunnar, eins og menn
gera í ágústværðinni. Ljóst er að
bandaríska leikkonan Meg Ryan er
í miklu uppáhaldi hjá blaðinu en
hún er í aðalhlutverki í myndunum
sem verma toppsætin tvö; You’ve
Got Mail er í öðru sæti og When
Harry Met Sally í fyrsta. „Satt best
að segja gat það ekki verið nein
önnur,“ segir í rökstuðningi blaðs-
ins fyrir valinu enda mun myndin
hafa markað upphafið að rómgam-
æðinu á tíunda áratugnum (e. rom-
com). Í næstu sætum eru Annie Hall
(1977), The Philadelphia Story
(1940) og Say Anything ... (1989).
Lífið var miklu einfaldara ígamla daga. Það var bara einsjónvarpsstöð og á mið-
vikudögum bara einn leikinn þáttur
að horfa á – Dallas. Og þjóðin horfði,
eins og hún lagði sig; meira að segja
menningarspjótin sem þóttust ekki
horfa horfðu samt. Í laumi. Ástir og
örlög hinnar vellauðugu Ewing-
fjölskyldu, sem barst á í olíu-
heiminum í Texas á áttunda og ní-
unda áratugnum og fram á þann tí-
unda, gagntóku sálarlíf heillar
þjóðar á norðurhjara veraldar. Þeg-
ar yfir lauk voru þáttaraðirnar af
Dallas fjórtán talsins.
Ekki þarf að hafa mörg orð um
lykilpersónurnar sem nefndar eru
hér að ofan; allar voru þær fjöl-
skylduvinir á íslenskum heimilum,
eða þá fjölskylduóvinir í tilviki Joð
gamla Err. Hann var svolítið sein-
tekinn, karlinn, og sat oftar en ekki
undir rammíslenskum blótsyrðum
heima í stofu sem ekki verða höfð
eftir hér.
Aukapersónur komu og fóru í
Dallas, miseftirminnilegar eins og
Kristin M. Shepard
og Joð Err Ewing
meðan allt lék í lyndi.
CBS
Af frillum,
friðlum og
fleiri góðum
Öll munum við eftir Joð Err, Bobby, Pamelu, Sue
Ellen, Miss Ellie og Cliff en persónugalleríið í
Dallas var miklu stærra. Hvernig væri að dusta
rykið af nokkrum aukapersónum úr sápunni?
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Sue Ellen Ewing og Dusty Farlow. Var hann stóra ástin í lífi hennar?
CBS
Cliff Barnes og Afton Cooper voru um tíma par og eignuðust saman dóttur.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru
fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl.
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 28. ágúst 2020
Heilsa& lífsstíll
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir þriðjudaginn 25. ágúst.
SÉRBLAÐ